Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2010, Síða 24
Tækling Ryans Shawcross á hinn
unga Aaron Ramsey var hrika-
leg. Svo ljót var hún að Sky-stöðin
ákvað að endursýna ekki atvikið.
Leikmönnunum í kring var brugð-
ið og það sást. Ramsey verður frá út
tímabilið og jafnvel talað um að ferli
hans sé ógnað.
Shawcross hefur beðist afsökun-
ar og Stoke-arar hafa komið honum
til varnar. Segja að hann sé ekkert
illmenni. En Shawcross hefur áður
meitt Arsenal-menn.
Hann tæklaði eitt sinn Francis
Jeffers, sem þá var leikmaður Ars-
enal, svo illa í varaliðsleik að hann
ökklabrotnaði. Þá sögðu Stoke-arar
að Shawcross væri ekkert illmenni.
Þá tók hann Emmanuel Adebayor
svo illa niður í viðureign liðanna á
Brittania-vellinum að Tógómað-
urinn lá óvígur eftir. Var hann frá
í þrjár vikur eftir tæklinguna. Þá
sagði Arsene Wenger. „Haldið þið
að Shawcross hafi verið að reyna
við boltann þegar hann tæklaði Ad-
ebayor. Hann flaug af vellinum.“
Stoke-arar voru fljótir að koma sín-
um manni til varnar og sögðu hann
ekkert illmenni.
Tveimur tímum eftir að hafa
gengið grátandi af velli var
Shawcross valinn í enska landslið-
ið, því þrátt fyrir að vera oft í bókum
dómarans hefur Shawcross verið
einn besti varnarmaður deildarinn-
ar í ár.
benni@dv.is
Ryan Shawcross hefur áður tæklað Arsenal-menn illa.
Hatar Shawcross Arsenal?
ENN TÖFRAR Í SKÓM FOWLERS Robbie Fowler, fyrrverandi framherji Liverpool, gerir
það gott í Ástralíu þessa dagana en á lokahófi North Queensland Fury sankaði hann að sér verðlaunum.
Fowler var kjörinn leikmaður ársins hjá félaginu og liðsfélagar hans völdu hann einnig besta leikmann-
inn. Þá fékk hann einnig gullskóinn fyrir níu mörk á tímabilinu. Fowler er einn þekktasti leikmað-
urinn sem hefur spilað í áströlsku deildinni. „Robbie hefur verið frábær fyrir okkur,“ sagði Don
Matheson formaður Fury, en Fowler sem er 34 ára hefur sýnt að það eru enn töfrar í hans
skóm. „Við vonuðumst til að hann skoraði mörk fyrir okkur og hann gerði það og sum
markanna voru meðal þeirra flottustu sem við höfum séð í A-deildinni á tímabilinu.“
Fowler er samningsbundinn félaginu í ár til viðbótar.
UMSJÓN: BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON, benni@dv.is
24 MÁNUDAGUR 1. mars 2010
Haukar og Fram eru bikarmeistarar árið 2010. Valsmönnum mistókst að fagna tvöfalt en bæði karla- og
kvennalið félagsins voru í úrslitum. Haukar fögnuðu sínum fyrsta bikartitli síðan 2002 eftir 23-15 sigur á Val
þar sem Birkir Ívar Guðmundsson fór á kostum. Framkonur unnu Val 20-19 eftir æsilegar lokamínútur.
„Ég hafði mjög góða tilfinningu fyrir
þessu í 45 mínútur en svo var þetta
alveg hræðilegt. Ekkert annað um
það að segja,“ segir Óskar Bjarni
Óskarsson, þjálfari Valsmanna, sem
varð að játa sig sigraðan gegn Aroni
Kristjánssyni, þjálfara Hauka, og
hans mönnum, 23-15, í ótrúlegum
handboltaleik. Haukar bundu þar
með enda á sigurgöngu Vals í bik-
arnum en Valsmenn höfðu unnið
bikarinn síðustu tvö ár en Haukar
unnu bikarinn síðast árið 2002.
Eins og tölurnar gefa til kynna
var varnarleikur í aðalhlutverkum
en í stöðunni 14-14 skipti Aron um
vörn, fór í 6-0, og Haukarnir hrein-
lega keyrðu yfir Valsmenn. Skoruðu
nánast að vild. „Það verður bara að
segjast eins og er - þetta var ekki
auðveld vika,“ bætti Óskar við en
fjölmargir leikmenn Vals hafa þurft
að vera í borgaralegum klæðnaði
að undanförnu eftir að hafa meiðst.
Bekkjarstjórnun Haukamanna var
til fyrirmyndar í leiknum og Aron
var greinilega vel undirbúinn.
Hungrið var mikið hjá Hauk-
unum, þarna voru menn saman-
komnir sem vildu vinna. Björgvin
Hólmgeirsson fór mikinn í sókn-
arleiknum, sérstaklega þegar hann
spilaði hægra megin. Skoraði þá
nokkur mörk, fiskaði mann út af,
víti og lagði upp mörk fyrir félaga
sína. Þá var Birkir Ívar nánast í rugl-
inu, hann varði gríðarlega vel og var
potturinn og pannan í leik Hauka.
Íris og Pavla hetjur Fram
Fram hrósaði sigri kvennaflokki eft-
ir dramatískan 20-19 sigur gegn Val.
Þetta er þrettándi bikarmeistaratit-
ill kvennaliðs Fram en ellefu ár eru
liðin síðan liðið vann síðast. Staðan
var 19-14 fyrir Fram skömmu fyr-
ir leikslok en þá skipti Valur í gríð-
arlega framliggjandi vörn og leik-
urinn snerist. Framarar fundu ekki
svör og Valur náði að jafna 19-19.
Berglind Íris Hansdóttir hjá Val fór
á kostum á þeim leikkafla og hún
náði svo að verja úr dauðafæri eft-
ir það þannig að Valsstúlkur voru
skyndilega komnar með pálmann í
hendurnar og möguleika á að stela
sigrinum á lokamínútunni. Þær
fóru hins vegar illa að ráði sínu í
sókninni og misstu boltann í hend-
urnar á Framstúlkum sem brunuðu
í sókn á lokaandartökunum.
Berglind Íris varði aftur meist-
aralega en Pavla Nevarilova náði
á ótrúlegan hátt að slá boltann
inn í markið af línunni. Valskonur
brunuðu í sókn, náðu góðu skoti
að markinu sem Björk Símonar-
dóttir varði og leiktíminn rann út.
Dramat ískur sigur Framara stað-
reynd.
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
BIKARBIÐ Á ENDA
Gleði og glaumur
Haukamenn voru glaðir
í bragði - enda fyrsti
bikartitill þeirra í átta ár.
11 ára bið á enda Framkonur
unnu síðast bikarinn 1999.
Tveir góðir Aron Kristjánsson og Óskar
Ármannsson fóru mikinn á hliðarlínunni.
Hér að kyssa bikarinn.
The Sentinel Ryan Shawcross ökkla-
braut Francis Jeffers í varaliðsleik.
Krókódílatár Ryan Shawcross gengur
af velli.
Hrikaleg aðkoma Leikmönnum beggja
liða var mjög brugðið - enda brotið ljótt.