Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Side 16
16 MÁNUDAGUR 1. mars 2010 FRÉTTIR
Mossad vinsæl
í Ísrael
Utanríkisleyniþjónusta Ísraels,
Mossad, hefur verið í sviðsljósinu
vegna meintrar aðildar hennar að
morði á Hamas-liða í Dubaí, en
heima í Ísrael hefur málið valdið
einhvers konar Mossad-æði.
Vinsældir Mossad hafa aldrei
verið meiri og Mossad-minjagrip-
ir seljast eins og heitar lummur og
fjöldi fólks lýsir löngun til að ganga
í raðir leyniþjónustunnar á vefsíðu
hennar. Á meðal þess sem nýtur
mikilla vinsælda eru hornspangar-
gleraugu í líkingu við þau sem fjór-
tán þeirra 26 sem grunaðir eru í
málinu notuðu og bolir með merki
Mossad eru nánast uppseldir.
Mál gegn breskum kaupsýslumanni,
Michael Mancini, sem fullyrti að
hann hefði fengið 60 punda sekt,
sem samsvarar um 12.000 krónum,
fyrir að snýta sér hefur verið fellt nið-
ur. Michael Mancini sagði að hann
hefði fengið sektina eftir að hafa not-
að vasaklút þar sem hann sat undir
stýri í kyrrstæðri bifreið sinni í um-
ferð í Ayr, hafnarbæ í Suðvestur-Skot-
landi.
Mancini neitaði að greiða sektina
og fastlega hafði verið búist við því
að málið endaði fyrir dómstólum, en
nú hafa saksóknarar tilkynnt að ekki
verði gripið til frekari aðgerða. Tals-
maður ákæruvaldsins sagði að „eft-
ir nánari eftirgrennslan og vandlega
íhugun á staðreyndum og aðstæðum
í málinu“ hefði niðurstaðan orðið sú
að ekki væri þörf frekari aðgerða.
Michael Mancini sagði í við-
tali við BBC að hann væri „ánægð-
ur með að almenn skynsemi hefði
sigrað“ og að hann teldi að yfirvöld
þyrftu að tileinka sér smá almenna
skynsemi og hafa áhyggjur af alvar-
legri hlutum.
Mancini lýsti í viðtalinu atburða-
rásinni og hvernig hann hefði sett
bifreið sína í handbremsu áður en
hann snýtti sér. Hann sagðist hafa
orðið „steinhissa“ þegar lögreglan
skikkaði hann út í kant og tjáði hon-
um að hann hefði ekki verið með
fulla stjórn á farartækinu. Mancini
bætti við að hann hefði verið mjög
kvefaður þegar atvikið átti sér stað í
október í fyrra.
Lögfræðingur Mancinis skrifaði
innheimtu sektargreiðslna orðsend-
ingu og sagði það vera með ólíkind-
um að sekt hefði verið gefin út við
slíkar aðstæður, en á þeim tíma stóð
ákæruvaldið á því fastar en fótun-
um að málið myndi enda fyrir rétti ef
sektin yrði ekki greidd.
Nú er ljóst að af því verður ekki.
Snýtti sér í kyrrstæðri bifreið og fékk sekt upp á 60 pund:
Neitaði að sætta sig við sekt
Nefrennsli getur verið
til óþæginda Breskur
kaupsýslumaður taldi sig
sektaðan fyrir að snýta sér.
MYND PHOTOS.COM
Einn öflugasti jarðskjálfti sem sög-
ur fara af reið yfir Chile á laugardag-
inn. Jarðskjálftinn, sem var 8,8 stig
á Richterskala, varð klukkan 6.34 að
íslenskum tíma um 115 kílómetra
norðaustur af borginni Concepcion
og 325 kílómetra suðvestur af höfuð-
borginni Santiago. Upptök skjálftans
voru á um 35 kílómetra dýpi og var
hann sá öflugasti sem orðið hefur í
Chile í um fimmtíu ár.
Opinber fjöldi látinna var í gær
214, en yfirvöld telja að að minnsta
kosti þrjú hundruð manns hafi far-
ist í skjálftanum. Þrátt fyrir að telja
megi lán hve fáir létust miðað við
hörku jarðskjálftans er ljóst að hann
olli verulegu tjóni á innviðum Chile.
Byggingar hrundu til grunna og olli
jarðskjálftinn flóðbylgju á Kyrrahafi.
Að minnsta kosti fjórir létust í flóð-
bylgju sem skall á chílesku eyjunum
Juan Fernandez og olli verulegu tjóni
í hafnarbænum Talcahuano.
Yfirvöld í Japan óttuðust að háar
flóðbylgjur kynnu að skella á strönd-
um landsins vegna jarðskjálftans, og
svipaða sögu var að segja af yfirvöld-
um á Kamsjatka-skaga í Rússlandi,
en sá ótti virtist ástæðulaus.
Erfitt verkefni nýs forseta
Jarðskjálftinn hefur haft áhrif á líf
tveggja milljóna í Chile, að sögn Mi-
chelle Bachelet, forseta landsins, og
embættismenn eru enn í óða önn að
meta hið „gríðarlega umfang eyði-
leggingarinnar“.
Ljóst er að jarðskjálftinn skilur
eftir sig verðugt verkefni fyrir millj-
arðamæringinn Sebastian Pinera,
sem var kjörinn nýr forseti Chile í
janúar og mun taka við embætti inn-
an tveggja vikna.
„Við erum að undirbúa okkur fyr-
ir viðbótarverkefni, verkefni sem
var ekki inn í áætlunum ríkisstjórn-
ar minnar: að ábyrgjast endurupp-
byggingu lands okkar,“ sagði Pinera
við fréttamenn á laugardaginn. Pin-
era sagði að verkefnið yrði viðamikið
og kostnaðarsamt.
Hagfræðingar hafa spáð því að
jarðskjálftinn muni hafa djúpstæð
áhrif á hag landsins vegna tjóns í iðn-
aðar- og landbúnaðargeira á þeim
svæðum sem verst urðu úti, og hugs-
anlega valda þrýstingi á gjaldeyri
landsins.
Á meðal þess sem stjórnvöld
standa frammi fyrir er að endur-
byggja um hálfa milljón heimila og
hundruð vega og hrundar brýr.
Fimmtán hæða íbúðahús hrundi
Í Concepcion búa um 670.000
manns og liggur borgin um 112 kíló-
HUNDRUÐ LÁTIN VEGNA JARÐSKJÁLFTA
Jarðskjálftinn sem reið yfir Chile á laugardag var miklu öflugri en sá sem reið yfir
Haítí í janúar. Þrátt fyrir að manntjón vegna skjálftanna sé engan veginn sambærilegt
er ljóst að skjálftinn í Chile mun hafa djúpstæð áhrif á efnahag landsins.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Mannskæð
flóð á Haítí
Að minnsta kosti átta manns hafa
látist vegna flóða á Haítí, að sögn
þarlendra embættismanna. Um
var að ræða flóð vegna mikillar
úrkomu í hafnarborginni Les Cay-
es og náði vatnsborðið 1,5 metra
hæð.
Að sögn embættismanna varð
sjúkrahús í borginni fyrir barð-
inu á flóðinu, sem og fangelsi þar
sem þurfti að flytja á brott um 400
fanga. Flóðin á Haítí eru nú fyrr á
ferðinni en vanalega sé miðað við
hefðbundinn rigningartíma þar.
Um ein milljón Haíta er enn
á vergangi vegna jarðskjálftans í
janúar sem kostaði allt að 230.000
mannslíf.
Vanafastur
bankaræningi
Þýskur ræningi rændi sama bank-
ann í Hamborg tvisvar sinnum á
innan við einum sólarhring. Ekki
nóg með það heldur var aðeins
liðin um vika frá því hann losnaði
úr fangelsi þar til hann gekk inn í
bankann og rændi hann.
Talsmaður lögreglunnar sagði
að maðurinn hefði farið inn í
banka í Hamborg á föstudag og
sagt: „Ég var hér í gær, og ég vil
pening í dag líka.“
Ræninginn komst undan með
450 evrur en fyrir tilstilli eftirlits-
myndavéla tókst lögreglunni að
hafa hendur í hári hans þrem-
ur tímum síðar. Að sögn lögregl-
unnar haft maðurinn nýlega lokið
afplánun vegna bankarána sem
hann framdi í Hamborg árin 2002
og 2004.
Telja má því nokkuð víst að
dómara þyki sem maðurinn hafi
sýnt einbeittan brotavilja.