Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Side 18
BÆJARSTJÓRA SLÁTRAÐ
n Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á
Akranesi, fékk slæma útreið í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins og varð
ekki á meðal
þeirra efstu. Gísli
var þingmaður
Samfylkingar en
gekk af trúnni á
sínum tíma og
gerðist sjálfstæð-
ismaður. Var því
þá spáð að það
væri einungis
tímaspursmál hvenær liðhlaupinn
yrði sleginn af. Víst er talið að for-
ysta Sjálfstæðisflokksins á Skagan-
um hafi plottað hann út. Nú er Gísli
landlaus í pólitík.
STYRKUR AGNESAR
n Agnes Bragadóttir, blaðamaður
Moggans, var hin grimmasta í pistli
um helgina þegar hún upplýsti að
útgefandi sinn,
Þór Sigfússon,
forstjóri Sjó-
vár, hefði log-
ið að blaðinu
um bótasjóð
tryggingafé-
lagsins. Sveinn
Andri Sveins-
son hæstarétt-
arlögmaður greip boltann á lofti og
skoraði á Agnesi í Pressupistli að
upplýsa um þá styrki sem hún sjálf
hefði þegið frá auðmönnum. Nefndi
hann ferðastyrki og styrki til dvalar
á heilsuhæli. Þar vísar hann vænt-
anlega til styrks á vegum Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar og FL-Group
til Agnesar.
HÚMORISTI Í VG
n Björn Valur Gíslason, þingmaður
vinstri-grænna og fyrrverandi skip-
stjóri, er einn
mesti bardaga-
maður Alþing-
is. Og húmor-
inn er gjarnan
skammt undan.
Forsíðufrétt
Moggans um
helgina snerist
um „djúpstæð-
an klofning“ innan VG. Var þar full-
yrt að Steingrímur J. Sigfússon og
Ögmundur Jónasson töluðust ekki
lengur við. Björn Valur setti inn
bloggfærslu, væntanlega af þessu
tilefni, sem er ein sú stysta sem sést
hefur. „Það má alltaf treysta Mogg-
anum“ var fyrirsögnin. Enginn texti
var fyrir neðan.
BALTASAR Í STUÐI
n Leikstjórinn Baltasar Kormákur
var í feiknastuði sem kynnir á Edd-
unni. Þar hraunaði hann yfir stjórn-
völd og útvarpsstjóra vegna þess
sveltis sem allur kvikmyndageirinn
stendur and-
spænis vegna
niðurskurðar.
Nefndi hann þó
þann kjark sem
Katrín Jakobs-
dóttir mennta-
málaráðherra
sýndi með því
að mæta á há-
tíðina. Baltasar stóðst ekki mátið
að senda Kolbrúnu Bergþórsdótt-
ur blaðamanni pillu en hún hafði
í pistli fagnað því að Ríkisútvarpið
væri hætt að senda út frá glyssam-
komunni. Vildi Baltasar að Kolbrún
fengi þá styttu sem var afgangs.
Hefurðu ekki séð stríðs-fyrirsagnirnar? Hefurðu ekki séð árásirnar og hefurðu ekki séð gaura-
ganginn?“ spurði Davíð Oddsson,
þá forsætisráðherra, Evu Bergþóru
Guðbergsdóttur fréttamann 24.
apríl 2004 eftir að stjórnarþing-
menn höfðu samþykkt lagafrum-
varp um eignarhald á fjölmiðlum.
Eva Bergþóra svaraði forsæt-isráðherra neitandi og tók hann þá fram að hún þyrfti að fá sér gleraugu. Davíð
sagði í sama viðtali að blaðamenn
á fjölmiðlum í eigu Norðurljósa, nú
365, hefðu ekkert frelsi. Spurður um
dæmi þess að eigendur misnotuðu
fjölmiðla sína svaraði Davíð: „Öll
blöðin í dag, öll.“
Á Davíðstímanum þótti sjálfstæðismönnum fátt ógeðfelldara en fjölmiðlar í eigu Baugs. Ástæðan var
að þeim fannst fjölmiðlarnir fjalla
á jákvæðan hátt um Jón Ásgeir Jó-
hannesson, en á neikvæðan hátt
um sjálfstæðismenn.
Davíð Oddsson er nú rit-stjóri Morgunblaðsins. Í blaðinu er lítið fjallað um einn ríkasta Íslend-
inginn, Guðbjörgu Matthíasdóttur
útgerðarkonu og milljarðamæring
í Vestmannaeyjum. Eina dæm-
ið á undanförnum mánuðum er
frétt sem snerist um að Guðbjörg
væri saklaus af því að hafa nýtt sér
innherjaupplýsingar þegar hún
seldi milljarðahlut í Glitni dagana
fyrir hrun. Guðbjörg er aðaleigandi
Morgunblaðsins.
Svarthöfði setur núorðið alltaf upp gleraugun þegar hann les Morgunblaðið. Þar kennir ýmissa grasa. Nánast
undantekningalaust er umfjöllun
um Sjálfstæðisflokkinn jákvæð, en
neikvæð um ríkisstjórnarflokkana.
Umfjöllun um eigendur blaðsins
er aldrei neikvæð. Umfjöllun um
hagsmunamál eigenda blaðsins er
alltaf hliðholl hagsmunum eigend-
anna. Morgunblaðið er neikvætt
gagnvart Evrópusambandinu og
afnámi kvótakerfisins og neikvætt
gagnvart ríkisstjórninni.
Leiðari Morgunblaðsins á föstudag fjallaði um efna-hagsskýrslu ASÍ og nauðsyn þess að stofna til stóriðju-
framkvæmda. Hann endaði á orð-
unum: „Mikið hefur vantað upp á
skilning á þessu samhengi, ekki síst
hjá hinni svokölluðu velferðarstjórn
sem nú situr verklítil við völd.“
Pistill í viðskiptahluta Mogg-ans á fimmtudag sem byrjaði á umfjöllun um efnahagserfiðleika Grikkja
endaði síðan í árás á íslensku ríkis-
stjórnina: „Því miður bendir ekk-
ert til þess að stjórnmálaleiðtogar
landsins hafi framsýni og dug til að
átta sig á þessari staðreynd.“
Agnes Bragadóttir blaða-maður hefur árum saman verið yfirlýstur pólitískur stuðningsmaður Dav-
íðs Oddssonar, sem nú er ritstjóri
hennar. Hún skrifar nú frétta-
röð um ríkisstjórnina. „Samfylk-
ingin tuktar þingmenn vinstri
grænna til“ var forsíðufyrirsögn-
in á fimmtudag. „Fullreynt að ná
samkomulagi við Breta og Hollend-
inga“ var forsíðugrein Agnesar á
föstudag. Fyrirsögnin var höfð eftir
nafnlausum viðmælanda Agnes-
ar, sem sagði efnislega það sama
og leiðtogar stjórnarandstöðunnar
hafa sagt undanfarna daga. Ekki
er vitað hvort fyrirsögnin var höfð
eftir Sigmundi Davíð Gunnlaugs-
syni eða Bjarna Benediktssyni. Það
er bara vitað að nafnlausa skoðunin
var gerð að aðalfyrirsögn á forsíðu.
Og Davíð ræður forsíðunni.
Kannski er miklu heil-brigðara að Morgunblaðið sé misnotað í pólitískum tilgangi en að Fréttablað-
ið og Stöð 2 séu notuð til að hygla
matvörubúðum. Í það minnsta hef-
ur Davíð ekkert verið að gagnrýna
Morgunblaðið og sjálfstæðismenn-
irnir halda bara áfram að vara við
misnotkun Jóns Ásgeirs.
Hverjum þykir sinn mis-notari fagur.
MOGGINN MISNOTAÐUR
„Það er alltaf
pressa á
kallinum,“ segir
Sigurjón
Kjartansson
handritshöf-
undur. Vinna er
nú hafin við
aðra syrpuna af
spennuþáttun-
um Pressa sem
sýndir voru á Stöð 2 fyrir tveimur
árum. Þættirnir fjalla um blaðamenn á
Póstinum og raunir þeirra en þættirnir
voru mjög vinsælir og fengu góða
dóma.
SIGURJÓN, ER
PRESSA Á ÞÉR?
„Þetta er auðvitað draum-
ur í dós fyrir þá sem eiga
jeppa á gjaldeyrislánun-
um. Núna geta þeir sett í
framdrifið
loksins.“
n Siggi stormur um snjó-
komuna á fimmtudag. - DV.is
„...því minn fjárhagur er
ekki nógu spennandi.“
n Upplýsingar um fjárhag Hönnu Maríu
Hjálmtýsdóttur voru á disk sem SPRON seldi
fyrir mistök. Hún var hissa en hafði ekki
áhyggjur af að einhver hefði komist í feitt. - DV
„Ólafur,
komdu upp í“
n Dorrit Moussaieff lék á als
oddi þegar forsetahjónin
heimsóttu Norðlingaskóla. - DV
„Frumsýning fyrir mér er
ekkert sérstaklega
ánægjulegt
fyrirbæri.“
n Stefán Jónsson
frumsýndi Hænuungana um
helgina. - DV
„Ég er enginn glæpon.“
n Jóhannes Jónsson í Bónus
sagði gagnrýni á sig oft
ósanngjarna. - DV
„Út af því að það voru
einhverjir að eyða pen-
ingum sem voru ekki til.“
n Fermingarbarnið Arna Steinunn
Jónasdóttir hafði orsakir kreppunnar alveg á
hreinu. - DV
Gull og grjót
Það er ríkisstjórninni til skammar og lýsandi dæmi um forheimsku að skera þannig niður framlög til kvikmyndagerðar að greinin
lendi við hungurmörk. Gerð kvikmynda
og sjónvarpsefnis er stór hluti af menn-
ingararfi þjóðarinnar og samtímasögu.
Viðurkennt er að hver króna sem ríkið
leggur til greinarinnar skilar sér margfalt
til baka. Það er gæfuleysi núverandi rík-
isstjórnar að geta ekki greint á milli þess
sem engu skilar í þjóðarbúið og þess sem
skapar allri þjóðinni arð. Önnur verðmæti
liggja í menningunni sem greinin skilur
eftir fyrir komandi kynslóðir. Ísland býr
við þá gæfu að eiga fjöldann allan af hæfu
fólki til að gera kvikmyndir. Þessi hópur
hefur orðið til vegna þeirrar grósku sem
hefur átt sér stað í greininni. Með niður-
skurðinum glatast reynsla og þekking
sem hefur verið byggð upp með úthaldi
og elju mörg undanfarin ár. Þjóðin mun
þurfa að horfa upp á atgervisflótta vegna
þessa og reynsla glutrast niður og hverf-
ur. Aðförin að kvikmyndagerðarfólki er
til dæmis um sauðshátt þeirra sem eiga
að stýra þjóðinni út úr kreppunni. Ráða-
menn eru tilbúnir til þess að verja þús-
undir óþarfra starfa í opinbera geiranum
á meðan einkafyrirtæki og heimili ramba
á barmi gjaldþrots. Þeir þekkja ekki mun
á arðsemi og sóun. Þetta kristallast í nær
öllu sem er að gerast þessa dagana. Lítil
áhersla er á það að örva hagvöxt með því
að ýta undir framleiðslu. Ef rökrétt hugs-
un væri til staðar í kerfinu myndu menn
skilja að framleiðsla kvikmynda er ekki
aðeins atvinnuskapandi heldur líka arð-
bær. Það er táknrænt í þessu samhengi
að Ríkisútvarpið skyldi hafa hent út verð-
launahátíð kvikmyndagerðarfólks, Edd-
unni. Einkafyrirtæki tók hátíðina upp á
sína arma. Framganga ríkisstjórnarinn-
ar í þessu máli er klár vísbending um að
kreppan verður mun langvinnari en hún
annars þurfti að verða. Ástæðan er sú að
stjórnvöld þekkja ekki góðmálma. Þau
henda gullinu en hirða grjótið.
xxx
18 MÁNUDAGUR 1. mars 2010 UMRÆÐA
SANDKORN
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Sverrir Arngrímsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRI:
Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
LEIÐARI
SPURNINGIN
SVARTHÖFÐI
BÓKSTAFLEGA
REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Þeir þekkja ekki mun á arðsemi og sóun.