Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Side 20
Bensínlaus krossaraleikur
LEIKLESTUR Á AKUREYRI
Leiklestur verður haldinn í Samkomuhúsinu
á Akureyri næsta miðvikudag en það eru
leikarar úr Leikfélagi Akureyrar sem lesa
upp úr verkum eftir Böðvar Guðmundsson,
Hallgrím Helgason, Ingibjörgu Hjartardótt-
ur og Dario Fo og Fröncu Rame. lesturinn
hefst klukkan 21.
Á MÁNUDEGI
20 MÁNUDAGUR 1. mars 2010 FÓKUS
RISASÝNING Í
REYKJADAL
Leikdeild Eflingar í Reykjadal frum-
sýndi nýtt leikverk, Ólafíu, nú um
helgina. Höfundur er heimamað-
urinn Hörður Þór Benónýsson og
leikstjóri er Arnór Benónýsson. Í
sýningunni eru sautján frumsamin
lög eftir Jaan Alavere sem jafnframt
er tónlistarstjóri sýningarinnar.
Alls koma tuttugu og þrír leikarar
fram í sýningunni og þá sér fimm
manna hljómsveit um tónlistarflutn-
ing. Þessi fjölmenni leikarahópur
er samsettur af nokkrum reyndum
leikurum sem hafa verið burðarásar
og kjölfesta leiklistarlífs í Reykjadal
síðasta áratuginn, í bland við ungt
og efnilegt fólk sem sumt hvert er
komið með góða reynslu af því að
stíga á svið.
MAMMA GÓGÓ
MEÐ ÞRJÚ
TILBOÐ
Kvikmynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar Mamma Gógó er í útrás en
myndin hefur hlotið góðar undir-
tektir hjá erlendum sölufyrirtækj-
um jafnt í Evrópu og Bandaríkj-
unum eftir kvikmyndahátíðina í
Berlín sem haldin var nú á dög-
unum. Nú þegar liggja fyrir til-
boð frá þremur sölufyrirtækjum
í Evrópu og einu í Bandaríkjun-
um en fagaðilar þar í landi hafa
gefið myndinni sérstakan gaum
eftir velgengni heimildarmyndar
Friðriks Þórs, Sólskinsdrengsins, í
Bandaríkjunum.
Mamma Gógó hefur hlotið
góða aðsókn og feiknagóða dóma
á heimamarkaði en myndin
verður bráðlega frumsýnd í kvik-
myndahúsum í Noregi og Þýska-
landi. Aðstandendur myndar-
innar bíða nú eftir svörum frá
kvikmyndahátíðinni í Cannes en
vonast er til að þar verði myndin
frumsýnd fyrir alþjóðlegan mark-
að í vor.
VINALJÓÐ
Í SALNUM
Söngkonan Hera Ólafsdóttir heldur
útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi
miðvikudaginn 3. mars næstkom-
andi. Plata hennar, Vinaljóð, kom út
fyrir síðustu jól og er samansafn af
fjórtán sænskum vísum og þjóðlög-
um sem þýdd hafa verið á íslensku.
Með henni verða Daði Birgisson
á píanó, Börkur Birgisson á gítar,
Þorgrímur Jónsson á kontrabassa,
Scott McLemore á slagverk, Monika
Abendroth á hörpu og Roland Hart-
well stjórnar strengjasveit. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 20.
Nýjasta útspil THQ-tölvuleikjafram-
leiðandans í MX vs. ATV-seríunni
er leikurinn Reflex. Hér er spilurum
og áhugamönnum um krossara og
utanvegaakstur gefinn kostur á að
skella sér á bak ótal farartækjum og
reyna sig í einni líkamlega erfiðustu
íþrótt veraldar.
Þrátt fyrir að ökumaðurinn sem
þú stjórnar virðist í toppformi og láti
lætin ekki á sig fá þá reynir leikurinn
ekki síst á spilarann sjálfan. Og þá
helst þolinmæðina, gagnvart hinum
fjölmörgu göllum og vanköntum sem
á leiknum er að finna.
En byrjum á því jákvæða. Stjórn-
un hjólanna hefur verið tekin í gegn
frá fyrri leikjum og er krefjandi og
skemmtileg þegar spilarinn nær tök-
um á grunnatriðum. Leikurinn býður
upp á ótal keppnir, mót og skemmti-
lega hannaðar brautir. Sérstaklega
þykir raunverulegt hvernig brautin
sjálf afmyndast eftir því sem kepp-
endur aka um hana oftar. Undirrit-
aður var spenntur fyrir þessum leik
enda áhugamaður um góða kapp-
akstursleiki. Verður að segjast að leik-
urinn veldur miklum vonbrigðum.
Fyrir það fyrsta er grafíkin eigin-
lega skref aftur á bak miðað við að
leikurinn sé spilaður á Playstation 3.
Hljóðið er heldur ekki beinlínis til út-
flutnings, og þá meina ég vélarhljóð-
in. Ég er ekki frá því að ég hafi feng-
ið raunverulegra og betra hljóð úr
sláttuorfinu sem ég handlék í gamla
daga í vinnuskólanum. Ófyrirgef-
anlegt í leik sem þessum og spillir
stemningunni.
Heilt yfir myndi ég segja að leik-
urinn ætti að geta enst spilurum ansi
vel í ljósi þeirra fjölmörgu möguleika
sem eru í boði. Fanatískir áhuga-
menn um mótorkrossíþróttir og allan
þann bransa ættu að geta fengið eitt-
hvað fyrir sinn snúð. En ég fullyrði að
það hljóti að vera til betri svona leik-
ir þarna úti en þessi. Prófið demóið
fyrst, sjáið síðan til hvort þessi sé fyrir
ykkur.
Sigurður Mikael Jónsson
MX VS. ATV:
REFLEX
Tegund: Mótorkrossleikur
Spilast á: PS3, Xbox 360
TÖLVULEIKIR
Clarice Precious Jones lifir ömurlegu
lífi, svo ömurlegu að orð fá því vart
lýst. Hún er sextán ára gamall offitu-
sjúklingur sem er nær ólæs, hún býr
við ógeðslegar heimilisaðstæður þar
sem hún er niðurlægð og barin auk
þess að eiga eitt barn eftir nauðgun
föður síns og annað á leiðinni eft-
ir aðra nauðgun. Hana dreymir um
betra líf og reynir með dagdraum-
um sínum að flýja grimman og kald-
an veruleikann sem bíður hennar í
hvert skipti sem hún opnar augun.
Í myndinni fylgjum við Precious í
gegnum skammt tímabil í lífi henn-
ar þar sem hún kemst inn í sérstakan
skóla fyrir stelpur sem eru á röngum
vegi í lífinu en þar eignast hún í raun
sínar fyrstu vinkonur. Hún hittir fólk
sem vill hjálpa henni í fyrsta skiptið
eins og kennarann sinn, fröken Rain,
og félagsmálafulltrúann, fröken
Weiss, sem leikin er af Mariuh Carey
og gerir hún það vel. Söguþráðurinn
er ekkert ýkja flókinn, þetta er ein-
faldlega hádramatík þar sem áhorf-
andinn er þvingaður til þess að horfa
upp á algjöran viðbjóð. Viðbjóð sem
Precious þekkir ekki sem neitt annað
en raunveruleikann.
Precious er leikin af hinni ungu
Gabourey Sidebe sem var mönuð
í hlutverkið af vinum sínum þeg-
ar illa gekk að finna leikkonu. Það
er vægt til orða tekið þegar sagt er
að hún standi sig stórkostlega. Þrátt
fyrir að vera nauðgari og aumingi
er faðir hennar þó ekki illmennið á
heimilinu, ótrúlegt en satt. Illmenn-
ið er móðir hennar, Mary, leikin af
Mo’Nique.
Mary er aumingi í orðsins fyllstu
merkingu. Hún situr heima allan
daginn, reykir sígó og horfir á spurn-
ingaþætti á milli þess sem hún læt-
ur Precious steikja handa sér mat og
niðurlægir hana með barsmíðum og
andlegu ofbeldi. Þegar féló kemur
svo í heimsókn setur hún upp spari-
hárkolluna og spariandlitið og lætur
sem ekkert sé að. Sjálf varð Mo’Nique
fyrir svipuðu ofbeldi í æsku og nýtir
hún sér það í hlutverkið. Hún skil-
ar því líka á stórfenglegan hátt eins
og verðlaunin sem hún hefur hlotið
sýna. Þeir sem horfa á myndina vilja
ekkert annað en meiða móðurina
eftir áhorfið, svo vel skilar hún sínu.
Í rauninni er ekkert endaplott
þannig séð í myndinni. Áhorfand-
inn fær í henni innsýn inn í veruleika
sem leikstjórinn, Lee Daniels, nær
að stjórna vel. Hann treður ekki inn
í myndina einhverri óþarfa dramatík
heldur lætur leikarana sjá um að bera
hana uppi sem tekst vel. Hún skilur á
endanum lítið eftir sig nema eymd
og atriði sem í raun ég hefði ekki vilj-
að sjá. Það verður samt ekki hlaupið
frá því að Precious er einstaklega vel
leikin mynd á alla kanta, vel leikstýrt,
einföld og gífurlega áhrifamikil.
Tómas Þór Þórðarson
ÖMURLEGT LÍF
UNGRAR STÚLKU
PRECIOUS
Leikstjóri: Lee Daniels.
Aðalhlutverk: Gabourey „Gabby“
Sidibe, Paula Patton, Mo‘Nique,
Mariah Carey, Sherri Shepherd,
Lenny Kravitz.
KVIKMYNDIR