Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010
NAFN OG ALDUR?
„Oddvar, 33 ára.“
ATVINNA?
„Fjöllistamaður.“
HJÚSKAPARSTAÐA?
„Single.“
FJÖLDI BARNA?
„0.“
HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR?
„Páfagauk, hamstra og mús.“
HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST?
„Í miðnæturmessu Fríkirkjunnar á aðfangadag.“
HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN?
„Já.“
HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU?
„Slitinn hlýrabolur með englum á og af því englar
eru fjölkynja.“
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN?
„Já.“
HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆL-
UM?
„Já.“
TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF?
„Eftir þetta fer ég til himna, verð þar í einhvern
tíma, svo aftur hingað sem mannvera, fluga, blóm
eða eitthvað sniðugt.“
HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ
HAFA HALDIÐ UPP Á?
„Djí, það er alveg strokað út, kannski bara ekkert.“
HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR?
„Young Love með Moto Boy.“
TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA?
„Að hengja upp sýninguna mína.“
HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFT-
UR? (AF HVERJU?)
„Pretty Woman og WallE. Tveir ólíkir einstakllingar
sem færa hvor öðrum betra líf. Sjaldan er góð vísa
of oft kveðin“
AFREK VIKUNNAR?
„Að láta skynsemina ráða með því að vakna
snemma.“
HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR?
„Uni vinkona gerir það stundum og það er mjög
gaman.“
SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI?
„Neibb.“
VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ?
„Veit ekki.“
HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU?
„Að vera sáttur í núinu.“
HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA
HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ?
„Björgólf Thor.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST
VILJA HITTA OG AF HVERJU?
„Pál Óskar, af því hann er svo skemmtilegur.“
HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ?
„Blár er minn litur og minnir á él, á botninum flýt
ég og borða jarðarber.“
NÝLEGT PRAKKARASTRIK?
„Nýtti mér opið Facebook yfirmanns míns, skrifaði:
Er ólétt og var að kaupa mér jeppa.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLINGI LÍKIST ÞÚ MEST?
„Að utan væri það Peter Stormare og að innan væri
það karakter Juliu Roberts, Vivian, í Pretty Woman,
mínus að vera hóra.“
ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA?
„Já.“
Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI?
„Hef ekki hugmynd, sýnist Kanel-gott leyfilegt.“
HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN?
„Sturtan mín.“
HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ
FERÐ AÐ SOFA?
„Bið bænirnar, hugsa alls konar og loka svo augun-
um.“
HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI?
„Hef ekki spáð mikið í það. Sjálfbær þróun virkar
gott „múf“ og æðruleysisbænin.“
Oddvar Örn Hjartarson ljósmyndari opnar sýninguna IKEA &
Da Boyz í Ljósmyndasafni Íslands á föstudag. Hann hefur vakið
athygli fyrir litríkar og gáskafullar ljósmyndir sínar. Oddvar er
fjölhæfur drengur sem trúir á framhaldslíf og elskar sturtuna sína.
„NÝTTI MÉR
OPIÐ FACEBOOK“
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
Símar: 578 3030 og 8 240 240
Pípulagningaþjónusta
Góð þjónusta og vönduð vinnubrögð
www.faglagnir.is
– VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200
www.velfang.is • velfang@velfang.is
Fr
um
Nýtt og traust umboð
fyrir á Íslandi
varahlutir
þjónusta
verkstæði
vélar
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
Hádegistilboð á hollustu
990 kr.
Allir réttir
Á næstu grösum Laugavegi 20b - Opið mán - lau 11:30 - 22:00, sun 17:00 - 22:00