Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Qupperneq 17
FRÉTTIR 3. maí 2010 MÁNUDAGUR 17
Handskrifaður texti Johns Lennon
við Bítlagersemina „A day in the
life“ er sagður seljast á sjö hundruð
þúsund pund á uppboði, eða sem
nemur 137 milljónum íslenskra
króna. Textinn er ritaður á báðar
hliðar bréfsnifsis með bláu bleki og
fer þessi munur á sölu í New York
átjánda júní næstkomandi. Blað-
ið inniheldur einnig nokkrar leið-
réttingar frá John Lennon og aðr-
ar athugasemdir sem eru merktar
með rauðu bleki. Lagið var síðasta
lag meistaraverksins Sgt Pepper
sem kom út árið 1967. Tónlistar-
tímaritið Rolling Stone setur lagið
í 26. sæti á lista yfir fimm hundruð
bestu lög allra tíma. Lagið þótti afar
umdeilt er það kom út en breska
ríkisútvarpið bannaði útvarps-
spilun á því vegna þess að text-
inn þótti hvetja til eiturlyfjaneyslu
þegar John Lennon söng „I like
to turn you on“. Varð þessi texta-
bútur til þess að nokkur asísk ríki
gáfu Sgt Pepper´s Lonely Hearts
Club Band plötuna út án lagsins.
Sotheby´s sér um að bjóða text-
ann upp og segja lagið vera bylt-
ingarkennda tónsmíð sem mark-
aði upphaf breytingar Bítlanna frá
því að vera popparar yfir í það að
vera listamenn. Lagið þykir einn-
ig vera það besta sem Lennon og
félagi hans Paul McCartney sýndu
í samvinnu við að lagasmíðar. Er
Lennon fékk hugmyndina að lag-
inu spilaði hann það inn og skildi
svo eftir laust pláss til að vinna með
í því. McCartney skellti sínum bút
við lagið og sönnuðu þeir sig þá
sem einir af bestur lagahöfund-
um veraldarinnar með þessu sam-
starfi. birgir@dv.is
Handskrifaður texti Johns Lennon á uppboði:
Lennon-gersemi til sölu
á sunnudag að númeraplata bílsins
var stolin af bíl sem nýlega hafði verið
fargað. Enginn hefur enn verið hand-
tekinn vegna málsins og vitni hafa ekki
gefið sig fram heldur. Eigandi bílsins
sem var fargað liggur ekki undir grun
um að hafa komið að tilræðinu.
Inni í bílnum fannst svo þykkur ál-
kassi, sem líklega hefur verið notaður
til þess að geyma byssur. Kassinn var
fjarlægður úr bílnum og hann eyði-
lagður á skotsvæði lögreglunnar. Ekki
er vitað hvort eitthvað hafi verið í kass-
anum.
Lögreglumenn á hverju strái
Á laugardagskvöldum er Times Squ-
are einn fjölfarnasti staður í New York
og lögregluna hefur lengi grunað að
hryðjuverkamenn myndu reyna að
láta til skarar skríða á þessum tíma.
Þúsundir manna fara í leikhús við
Times Square á hverju laugardags-
kvöldi, auk þess sem mikill fjöldi
ferðamanna er á svæðinu. Um það bil
einum og hálfum klukkutíma eftir að
Nissan-jeppinn hafði verið dreginn í
burtu, var ákveðið að opna fyrir um-
ferð á nýjan leik. Öllum sem áttu leið
um svæðið, var þó ljóst að ekki var um
venjulegt laugardagskvöld að ræða.
Gangandi vegfarendum var haldið
frá 43. stræti og á sjálfu Times Square
mátti sjá tugi lögreglu- og slökkviliðs-
bíla við Broadway og sjöundu breið-
götu.
„VIÐ VORUM MJÖG HEPPIN“
Verðmætur
Handskrifaður texti
Lennons er eftirsóttur.
Klámið ekki
sátt við niðurhal
Það er ekki bara kvikmynda- og tón-
listariðnaðurinn í Hollywood sem vill
loka á ólöglegt niðurhal á efni sínu
á Netinu. Nú hefur klámiðnaðurinn
skorið upp herör gegn niðurhalinu.
Fjölmargar stjörnur klámiðnaðar-
ins hafa nú komið saman og gert
auglýsingu þar sem iðnaðurinn kem-
ur skilaboðum sínum til neytenda
á framfæri. Meðal þekktra andlita
sem þar sjást er klámkóngurinn Ron
Jeremy, sem heimsótti Ísland fyrir
nokkrum árum. Klámiðnaðurinn er í
sárum í ljósi þess að sala á DVD-disk-
um hefur hrunið um þriðjung og er
ólöglegu niðurhali kennt um það.
Gordon í vanda
Hin 65 ára gamla Gillian Duffy, sem
Gordon Brown, forsætisráðherra
Bretlands, kallaði öfgamanneskju án
þess að hann vissi að kveikt væri á
hljóðnema sem hann hafði á sér, seg-
ist aldrei ætla að kjósa breska Verka-
mannaflokkinn framar. Þegar upp
komst um Brown var hann fljótur að
bregðast við og bað hana persónu-
lega afsökunar á fundi þeirra. Eitt-
hvað virðist Duffy treg til að fyrirgefa
forsætisráðherranum, því hún ætlar
ekki að kjósa hann.
Semja við AGS
George Papandreou, forsætisráð-
herra Grikklands, lýsti því yfir á
sunnudaginn að Grikkir hefðu náð
samkomulagi við Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn og Evrópusamband-
ið um björgunarpakka að andvirði
120 milljarða evra. Markmiðið með
björgunarpakkanum er að forða
landinu frá gjaldþroti og að koma í
veg fyrir fyrir að gríska efnahagshrun-
ið dreifist til annarra ríkja.
Kominn á Twitter
Hugo Chávez, forseti Venesúela, er
farinn að nota hið vinsæla sam-
skiptatæki Twitter til að tjá skoðan-
ir sínar. Það kann að skjóta skökku
við að maður sem er þekktur fyrir að
flytja ræður sem standa klukkutím-
um saman, skuli nota forrit á borð
við Twitter, þar sem fyrstu skilaboð-
in voru aðeins 140 stafir á spænsku.
„Hæ, hvað segið þið gott? Ég kom
eins og ég sagði á miðnætti. Ég er far-
inn til Brasilíu. Og er mjög ánægður
með að vinna fyrir Venesúela. Við
munum sigra!!“