Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Blaðsíða 15
HÚSSTJÓRNAR-
VALD
SIGURÐUR HELGI GUÐJÓNSSON, formaður húseigendafélagsins skrifar.
Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is
NEYTENDUR 1. mars 2010 MÁNUDAGUR 15
NOTAÐU HRAÐBANKA Það getur verið erf-
itt að fylgjast með nákvæmri eyðslu af debet- og
kreditkortum, sérstaklega ef kortin eru mörg. Með
skipulagningu og ákveðni er hægt að laga þetta.
Þú ákveður fyrir fram hvað þú ætlar að eyða miklu á
hverjum degi eða í hverri viku. Þú tekur þá peninga
út úr hraðbanka og geymir kortið þitt á meðan. Þá
fyrst verður þú meðvitaður um eyðsluna.
Þó að neysla transfitusýra geti aukið
líkurnar á hjarta- og æðasjúkdóm-
um, þá er ekki þar með sagt að forð-
ast eigi alla fitu. Nauðsynlegt er að fá
fitu úr fæðunni því henni fylgja bæði
mikilvæg fituleysin vítamín og lífs-
nauðsynlegar fitusýrur. Það er hins
vegar ekki sama hvaðan fitan kemur
og því hvetur Lýðheilsustöð fólk til að
velja sem oftast olíu eða mjúka fitu í
stað harðrar fitu (mettaðra fitusýra
og transfitusýra).
Fljótandi fita best
Öll ómettuð fita er mjúk eða fljótandi
við stofuhita og hækkar ekki kólester-
ól í blóði, ólíkt hörðu fitunni. Dæmi
um mjúka fitu er fljótandi matarol-
ía, þykkfljótandi eða mjúkt smjörlíki,
lýsi og óhert fiskifita. Fita í fræjum og
hnetum er einnig ómettuð. Mikil hörð
fita er óæskileg fyrir heilsuna þar sem
hún hækkar LDL-kólesteról í blóði og
eykur þar með líkurnar á hjarta- og
æðasjúkdómum en þeir eru algeng-
asta dánarorsök Íslendinga.
Í fyrra létust rúmlega sjö hundruð
manns af völdum æða- og hjartasjúk-
dóma eða þess sem kallast sjúkdóm-
ar í blóðrásarkerfi. Undir sjúkdóma í
blóðrásarkerfi falla til dæmis hjarta-
sjúkdómar og heilablóðfall.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
in (WHO) telur æskilegt að magn
fitusýra í fæðu fólks fari ekki yfir tvö
grömm af dag.
Lærðu að þekkja þær
Á Íslandi er magn transfitusýra yfir-
leitt ekki merkt á umbúðir matvæla.
Matís bendir þó á að neytendur geti
dregið vissar ályktanir af innihalds-
lýsingum. „Ef jurtaolía er eina fitu-
hráefnið má reikna með að matvæl-
in innihaldi ekki transfitusýrur og
tekist hafi að halda mettuðum fitu-
sýrum í lágmarki. Sérstaklega ætti að
huga að þessu í innihaldslýsingum
fyrir brauð, kökur og kex. Hafa þarf í
huga að kókosfeiti og pálmafeiti eru
harðar feitmetistegundir úr jurtarík-
inu og innihalda mikið af mettuð-
um fitusýrum,“ segir í frétt Matís um
rannsóknarniðurstöður á transfitur-
sýrum. Þar kemur að ef fita er hert
að hluta (partially hydrogenated) má
gera ráð fyrir tranfsitusýrum en hert
fita er þó ekki sönnun þess að slíkar
fitusýrur séu í vörunni. Þó má gera
ráð fyrir talsverðu magni af mettuð-
um fitusýrum, eða harðri fitu.
Hvað eru transfitusýrur?
Transfitusýrur myndast þegar olía er hert. Herðing olíu er aðferð sem notuð er í
matvælaiðnaði til að gera fitu harðari þannig að vörurnar fái ákveðna eiginlega
sem sumir telja æskilega í iðnaði. Transfitusýrur myndast einnig á náttúrulegan
hátt í vömb jórturdýra, þegar bakteríur sem þar er að finna breyta ómettaðri fitu í
transfitusýrur. Að lokum geta transfitusýrur myndast þegar olía er hituð við mjög
háan hita.
Í hvaða matvörum er transfitusýrur
helst að finna?
Hert fita er notuð við framleiðslu margra matvæla og því er transfitusýrur
víða að finna. Einkum er um að ræða matvörur þar sem bökunarsmjörlíki eða
djúpsteikingarfeiti, sem inniheldur herta fitu, er notað við framleiðslu. Vörur
sem mögulega innihalda transfitusýrur eru smjörlíki, steikingarfeiti, kökur, kex,
franskar kartöflur og annar djúpsteiktur skyndibitamatur, örbylgjupopp, snakk og
sælgæti og getur í sumum þessara vara verið umtalsvert magn transfitusýra.
Af vef Lýðheilsustöðvar
Fita inniheldur vítamín
og lífsnauðsynlegar fitusýrur:
Fitan er
nauðsynleg
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Holl fita Öll ómettuð fita
er mjúk eða fljótandi við
stofuhita og hækkar ekki
kólesteról í blóði.
MYND PHOTOS.COM
Í fjöleignarhúsum með sjö eignar-
hlutum eða fleiri skal vera stjórn.
Í minni húsum halda eigendur
saman um stjórnartauma og má
fela einum þeirra forsvar. Stjórn
að jafnaði skipuð þremur mönn-
um og er einn þeirra formaður.
Stjórnarseta er oft vanþakklátur
kross og grunnt er á tortryggni og
deilur tíðar. Brýnt er að eigendur
kunni skil á lagareglum um hús-
félög. Þekking á þeim og fylgni
við þær er forsenda fyrir farsælu
starfi og friði. Úlfúð og innan-
mein gera húsfélög ófær um að
þjóna hlutverki sínu.
Skylt að taka kjöri
Kjörgengir til stjórnar eru eigend-
ur, makar þeirra eða sambúðar-
fólk og nánir ættingjar. Lögræði er
skilyrði en viðkomandi þarf ekki
að búa eða starfa í húsinu. Ekki er
útilokað að fleiri úr sömu íbúð og
fjölskyldu sitji saman í stjórn en
það er ekki æskilegt. Skylda er að
taka kjöri en engum þumalskrúf-
um verður beitt. Það er ekki skil-
yrði að kosnir menn séu á aðal-
fundinum. Það er hins vegar ekki
góð latína að kjósa menn að þeim
forspurðum eða gegn vilja þeirra.
Varamenn
Varamenn taka sæti aðalmanna
við fráfall þeirra og langvinn for-
föll og þegar stjórnarmaður sel-
ur eign sína. Hins vegar er ekki
þörf á að kalla til varamann þótt
stjórnarmaður sé fjarverandi á
einstökum fundi eða um skamma
hríð. Ef stjórnarmenn verða færri
en kjörnir voru og séu varamenn
ekki til staðar, verður að boða
til aukaaðalfundar til að kjósa
stjórnarmenn og varamenn.
Stjórnin getur ekki endurnýjað
sig sjálf með því að kalla eigend-
ur til stjórnarsetu. Þótt formaður
hverfi úr embætti þarf ekki allt-
af að halda aukaaðalfund til að
kjósa nýjan formann því talið er
að stjórnin geti kosið nýjan for-
mann úr sínum hópi og kallað inn
varamenn og verði þannig skipuð
til næsta aðalfundar.
Frávikning og afsögn
Það er spurning hvort húsfundur
sé bær að taka ákvörðun um að
setja stjórn eða einstaka stjórnar-
menn af. Með því fer hann með
vissum hætti inn á valdsvið að-
alfundar. Samt sem áður er það
heimilt við sérstakar aðstæður.
Það helgast af neyðarsjónarmið-
um, eins konar félagslegum neyð-
arrétti. Þá getur stjórnarmaður
hvenær sem er sagt af sér. Stjórn-
armanni sem glatar félagsaðild
sinni og kjörgengi með sölu á eign
sinni, ber að segja af sér.
Verkefni og heimildir
Stjórnin fer með sameigin-
leg málefni milli funda. og get-
ur takið ákvarðanir sem lúta að
venjulegum daglegum rekstri og
hagsmunagæslu. Hún má láta
framkvæma minniháttar við-
hald og viðgerðir og gert brýnar
ráðstafanir. Sé hins vegar um að
ræða ráðstafanir og framkvæmd-
ir sem ganga lengra ber stjórn
áður að leggja þær fyrir húsfund.
Á það við um allar framkvæmd-
ir, sem eru verulegar hvað varð-
ar kostnað, umfang og óþægindi.
Gildir einu þótt um æskilegar og
jafnvel nauðsynlegar ráðstafanir
sé að ræða. Stjórnin hefur ekk-
ert sjálfstætt og endanlegt vald
og félagsmenn geta skotið öllum
ákvörðunum hennar til húsfund-
ar.
Stjórnarlaun
Það er meginregla að stjórnar-
störf eru ólaunuð. Þau eru laga-
skylda sem eigendum er almennt
skylt að axla án sérstakrar þókn-
unar. Það er hins vegar óþol-
andi og óréttlátt þegar stjórnar-
störf mæða árum saman á sömu
mönnum meðan aðrir koma sér
hjá stjórnarsetu. Þá er sanngjarnt
og eðlilegt að jafna metin með
launum til stjórnar. Stjórn getur
ekki á eigin spýtur tekið ákvörðun
um laun til sín, heldur verður að
taka slíka ákvörðun á húsfundi.
Stjórnarstörf geta verið mismik-
il eftir stærð húsa og umfangi
og eðli verkefna á hverjum tíma.
Stjórnarlaun geta verið eðlileg og
sanngjörn, til dæmis þegar staðið
er í stórræðum.
Húsfundaþjónusta
Stjórninni er heimilt innan vissra
marka að fela verktaka að ann-
ast tiltekin verkefni. Hún getur
til dæmis keypt aðstoð og ráð-
gjöf verkfræðinga, bókara, end-
urskoðenda og lögmanna, sé það
nauðsynlegt til að upplýsa mál og
skapa grundvöll fyrir upplýstum
ákvörðunum. Sé kostnaður um-
talsverður miðað við efni og að-
stæður verður stjórnin að fá sam-
þykki húsfundar áður. Sem dæmi
um verkefni sem stjórn getur
keypt án húsfundarsamþykktar er
aðstoð við fundahöld og funda-
stjórn. Það er oft nauðsynlegt að
fá sérfræðinga til ráðgjafar og að-
stoðar við fundi svo þeir fái sem
best þjónað hlutverki sínu. Hús-
eigendafélagið býður húsfélög-
um upp á slíka þjónustu, það er
lögfræðiaðstoð við undirbúning,
boðun og stjórnun funda og rit-
un fundagerða. Þessi þjónusta er
eftirsótt og byggð á langri reynslu,
þekkingu og sérfræðikunnáttu.
Hún tryggir löglega og farsæla
fundi og löglegar ákvarðanir sem
allir geta treyst; eigendur, stjórnir,
viðsemjendur og bankar.
Góð ráð dýr
Stjórnin hefur þröngar heimild-
ir til að fela öðrum verkefni sín
og skyldur. En ef ekki lánast að
kjósa stjórn eða stjórnarstörfin
eru eigendum ofviða er illt í efni.
Til eru fyrirtæki sem bjóða hús-
félögum að taka frá þeim stjórn-
arkaleikinn að meira eða minna
leyti. Dæmi eru um að stjórnir
fari huldu höfði og vísi eigendum
um allt á fyrirtæki út í bæ. Lög
leyfa slíkt innan vissra marka en
allsherjar fráhlaup stjórnar geng-
ur ekki. Þegar allt kemur til alls er
þjónustan einatt minni og kostn-
aðurinn meiri en menn töldu.
Hér gildir eins og um flest að ef
eitthvað virðist of gott til að vera
satt þá sé sú raunin. Svona fyrir-
tæki eiga fullan rétt á sér og þjón-
usta þeirra er yfirleitt þörf. Það
er hins vegar ástæða til að hvetja
eigendur og stjórnendur í fjöl-
eignarhúsum til að fara fetið í að
útvista lögboðin verkefni sín og
skyldur og vanda vel til samn-
inga. Ef of langt er gengið get-
ur það valdið stjórn og húsfélagi
miklum fjárhagslegum skakka-
föllum.
Sú skylda hvílir á stjórn að
hún haldi eigendum upplýstum
um allt sem máli getur skipt um
fjármál og rekstur húsfélagsins og
starfsemi þess. Starfsemi húsfé-
lags á að vera gegnsæ og þar eiga
engin leyndarmál eða pukur að
viðgangast.