Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010 VERÖLD
ÚTVÖRÐUR ODESSA Þegar ferðalangar keyra inn til borgarinnar Od-
essu í Úkraínu blasir við þeim gríðarlega stórt vélmenni úr málmi. Þessi „varðhund-
ur“ Odessuborgar er gerður úr gömlum bílhræjum, varahlutum og öðru braki.
Sagan segir að flutningafyrirtækið TIS hafi byggt vélmennið sem áberandi skilti.
En nú er fyrirtækið löngu farið á hausinn og eftir stendur risinn. Margir borgarbúar
eru ósáttir við vélmennið sem sífellt verður frægara kennileiti fyrir borgina, en aðrir
fagna þessum vingjarnlega járnhlunki. Odessa er fjórða stærsta borg Úkraínu en
bæjarstæðið liggur á sögulegum slóðum við Svartahaf. Íbúar borgarinnar erum um
ein milljón.
UMSJÓN: HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON, helgihrafn@dv.is
Hvað leynist á gagnstæðum punkti jarðarkringlunnar?
CASTRO BAÐ
ROOSEVELT UM
10 DOLLARA
n Þegar Fidel Castro var 12 ára skrifaði
hann aðdáendabréf til Franklin D.
Roosevelts, þáverandi forseta Bandaríkj-
anna, og bað hann um að senda sér 10
dollara seðil. Árið var 1940. „My good
friend Roosevelt, I don‘t know very much
English,“ skrifaði Castro á lélegri ensku.
Castro sagði Roosevelt að hann hefði
heyrt í útvarpinu að Roosevelt ætlaði að
sitja eitt kjörtímabil í viðbót og að hann
væri hæstánægður með fréttirnar. „Ef
þú vilt, gefðu mér grænan amerískan
tíu dollara seðil, því ég hef aldrei séð tíu
dollara seðil,“ skrifaði hinn ungi Castro til
forsetans. „Ég kann ekki mikla ensku, en
ég kann mikla spænsku og ég held að þú
kunnir ekki mikla spænsku, en þú kannt
mikla ensku því þú ert Bandaríkjamaður
og ég ekki.“ Castro varð leiðtogi Kúbu
nítján árum eftir að hann skrifaði þetta
bréf og hélt því starfi til ársins 2008.
Bréfið er geymt í skjalahirslum Banda-
ríkjastjórnar en ekki fylgir sögunni hvort
bréfinu var svarað.
RÓMVERSKUR
VASAHNÍFUR
n Fyrsti vasahnífurinn er fundinn -
en hann er 1.800 árum eldri en hin
fræga svissneska útgáfa sem algeng
er í dag. Fornleifafræðingar fundu
á dögunum rómverskan vasahníf
grafinn í jörðu. Hann er talinn vera
frá árunum í kringum 200 e. Kr.
Gripurinn er gerður úr silfri en hefur
hníf úr járni. Á hann eru fest ýmis
nytsamleg verkfæri, til dæmis skeið,
gaffall, spaði og lítill tannstöngull -
rétt eins og á vasahnífum nútímans.
Auk þess er einkennilegur fleinn,
eða gaddur, á gripnum en hann er
talinn hafa verið notaður til að ná
sniglakjötinu innan úr kuðungnum.
Eigandi þessa vandaða vasahnífs í
fornöld er talinn hafa verið auðugur
ferðalangur sem hafi látið sérsmíða
gripinn. Vasahnífurinn gamli er nú til
sýnis, ásamt öðrum skemmtilegum
munum, í Fitzwilliam-safninu í
Cambrigde á Englandi.
Svissneski vasahnífurinn var fundinn
upp í Ibach Swyz í Sviss árið 1897 af
Karli Elsener. Vasahnífnum fylgja ótal
tól sem nytsamleg áttu að vera fyrir
hermenn í bardaga. Hnífarnir eru nú
þekktir um allan heim og notar útivist-
arfólk, veiðimenn og fleiri gripina til
ýmissa verka.
Á íslensku eru þeir sem búa hinum megin á jörðinni kallaðir andfætlingar. Á daglegu tali eru Ástralir og Nýsjálendingar sagðir vera andfætlingar okkar, enda búa þjóðirnar langt frá okkur.
Á vefsíðunni antipodemap.com er hægt að reikna út á ná-
kvæman hátt hvaða svæði á jarðarkringlunni liggur í gagn-
stæða átt. Það er að segja, hvar kæmirðu niður, græfirðu holu
þráðbeint í gegnum jörðina? Með einfaldri skoðun má því sjá
hverjir eru raunverulegir andfætlingar í heiminum.
Nýsjálendingar eru andfætlingar Spánverja. Nýsjálenska
borgin Christchurch og spænska hafnarborgin La Coruña
eru á nær algjörlega gagnstæðum stöðum á jörðinni. Hong
Kong og argentínska borgin Humahuaca eru sömuleiðis á
gagnstæðum stöðum. Ef borað
yrði í gegnum aðaltorgið í rúss-
nesku borginni Ulan Ude í Síb-
eríu og í gegnum jörðina, yrði
komið niður í bænum Puerto
Natales í Chile.
Andfætis Ástralíu liggur Atl-
antshafið og andfætis Norð-
ur-Ameríku Kyrrahafið. Tilviljun
virðist ráða því að landsvæði heims-
hvelanna liggja fæst gagnstætt hvert
öðru eins og sjá má á meðfylgjandi kort-
um. Enda þekja höf sjötíu prósent jarðar.
Ef þú græfir holu í gegnum jörðina, kæri lesandi, segjum frá
miðjum Austurvelli, eða sumarbústaðalóðinni í Borgarfirðin-
um, og þráðbeint niður í iður jarðar, væri skynsamlegt að klæða
sig vel. Því þegar þú kæmist loksins á leiðarenda, hinum meg-
in á hnettinum, yrðir þér kalt. Þú sæir ekkert nema hvítar breið-
ur borgarísjaka. Andfætlingarnir myndu flýja þig á harðahlaupum
eða á sundi.
Nú, hverjir eru andfætlingar Íslendinga? Jú, það eru mörgæsir á
hlaupum við rönd Suðurskautslandsins.
Gagnstæður punktur Íslands á jörðinni er í hafinu við rönd Kyrra-
hafsstrandar Suðurskautslandsins. Sá hluti Antartíku kallast Viktoríu-
land og hafa Nýsjálendingar gert tilkall til hans. Hafið þar sem gagn-
stæða Íslands liggur er ísilagt og illt yfirferðar. Andfætlingar Íslendinga
eru því mörgæsirnar, selirnir og fiskarnir, sem búa við strendur Vikt-
oríulands. Balleny-eyjaklasinn liggur í hafinu ekki langt frá þeim hluta jarð-
arkringlunnar sem liggur nákvæmlega undir/yfir Íslandi. Eyjarnar eru gróð-
urlausir ísklettar sem skaga upp úr hafinu í fullkomnum felulitum ísanna.
Andfætlingar
hei sins
Mörgæsir andfætlingar
Íslendinga
OBBOSÍ ...
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
byrjar að grafa
þráðbeina
holu í gegnum
jörðina í
Reykjavík.
NOKKRU
SÍÐAR...
Vilhjálmur
Þ. kominn á
leiðarenda,
hinum megin á
hnettinum. Er
bíbí ekki kalt?
Hver er gagnstæði punktur Íslands?
gagnstæði
punktur
Íslands
Suðurskautslandið
Alvöruandfætlingar
Christchurch á Nýja-Sjálandi og
La Coruña á Spáni liggja á gagn-
stæðum punktum á jörðinni.
Gagnstæðir staðir á jörðinni
Kortið sýnir andfætlinga á öllum
svæðum jarðar. Þar sem blátt og
bleikt skarast eru gagnstæðir
staðir á landi. Flest lönd eiga
gagnstæða staði á hafi.