Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Page 13
FRÉTTIR 3. maí 2010 MÁNUDAGUR 13 Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni þinni um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum. Auk þess eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins. Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur VITA er lífið Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is ÍS L E N S K A S IA .I S V IT 5 01 63 0 4. 20 10 Taktu þátt í Lukkulífi VITA í Portúgal VITA er í eigu Icelandair Group. GROUP Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is Verð frá 72.900 kr. og 15.000 Vildarpunktar* Lukkulíf VITA 9.–25. maí 16 nætur Kíktu á verðið! Verð á mann m.v. 2 í stúdíóíbúð. * Verð án Vildarpunkta 82.900 kr. Innifalið: Flug fram og til baka, gisting flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Lukkulíf VITA gerir þér kleift að velja áfangastað, brottfarardag og lengd ferðar en upplýsingar um hótel berast tveimur dögum fyrir brottför. Verð frá 39.900 kr. og 15.000 Vildarpunktar* Flugsæti 9.–25. maí Flug fram og til baka * Verð án Vildarpunkta 49.900 kr. Innifalið: Flug fram og til baka og flugvallaskattar. Albufeira á einstöku verði nefndar Alþingis. „Hún er að mörgu leyti hornsteinn þessarar stefnu.“ Á meðfylgjandi línuriti Stefáns má sjá þróun skuldsetningar þjóðarinnar áratugi aftur í tímann. Árið 2004 var Ísland orðið skuldugasta land í heimi. Menn urðu ekki almennt meðvitaðir um það fyrr en 2007 hversu skuldsett landið var orðið. Inn á línuritið hefur Stefán merkt komu Arthurs Laffer til landsins í nóv- ember 2007. Laffer er heimsþekkt- ur fyrir svonefnda Laffer-kúrvu, en hún sýnir að tekjur hins opnbera geta hækkað þótt skattar lækki. „Árangur ykkar hefur rennt stoð- um undir Laffer-kúrvuna,“ sagði Arth- ur Laffer í samtali við Morgunblaðið í nóvember þetta ár. Stefán minntist fyrirlestrar Art- hurs Laffer í Þjóðmenningarhúsinu á þessum tíma. „Þar sagði Laffer í anda Voltaire: Það er ekki bara allt í lagi hjá ykkur heldur er allt í allra besta lagi hjá ykkur. Þið eruð að gera allt svo vel, eruð svo frjáls þjóð og fullkomin að allir vilja koma með sitt fjármagn til ykkar.“ - En Laffer var ekki einn um að vega að sannleikanum. Það var gert hér heima í ríkum mæli. Það var talað um mikinn hagvöxt og að kaupmátt- araukning væri meiri hér en nokkru sinni áður. Þetta sögðu tveir forsæt- isráðherrar frekar en einn. Þetta er ekki rétt. Hagvöxtur var meiri á árun- um 1961 til 1987 og kaupmáttur jókst einnig meira þá en árin fyrir hrun,“ segir Stefán. Græða á daginn - grilla á kvöldin „Þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af sögðu menn þegar rætt var að vel- megunin byggðist á skuldum: Þetta er einkageirinn sögðu menn, hann er að ráðstafa sínu fé og hann fer varlega með það og skynsamlega. Reyndin var sú að þeir voru að sýsla með annarra manna fé, lánsfé, í spákaupmennsku. Þessi snilld þeirra byggðist á lánsfé. Hvernig gat hin ósýnilega hönd Ad- ams Smith átt við um þetta? Við getum tekið dæmi af bönkunum þegar þeir tóku stöðu gegn krónunni. Þeir græddu gríðarlega á þessum ársfjórðungum 2007 og fram á árið 2008. Það var allt á kostnað almennings. Gengið lækk- aði og rýrði hag allra hinna. Að vinna þannig að eiginhagsmunum þannig að það bitni á almenningi hefur ekkert með ósýnilegu höndina að gera.“ sagði Stefán. Allt virtist ganga vel frá árinu 1995 og fram að hruni. Frjálshyggjan og mark- aðshyggjan virtust skila árangri. Svip- ur góðæris ríkti, fé flaut um allt, lánsfé. Klisjur breiddust út. Menn ræddu um „útrásarvíkinga“, „snilld“, „Ísland best í heimi“, „Ísland sem alþjóðlega fjár- málamiðstöð“, „auðmennirnir okkar“, „græða á daginn – grilla á kvöldin“ og svo framvegis. Skortur á mótvægi „Tíðarandi verður ekki til af sjálfum sér. Á það hefur verið bent hér að það er til- tölulega auðvelt að taka yfir lítið sam- félag. En það er líka gott að hafa í huga að þeir sem voru á bak við þessa hug- myndafræði, þennan tíðaranda, voru jafnframt valdamestu menn landsins, í atvinnulífinu, fjármálalífinu og gerðu þetta með leyfi valdamestu stjórn- málamannanna. Það vantaði mótvæg- ið. Vinstri flokkar voru veikir. Verka- lýðshreyfingin var sjálf orðin fjárfestir í gegnum lífeyrisjóðina sem fjárfestu í útrásinni. Háskólarnir voru beislað- ir. Þeir urðu að einhverju leyti háðari einkafjármagni. Það þarf ekki sjálfkrafa að þýða það að menn hafi verið keypt- ir. Niðurstaðan fyrir háskólamennina er að þeir hefðu getað lagt meira af mörk- um, en móttökuskilyrði fyrir gagnrýni voru slæm. Niðurstaðan er sú að ekkert af þessu gerðist sjálfkrafa. Þetta gerðist ekki hugsunarlaust og var ekki blind hjarð- hegðun. Það var beitt valdi til þess að koma ýmsu því að sem hafði þessar af- leiðingar, þar á meðal til þess að veikja ríkisvaldið,“ sagði Stefán. Tíðarandinn er eins og leiðarvísir, undirspil og leikmynd fyrir þjóðfélagsþróun. Tíðar- andinn breyttist með inn- reið frjálshyggjunnar. Fyrrverandi stjórnendur Glitnis og Kaupþings í sigti ríkisskattstjóra: Skatturinn eltir bankastjóra Bjarni Ármannsson, fyrrverandi for- stjóri Glitnis, Hreiðar Már Sigurðs- son og Sigurður Einarsson eru meðal þeirra fyrrverandi stjórnenda gömlu bankanna sem ríkisskattstjóri hefur nú krafið um milljónir króna vegna vangreiddra skatta. Málið er þannig að rúmlega þrjátíu fyrrverandi stjórnendur Glitnis og Kaupþings hafa fengið reikning frá skattayfir- völdum vegna söluréttarsamninga sem þeir gerðu á þeim tíma sem þeir voru enn við stjórn bankanna. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 á sunnudagskvöldið. Söluréttarsamn- ingarnir gengu út á að starfsmenn gátu keypt hlutabréf með sölurétt- artryggingu fyrirtækisins. Hækkuðu bréfin í verði, gátu starfsmenn selt þau eða átt þau áfram. Ef þau hins vegar lækkuðu í verði gátu þeir hins vegar gengið frá samningunum án þess að tapa nokkrum peningum. Dæmi er um að menn hafi hagnast um hálfan milljarð á slíkum samn- ingum. Stöð 2 greindi frá því að skattayf- irvöld vilji nú skattleggja þessa sölu- réttarsamninga sem launatekjur en ekki sem fjármagnstekjur eins og gert var. Þeir stjórnendur bankanna sem gerðu slíka samninga greiddu aðeins 10 prósent í fjármagnstekju- skatt þegar þeir seldu bréfin sín. Ríkisskattstjóri vill breyta þessu. Ef af þessu verður, er líklegt að stjórn- endurnir þurfa að leggja fram háar fjárhæðir vegna vangreiddra skatta, í sumum tilfellum væntanlega tugi milljóna króna. Sigurður Einarsson Fyrrver- andi stjórnendur Kaupþings og Glitnis gætu þurft að greiða skattinum háar fjárhæðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.