Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Page 22
22 MÁNUDAGUR 1. mars 2010 FRÉTTIR
„Það hringdi í mig maður, hafði frétt af bíla-
veseninu hjá mér, og hann dró bílinn minn
inn í skúr hjá sér og ætlar að hjálpa mér með
hann. Ég verð að viðurkenna að ég hélt að
svona fólk væri ekki lengur til,“ segur Þóra
Arnórsdóttir, sjónvarpsmaður ársins, en
bíllinn hennar bilaði skömmu fyrir Edduhá-
tíðina þar sem Þóra fór heim með tvær stytt-
ur.
Merkilegt að vinna Boga
Þóra sagði að stemningin á Eddunni hefði
verið mjög góð, allir voru í sínu besta skapi
og ljóst að kreppan og allur sá niðurskurð-
ur sem boðaður hefur verið hefur þétt kvik-
myndagerðarfólki saman. „Þetta var alveg
ferlega skemmtilegt. Það er ekki hægt að
segja annað þegar maður kemur heim með
tvær styttur af þremur mögulegum. Ég átti
ekkert sérstaklega von á því að vinna sjón-
varpsmaður ársins ef ég á að segja alveg eins
og er. Fólk hefur náttúrlega kannski ekki al-
veg komist hjá því að sjá mig ekki því ég var í
Kastljósinu, Útsvari og með þættina Hrunið.
En þegar maður er að keppa í sama flokki og
Bogi Ágústsson - mér finnst mjög merkilegt
að vinna mann eins og hann og alla hina í
rauninni,“ segir Þóra.
Stytturnar sem gefnar eru sigurvegurun-
um eru umdeildar, deilt er um fegurð þeirra.
Þóra segist hins vegar stolt af styttunum og
þær sem hún hafi unnið séu mikil stofu-
prýði. „Ég set þessar við hliðina á þeim sem
ég átti fyrir. Á maður ekki að hampa verð-
launum sem maður fær. Það er samt nóg
pláss á skenkum ennþá,“ segir Þóra og hlær.
Vaktirnar og Bjarnfreðarson
= Sex Eddur
Fangavaktin og Bjarnfreðarson unnu flest-
ar Eddur í ár eða sex Eddur hvort. Meðal
annars fyrir bestu bíómyndina, besta leikna
sjónvarpsefnið, besta leikara í karlhlutverki,
Jón Gnarr, og besta meðleikara í karlhlut-
verki, Björn Thors.
Þóra vann sjónvarpsmann ársins og þátt-
urinn hennar Útsvar vann besta skemmti-
þátt ársins. Báðir þættirnir hans Egils Helga-
sonar, Silfrið og Kiljan, unnu til verðlauna.
Mamma Gógó vann þrjár Eddur, fyrir
tónlist, leikmynd og Kristbjörg Kjeld fyrir
aðalhlutverk myndarinnar.
Algjör Sveppi og leitin að Villa vann besta
barnaefnið, Draumalandið bestu heimild-
armyndina og íslenska þjóðin vann heið-
ursverðlaunin fyrir að styðja vel við íslenska
framleiðslu.
ENN NÓG PLÁSS
Á SKENKNUM
SIGURVEGARAR
Heiðursverðlaun 2010: Íslenska þjóðin
Kvikmynd ársins: Bjarnfreðarson
Leikið sjónvarpsefni ársins: Fangavaktin
Stuttmynd ársins: Njálsgata
Barnaefni ársins: Algjör Sveppi og leitin að
Villa
Skemmtiþáttur ársins: Útsvar
Frétta- eða viðtalsþáttur ársins: Silfur Egils
Menningar- eða lífstílsþáttur ársins: Kiljan
Sjónvarpsmaður ársins: Þóra Arnórsdóttir
Heimildarmynd ársins: Draumalandið
Leikkona ársins í aðalhlutverki: Kristbjörg
Kjeld (Mamma Gógó)
Leikari ársins í aðalhlutverki: Jón Gnarr
(Bjarnfreðarson og Fangavaktin)
Meðleikkona ársins: Guðrún Gísladóttir
(Desember)
Meðleikari ársins: Björn Thors (Fangavaktin)
Handrit ársins: Jóhann Ævar Grímsson, Jón
Gnarr, Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann
Sigfússon og Ragnar Bragason (Bjarnfreð-
arson)
Kvikmyndataka ársins: Bergsteinn
Björgúlfsson (Bjarnfreðarson)
Tónlist ársins: Hilmar Örn Hilmarsson
(Mamma Gógó)
Leikmynd ársins: Árni Páll Jóhannsson
(Mamma Gógó)
Búningar ársins: Helga Rós V. Hannam
(Bjarnfreðarson og Fangavaktin)
Gervi ársins: Ragna Fossberg (Áramóta-
skaupið 2009)
Hljóð ársins: Gunnar Árnason (Hamarinn)
Klipping ársins: Sverrir Kristjánsson og
Guðni Halldórsson (Fangavaktin)
Leikstjóri ársins: Ragnar Bragason (Bjarn-
freðarson og Fangavaktin)
Tvær styttur
Þóra fékk þessa styttu fyrir Útsvar.
Flottur
Baltasar sló í gegn sem kynnir.
MYNDIR EGGERT
Tómhentur heim
Karl Berndsen fékk
engin verðlaun.
Allt að gerast Það var mikið
stuð á sviðinu þegar Egill Helga-
son fékk Edduna fyrir Silfur Egils.
Flott par Ragnhildur Magn-
úsdóttir Djúpu laugar-drottn-
ing ásamt Mikael Torfasyni.
Í sparigallanum
Vera og Þorsteinn Blær
voru sæt saman.
Grín og glens Pétur Jóhann
mætti með kærustuna sína,
Sigrúnu Halldórsdóttur.