Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Qupperneq 17
FRÉTTIR 1. mars 2010 MÁNUDAGUR 17
Áfrýjun Suu
Kyi hafnað
Hæstiréttur Mjanmar hafnaði á
föstudag áfrýjun Aung San Suu
Kyi, leiðtoga lýðræðissinna, um
að úrskurður um stofufangelsun
hennar yrði ógiltur. Aung San Suu
Kyi á eitt úrræði enn til áfrýjunar
og það er fyrir sérstökum dóm-
stól í Naypidaw, nýrri höfuðborg
Mjanmar.
Aung San Suu Kyi hefur verið
í fangelsi, stofufangelsi eða ann-
ars konar, mestan hluta síðustu
tveggja áratuga síðan lýðræðis-
flokkur hennar vann afburðasigur í
kosningum árið 1990. Herforingja-
stjórnin hefur aldrei viðurkennt
þau úrslit, en hefur heitið að halda
kosningar á þessu ári þótt engin
dagsetning hafi verið tilkynnt hvað
þær varðar.
Suu Kyi mun ekki geta boðið sig
fram þegar þar að kemur því hún
var gift útlendingi.
TigerText
fyrir iPhone
Ný viðbót fyrir iPhone-síma gerir
sendanda smáskilaboða kleift að
ákvarða endingu sendra skilaboða
og að þeim tíma loknum þurrkast
skilaboðin út í síma bæði sendanda
og viðtakanda. Það er skemmtileg
„tilviljun“ að viðbótin kallast Tiger-
Text og segja gárungarnir að kylfing-
urinn Tiger Woods hefði hugsanlega
óskað þess að TigerText hefði verið
til staðar þegar hann sendi hinum
ýmsu hjákonum sínum safarík skila-
boð.
Í tilkynningu frá framleiðanda
forritsins var nafn þess tilkomið
áður en raunir Woods hófust, að
hluta til vegna smáskilaboða.
Sekt vegna sjálfs-
vígstilraunar
Dómstóll í Omsk í Síberíu hefur
úrskurðað að rússneskur karl-
maður verði að greiða yfir 100.000
rúbl ur, um 430.000 krónur, í
lækniskostnað og skaðabætur til
foreldra stúlku sem hann lenti á
þegar hann reyndi að svipta sig lífi
með því að stökkva út um glugga
byggingar.
Stúlkan, sjö ára, sem hann lenti
á þurfti að vera á sjúkrahúsi í fleiri
mánuði eftir atvikið.
Maðurinn stökk út um glugga
á níundu hæð eftir deilur við fyrr-
verandi eiginkonu sína. Hann ætl-
aði að svipta sig lífi, sem fyrr segir,
en hafði greinilega ekki erindi sem
erfiði.
Eftir stendur að maðurinn er
enn á lífi, og vonandi sáttur við
það, en vissulega 430 þúsund
krónum fátækari en hann hefði
verið hefði lífsviljinn ekki gefið sig.
Um tíu þúsund Ítalar mótmæltu
í Róm um helgina því sem þeir
kölluðu tilraunir af hálfu Silvios
Berlusconi til að sniðganga lög
og rétt. Réttað er yfir Berlusconi í
tveimur málum en á þingi lands-
ins eru reifuð ný lög sem myndu
koma í veg fyrir að réttarhöldum
yfir honum yrði fram haldið. Mót-
mælendurnir sökuðu Berlusc-
oni um að grafa undan réttarkerfi
landsins.
Silvio Berlusconi lítur málið
eðlilega öðrum augum og hefur
fullyrt að hann sé fórnarlamb of-
sókna af hálfu réttarkerfisins sem
hann bar nýlega saman við réttar-
kerfi talibana.
Á föstudaginn sagði Berlusconi
stuðningsmönnum sínum að við
lýði væri „markvisst takmark“ að
steypa ríkisstjórn hans sem væri „í
höndum talibanagengis“.
Ummæli Berlusconis fóru fyr-
ir brjóstið á Angelo Bonelli, leið-
toga græningja, sem sagði þjóðina
búa við „svelti“ með tilliti til rétt-
arkerfisins. „Í dag er Berlusconi
hinn raunverulegi talibani sem vill
binda hendur dómaranna,“ sagði
Bonelli.
Landsamband ítalskra dómara
fordæmdi ummæli Silvios Berlus-
coni og sagði að um væri að ræða
„óþolandi stigmögnun móðgana
og árásargirni“. Forseti landsins,
Giorgio Napolitanu, sá sér ekki
annað fært en að biðja aðila að
hemja sig.
Réttarhöldin, sem hvíla líkt og
skuggi yfir Silvio Berlusconi, varða
annars vegar meintar mútur sem
hann á að hafa borið á breska lög-
fræðinginn David Mills svo sá síð-
arnefndi bæri ljúgvitni í fyrri rétt-
arhöldum, og hins vegar skattsvik
sem tengjast viðskiptum Berlusc-
onis áður en hann haslaði sér völl í
stjórnmálum.
Ef þau tvö nýju lagafrumvörp
sem eru til umræðu í þinginu ná
fram að ganga yrði bundinn endi
á fyrrnefnd réttarhöld gegn Silvio
Berlusconi.
Silvio Berlusconi er „hinn raunverulegi talibani“ segir leiðtogi græningja:
Mótmæli gegn Berlusconi í Róm
Ég á mér draum… Lítill vafi er á vilja
þessa mótmælanda í Róm. MYND AFP
HUNDRUÐ LÁTIN VEGNA JARÐSKJÁLFTA
Bílar á hvolfi Í höfuðborginni
Santiago voru bílflök og fallnir
rafmagnsstaurar um allar götur.
MYND AFP
metra suðvestur af miðju skjálftans
og hundruð manna þurftu að eyða
nóttinni úti við í tjöldum eða bráða-
birgðaskýlum.
Borgin var meira eða minna án
rafmagns og eyðilagðir bílar, falln-
ir rafmagnsstaurar og glerbrot fylltu
götur borgarinnar. Fimmtán hæða
íbúðahús hrundi til grunna og talið
er að fjöldi manns hafi misst lífið eða
lokast inni í rústunum.
Michelle Bachelet sagði að enn og
aftur hefðu náttúruöflin „látið reyna
á getu okkar til að glíma við erfiðleika
og haft betur“. Hún sagði að ærin
verkefni væru fram undan og allra
leiða væri leitað til að koma á allri
grunnþjónustu í landinu.
Nú þegar hefur verið lýst yfir
neyðarástandi í sex héruðum í Chile.
Manntjón víða
Að minnsta kosti 85 manns létust í
í grennd við Maule og vitað er um
þrettán dauðsföll í höfuðborginni
þar sem nokkrar byggingar hrundu,
þeirra á meðal bílastæðahús. Einn-
ig hafa borist fregnir af dauðsföllum í
O’Higgins, Biobio, Araucania og Val-
paraiso.
Í bænum Chillan tókst yfir tvö
hundruð föngum að flýja úr fangelsi
en í gær hafði tekist að handsama um
sextíu þeirra. Aðrir fangar fangelsisins
voru fluttir til Concepcion.
Sögufrægur miðbær í Talca, sem
er aðeins um eitt hundrað kílómetra
frá skjálftamiðjunni, hrundi að mestu
leyti. Veikbyggðustu húsin, sem aðal-
lega voru úr leir og stráum, hýstu flest-
öll verslun af einhverju tagi og voru að
mestu mannlaus þegar skjálftinn reið
yfir, en að minnsta kosti fimm mans
var bjargað úr rústum þeirra.
Mörg hundruð sinnum
öflugri skjálfti
Jarðeðlisfræðingurinn Robert Willi-
ams hjá Geological Survey í Banda-
ríkjunum sagði að jarðskjálftinn sem
reið yfir Chile hafi verið mörg hundr-
uð sinnum öflugri en jarðskjálftinn
sem reið yfir Haítí í janúar, þrátt fyrir
að upptökin hafi verið dýpra í iðrum
jarðar og manntjón engan veginn
sambærilegt.
Chile liggur á mótum Kyrrahafs-
og Suður-Ameríkuflekanna og er því
einstaklega berskjaldað gagnvart
jarðskjálftum. Öflugasti jarðskjálfti
sem riðið hefur yfir sama svæði í Chile
mældist 9,5 stig á Richterskala og átti
sér stað 22. maí 1960. Sá skjálfti varð
1.655 manns að bana og tvær milljón-
ir manna misstu heimili sitt.
Jarðskjálftinn á laugardag var
jafnöflugur og jarðskjálfti sem varð
undan ströndum Ekvador árið 1906
og telst vera sjöundasti öflugi jarð-
skjálftinn síðan skráning hófst.
Við erum að und-irbúa okkur fyrir
viðbótarverkefni, verk-
efni sem var ekki inn í
áætlunum ríkisstjórn-
ar minnar: að ábyrgj-
ast enduruppbyggingu
lands okkar.
Valdivia í Chile 1960 Öflugasti
jarðskjálfti sem riðið hefur yfir
Chile var 9,5 stig á Richterskala.
MYND WIKIMEDIA
Hallandi hús Í Conc-
epcion hrundi fimmtán
hæða íbúðahús nánast
til grunna. MYND AFP