Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Side 4
4 MÁNUDAGUR 3. maí 2010 FRÉTTIR
www.airfree.com • www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Airfree lofthreinsitækið
• Byggir á nýrri tækni sem eyðir
ryki, frjókornum og gæludýraflösu
• Eyðir ólykt, bakteríum, vírusum, myglu og öðrum örverum
• Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt – tilvalið í svefnherbergið og á skrifstofuna
Betra
loft
betri
líðan
Engin ákvörðun um
þorskkvóta
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra
segir að engin ákvörðun hafi verið
tekin um að auka þorskkvóta í sum-
ar. Jón segir í samtali við RÚV að sex
þúsund tonn af botnfiski séu til ráð-
stöfunar í sumar vegna strandveiða.
Þessi afli verði ekki tekinn af öðrum
kvóta. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
hafa meðal annars látið þá skoðun
sína í ljós að auka þurfi þorskkvóta.
Styrkir til
bókakaupa
Félag íslenskra bókaútgefenda hefur
úthlutað styrkjum úr nýstofnuðum
skólasafnasjóði til bókasafna grunn-
skólanna. Sjóðurinn er stofnaður til
þess að vekja athygli á þeim niður-
skurði sem hefur orðið á framlög-
um til bókasafna grunnskóla um allt
land.
Tíu skólar voru dregnir út í beinni
útsendingu á Rás 2 og hljóta skóla-
bókasöfnin hvert um sig 30 þúsund
króna styrk til bókakaupa.
Miklar lífslíkur
Bæði karlar og konur á Íslandi og á
Kýpur eiga mestu lífslíkur af öllum
þjóðum heimsins, samkvæmt nýrri
rannsókn sem birt var í síðustu viku.
Rannsóknin var mjög umfangsmik-
il, því hún var gerð á 40 ára tímabili
frá árunum 1970 til 2010. Rann-
sakendur komust að því að bilið á
milli þeirra með hæstu lífslíkurnar
og þeirra með lægstu lífslíkurnar sé
að breikka. Rannsóknin var birt á
föstudaginn í breska læknablaðinu
Lancet.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrver-
andi forstjóri Baugs, bauð Þórhalli
Gunnarssyni, fyrrverandi ritstjóra
Kastljóssins og dagskrárstjóra RÚV,
200 milljónir króna fyrir það eitt að
koma yfir á Stöð 2. DV hefur áreið-
anlegar heimildir fyrir þessu.
Það var fyrir tveimur árum sem
eigandi 365, Jón Ásgeir, ræddi við
Þórhall og kynnti þetta kostaboð
fyrir honum. Þórhallur átti að fá
milljónirnar 200 fyrir það eitt að
flytja sig af RÚV yfir til Stöðvar 2.
Þar átti hann að taka við stjórn-
unarstöðu á fréttastofu stöðvar-
innar. Samkvæmt heimildum DV
lagði fjölmiðlakóngurinn fram
tveggja ára starfssamning og bauð
sjónvarpsmanninum 200 hundr-
uð milljónir fyrir það eitt að skrifa
undir. Í ofanálag buðust honum
vegleg mánaðarlaun fyrir störf sín.
Milliliðalaust á 101 hóteli
Fundur þeirra Jóns Ásgeirs
og Þórhalls fór fram á 101
hóteli, hóteli í eigu for-
stjórans fyrrverandi og
eiginkonu hans, Ingi-
bjargar Pálmadóttur. Það
var því milliliðalaust sem
Jón Ásgeir bauð sjónvarps-
manninum milljónirnar en
þá var hann aðaleigandi Stöðv-
ar 2. Í dag er það Ingibjörg sem er
skráð fyrir hlutnum og því stærsti
eigandinn.
Hefði Þórhall-
ur tekið hinu
myndarlega
boði Jóns Ás-
geirs hefði
hann sleg-
ist í hóp
fjölmiðla-
manna
sem
fengnir
voru yfir
til Stöðv-
ar 2 frá RÚV. Áður
höfðu þau Logi
Bergmann Eiðs-
son, Steingrímur
Sævar Ólafsson og
Svanhildur Hólm
farið þá leið. Á
sama
tíma og Logi Bergmann fór yfir
flutti Þórhallur sig öfuga leið, af
Stöð 2, þar sem hann hafði slegið
í gegn sem þáttastjórnandi, yfir til
RÚV.
Þess ber að geta að Þórhallur
hafnaði milljónaboðinu frá Jóni
Ásgeiri.
Sagði upp
Þórhallur afþakkaði sem sagt
boð auðmannsins og hélt áfram
störfum sínum hjá Sjónvarpinu.
Þar sagði hann hins vegar starfi
sínu lausu í janúar síðastliðin-
um af persónulegum ástæðum og
enn sem komið er hefur hann ekk-
ert látið frekar uppi um þær ástæð-
ur. Ákvörðun um að hætta sagði
hann í samtali við DV hafa blund-
að í sér um nokkurt skeið. „Ég sagði
ekki upp út af öðrum tækifærum.
Ég er ekki að fara í eitthvað ann-
að, það er ekkert svoleiðis. Þetta er
af persónulegum ástæðum, það er
ekki flóknara og ég vil ekki greina
frá því nánar. Þessi ákvörðun var
tekin í samráði inni á heimilinu,“
sagði Þórhallur.
DV setti sig í samband við Þór-
hall í þeirri von að ræða tilboð Jóns
Ásgeirs á sínum tíma. Hann vildi
ekki ræða málið þegar það var bor-
ið undir hann. „Ég vil hvorki stað-
festa þetta né tjá mig um þetta,“
segir Þórhallur.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Baugs, bauð Þórhalli Gunnarssyni
sjónvarpsmanni hundruð milljóna fyrir að yfirgefa RÚV og koma yfir á Stöð 2. Þetta
var fyrir tveimur árum og milljónirnar boðnar fyrir að skrifa undir tveggja ára samn-
ing. Ritstjórinn fyrrverandi afþakkaði boðið og hélt áfram starfi sínu í Kastljósinu og
sem dagskrárstjóri Sjónvarpsins.
BAUÐ ÞÓRHALLI
200 MILLJÓNIR
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ég vil hvorki staðfesta þetta
né tjá mig um þetta.
200 milljónir Samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum DV bauð Jón Ásgeir sjón-
varpsmanninum Þórhalli 200 milljónir
fyrir að koma yfir á Stöð 2. MYND BIG
Kostaboð Þrátt fyrir
milljónirnar mörgu neitaði
Þórhallur boðinu og hélt
áfram starfi sínu sem
dagskrárstjóri hjá RÚV og
ristjóri Kastljóssins.
Rúmlega fimmtugur íslenskur karl-
maður lést á sjúkrahúsi í Danmörku
á föstudaginn eftir að hafa orðið fyr-
ir alvarlegri líkamsárás í síðustu viku.
Maðurinn hafði, samkvæmt heim-
ildum DV, legið á gjörgæslu í nokkra
daga eftir árásina en mun hafa látist
af sárum sínum eftir hádegi á föstu-
daginn.
Heimildir DV herma að nokkr-
ir aðilar hafi ráðist á manninn, sem
hafði verið búsettur í Danmörku í
nokkurn tíma. Munu mennirnir hafa
þekkst eftir því sem DV kemst næst.
Árásarmaðurinn, eða mennirnir,
hafa verið handteknir.
Hjá utanríkisráðuneytinu fengust
þær upplýsingar í gær að engin til-
kynning hefði borist inn á borð hjá
henni vegna morðsins. Urður Gunn-
arsdóttir, upplýsingafulltrúi utanrík-
isráðuneytisins, bendir á að fólki beri
engin skylda til að tilkynna mál sem
þessi. Það geti hins vegar leitað til
ráðuneytisins eftir aðstoð, engin slík
beiðni hafi hins vegar borist frá því
á föstudaginn. Sendiherra Íslands í
Danmörku vísaði á borgaraþjónustu
utanríkisráðuneytisins spurður um
málið.
Þetta er annað málið sem kemur
upp á skömmum tíma þar sem Ís-
lendingur er myrtur í Danmörku. 6.
mars síðastliðinn stakk 47 ára gamall
Íslendingur 42 ára Íslending til bana
í Kaupmannahöfn eftir að þeir höfðu
setið að sumbli saman.
Þá er 23 ára íslenskur karlmaður
enn grunaður um morðið á hinni 41
árs gömlu Chanette Sørensen eftir að
hafa verið handtekinn og úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald 3. mars síðastlið-
inn.
mikael@dv.is
Rúmlega fimmtugur Íslendingur barinn til bana í Danmörku:
Íslendingur myrtur
Myrtur í Danmörku Íslenskur karl-
maður var barinn til bana í Danmörku
í síðustu viku.