Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Page 2
2 MÁNUDAGUR 1. mars 2010 FRÉTTIR
Lánveitendur þeirra auð- og banka-
manna sem skráðu húsin sín og aðr-
ar fasteignir á maka sína um og eftir
bankahrunið haustið 2008 hafa ein-
ungis um hálft ár til að rifta eigna-
tilfærslunni ef ganga þarf að eignum
þeirra vegna skuldsetningar. Fjöl-
margir auð- og bankamenn færðu
eignir sínar yfir á makana, líkt og
margir muna eftir, og eru slíkar til-
færslur eigna riftanlegar í tvö ár þar
á eftir.
Sem dæmi um menn úr fjármála-
lífinu sem þetta gerðu, líkt og greint
var frá í Fréttablaðinu og annars
staðar fyrir rúmu ári, eru forstjórar
Exista, Erlendur Hjaltason og Sig-
urður Valtýsson, Styrmir Þór Braga-
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri
MP Banka, Júlíus Jónasson, fyrr-
verandi þjónustustjóri Kaupþings
og núverandi starfsmaður Arion-
banka, Stefán H. Hilmarsson, fyrr-
verandi fjármálastjóri Baugs, og
Frosti Reyr Rúnarsson, sem var yf-
irmaður hlutabréfamiðlunar hjá
Kaupþingi. Þessir menn eru þó ein-
ungis örfáir af þeim auð- og banka-
mönnum sem þetta gerðu á mánuð-
unum fyrir og eftir hrunið 2008.
Eina lógíska skýringin fyrir því af
hverju þeir auð- og bankamenn sem
þetta gerðu ákváðu að afsala sér
eignum sínum yfir til maka síns er
að þeir hafa óttast að lánveitendur
þeirra myndu ganga að fasteignum
þeirra vegna útistandandi skulda.
Einungis hluti af
eignatilfærslunum
Færslur auð- og bankamanna á fast-
eignum til maka sinna eru þó aðeins
hluti af stórfelldum eignatilfærslum
sem áttu sér stað á mánuðunum fyr-
ir og eftir íslenska efnahagshrunið.
Bæði áttu sér stað smærri og stærri
eignatilfærslur.
Heilu fyrirtækjasamstæðurnar og
keðjurnar voru til að mynda seldar
út úr eignarhaldsfélögum. Nærtæk-
ustu dæmin er sala Haga út úr Baugi
sumarið 2008, sala Lyfja og heilsu
út úr Milestone í lok mars í 2008 og
sala Exista á hlut félagsins í Bakka-
vör í byrjun október 2008. Í öllum
tilfellum voru það eigendur félag-
anna sem seldu sjálfum sér þau yfir
til annarra eignarhaldsfélaga sem
einnig voru í þeirra eigu. Og í öll-
um tilfellum voru kaupin fjármögn-
uð með sérstæðum hætti þegar litið
er til stöðunnar í íslensku fjármála-
lífi: 1998 ehf. tók lán hjá Kaupþingi
fyrir Högum, Aurláki tók yfir skuld-
ir félagsins sem átti Lyf og heilsu og
Ell 182 keypti Bakkavararhlutinn
með láni frá Exista. Færslurnar út úr
þessum þremur félögum komu sér
hins vegar vel fyrir eigendurna því
Baugur og Milestone eru gjaldþrota
og Exista fer í nauðasamninga. Ekki
er hins vegar útséð með hvort þeir
haldi yfirráðum yfir félögunum sem
þeir seldu út úr stóru eignarhalds-
félögunum og alveg ljóst er að 1998
gerir það ekki í tilfelli Haga.
Eignatilfærslurnar á milli ein-
staklinga eru smærri útgáfan af
þessari tilhneigingu í íslensku við-
skiptalífi á þessum örlagaríku tím-
um árið 2008.
Minni eignir færðar undan
Ýmsir auð- og bankamenn skráðu
HAFA 6 MÁNUÐI TIL AÐ
NÁ EIGNUM AUÐMANNA
Kröfuhafar þeirra banka- og auðmanna sem skráðu eignir sínar
á maka sína í bankahruninu haustið 2008 hafa einungis nokkra
mánuði til að rifta þeim gerningum ef með þarf. Enginn auð- eða
bankamaður hefur misst hús sitt eftir hrun svo vitað sé. Hluti af
miklum eignatilfærslum fyrir og eftir hrunið.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Skuldirnar verða hins vegar skild-
ar eftir inni í félaginu
og enginn mun þurfa að
greiða þær til baka.
sömuleiðis bíla og aðrar eignir á
konur sínar. Þannig greindi DV frá
því í fyrra að Benz-sportbíll sem var
í eigu Þórarins Sveinssonar, fyrr-
verandi framkvæmdastjóra eigna-
stýringar hjá Kaupþingi, hafi verið
skráður á eiginkonu hans í byrjun
nóvember 2009, rúmum mánuði
eftir bankahrunið. Bíllinn var skráð-
ur til sölu á bílasölu fyrir 21 milljón
króna.
Þórarinn var einn af starfsmönn-
um Kaupþings sem fengu himinhá
kúlulán frá bankanum til að kaupa
hlutabréf í honum. Eignarhaldsfélag
hans tapaði tæpum 850 milljónum
árið 2008 og skuldar tæpan millj-
arð króna. Í skýrslunni í ársreikn-
ingnum kemur fram að Þórarinn
hafi hug á að lýsa félagið gjaldþrota.
Skuldirnar verða hins vegar skildar
eftir inni í félaginu og enginn mun
þurfa að greiða þær til baka.
Fleiri slík dæmi hafa komið
fram en til dæmis má nefna að Er-
lendur Existamaður afsalaði sér
jörð til eiginkonu sinnar í septemb-
er 2008 og Steingrímur Wernersson
færði Toyota Landcruiser-bifreið
sína yfir á lögfræðing sinn og fjár-
haldsmann.
Eins og staðan lítur út í dag hafa
engar fréttir verið sagðar af því að
lánveitendur þeirra sem færðu
eignir sínar yfir til maka sinna og
annarra nákominna hafi verið rift
þrátt fyrir gríðarlega umfangs-
miklar eignatilfærslur á mánuð-
unum fyrir og eftir efnahagshrun-
ið. Ljóst er hins vegar að þeir sem
telja sig eiga kröfu á hendur þeim
sem þetta gerðu mega ekki mik-
inn tíma missa því riftunarfrest-
urinn vegna afsala á fasteignum
í hruninu rennur út innan nokk-
urra mánaða.
Skráðu hús á eiginkonurnar
Báðir forstjórar Exista, Sigurður Valtýsson
og Erlendur Hjaltason, skráðu hús sín á
eiginkonur sínar í hruninu 2008. Hér má sjá
hús Sigurðar.