Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Blaðsíða 19
HELGA BJÖRG JÓNASARDÓTTIR
vann ásamt samstarfskonum sínum á
hönnunarstofunni Björg í bú, Eddu
Gylfadóttir og Guðrúnu Hjörleifsdótt-
ur, keppnina Minn Ásmundur sem
listasafn Reykjavíkur og Hönnunar-
miðstöð Íslands stóðu að. Í samkeppn-
islýsingu var óskað eftir tillögum að
nytjahlut sem endurspegla skyldi
hugarheim og verk myndhöggvarans
Ásmundar Sveinssonar.
ALLTAF VERIÐ MIKILL
AÐDÁANDI ÁSMUNDAR
Í hinum frábæru lögregluþáttum The
Wire segir frá glæpamönnum sem
efnast svo mjög að þeir hafa jafnvel
efni á að múta háttsettum stjórnmála-
mönnum. Glæpamennirnir efnast
ekki á verðbréfasölu eða bankastarf-
semi eða á annan hefðbundinn hátt,
heldur á því að selja eiturlyf í fátækra-
hverfum. Það er undarlegt, en þó satt,
að menn geta skipað sér í röð efnuð-
ustu manna samfélags síns á því að
hafa fé út úr bótaþegum. Fátækra-
hverfin eru vissulega fátæk, en ef all-
ir peningarnir þar enda í sama vasa
er hægt að búa til mikil auðævi fyrir
örfáa.
Í góðærinu undraðist maður oft
hvernig gat staðið á því að menn frá
jafnlitlu landi og Íslandi gátu skipað
sér í röð ríkustu manna heims. Svar-
ið við því er einfalt, nokkrir menn
sem stjórna litlu samfélagi algerlega
geta kreist út úr því nógan pening til
að keppa við þá sem eiga minni bita
af kökunni í stærra samfélagi. Glæpa-
mennirnir í The Wire, sem ráðstafa
svo til öllum bótum fátækrahverfis-
ins, geta orðið álíka efnaðir og lög-
legu kaupsýslumennirnir sem þurfa
stöðugt að keppa við hver annan.
Bónus dóp
Íslendingum voru ekki seld eiturlyf í
góðærinu, að minnsta kosti ekki fyrst
og fremst. Hinsvegar voru örfáir að-
ilar sem stjórnuðu nauðsynjavörum
þjóðfélagsins. Með samanlögð auð-
ævi íslensku þjóðarinnar í vösum sín-
um gátu þeir farið og leikið við stóru
strákana í London og tekið þar enn
hærri lán. Þjóðin þurfti að borga þátt-
tökugjaldið, og þurfti síðan aftur að
borga þegar leikurinn tapaðist. Hvers
vegna kvartaði enginn?
Svarið liggur kannski í eftirfarandi
spurningu: Hvar átti að kvarta? Í raun
hafa aldrei verið til frjálsir fjölmiðl-
ar hérlendis. Lengi vel voru blöðin
flokksblöð, og fólk gat alltaf gert sér
í hugarlund hvernig fjallað væri um
hvert mál áður en blaðið var opn-
að. Hagsmunirnir lágu ekki í
trúverðugleikanum, held-
ur í flokkshollustunni.
Eftir að flokks-
blöðin lögð-
ust af urðu
til tveir pól-
ar, Mogginn og
Fréttablaðið (um
tíma var DV syst-
urblað þess síðar-
nefnda, en svo er ekki
lengur). Voru oft hörð átök
þar á milli, til dæmis um fjöl-
miðlafrumvarpið. Bæði blöðin
boðuðu þó sömu stefnu, harða
frjálshyggju, og reyndi hver að
ganga lengra en hinn.
Hversu hratt á að afnema
kerfið?
Á tímum sjálfstæðisstjórnmálanna
deildu menn ekki um hvort lýsa ætti
yfir sjálfstæði, heldur hversu hratt.
Á tímum frjálshyggjunnar var ekki
deilt um hvort ætti að afnema rík-
isvaldið, heldur hversu hratt. Önn-
ur sjónarmið heyrðust vart. Þjóð-
in skiptist niður í fylkingar eftir því
hvort hún vildi Davíðs frjálshyggju
eða Baugs frjálshyggju.
Æskilegast er að sjálfsögðu að
fjölmiðlarnir eigi sig sjálfir. Þannig
er hagur þeirra fólgin í því að segja
fréttir og trúverðugleikinn þeirra
mikilvægasta fjárfesting. Ef þeir
eru hluti af stærra apparati, nokk-
urskonar fjölmiðlaarmur viðskipta-
veldis, liggja raunverulegir hags-
munir þeirra annarsstaðar en í
fréttaflutningi. Þá skiptir trúverðug-
leik- inn ekki lengur jafn-
miklu máli þegar peningarnir koma
annarsstaðar frá.
Því er ekki að undra að Ríkisút-
varpið sé sá miðill sem nýtur mests
trausts. Hann hefur almennt staðið
sig best. Eigi að síður gengst hann
undir hlutleysisstefnu sem getur
virkað lamandi. Grapevine er einn
af örfáum prentmiðlum sem ekki
heyra undir önnur peningaveldi og
nú, að því er virðist, DV.
Án frjálsra fjölmiðla er ekkert
raunverulegt lýðræði. Ef við ætlum
að búa við betra og lýðræðislegra
kerfi en hér hefur ríkt undanfarna
áratugi, er kannski rétt að byrja þar.
Matador fyrir eiturlyfjasala
UMRÆÐA 3. maí 2010 MÁNUDAGUR 19
1 STÚLKURNAR HRÆÐAST HÓTANIR Ítarleg úttekt á alvarlegri stöðu ungra
stúlkna sem lenda í félagsskap eldri
manna
2 SYSTRASLAGUR SÓLEYJAR OG ÞÓRU Systurnar Sóley Tómasdóttir
borgarfulltrúi og Þóra Tómasdóttir
urðu ekki vinkonur fyrr en Þóra,
komst á unglingsárin.
3 „ÉG VARÐ ALVEG TÓMUR“ Faðir stúlkunnar sem berst fyrir lífi sínu á
Landspítalanum, ræddi við DV um
hvernig honum hafi orðið við þegar
hann frétti af slysinu
4 ÁSTRALSKUR GLÆPAMAÐUR JARÐAÐUR Í GULLLÍKKISTU
Alræmdur ástralskur glæpamaður var
jarðaður í gulllíkkistu.
5 GUÐSHÚS Í SNÖRU MYNTKÖRFULÁNS Keflavíkursókn
stendur völtum fótum vegna fjár-
hagserfiðleika vegna snarhækkandi
myntkörfuláns eftir bankahrunið.
6 PONZI-SVINDL ÍSLANDS William K. Black, sagði efni skýrslu rannsókn-
arnefndarinnar skólabókardæmi
Ponzi-svindl.
7 KARLMANNI NAUÐGAÐ Í ÁLABORG Lögreglan í Álaborg í
Danmörku handtók mann fyrir morð.
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN
Hver er konan?
„Helga Björg Jónasardóttir, vöruhönnuð-
ur og myndlistarmaður.“
Hvar ertu uppalin?
„Á Akureyri.“
Hvað drífur þig áfram?
„Lífsgleði og sköpunarkraftur.“
Hver er fyrsta minning þín úr æsku?
„Að brasa og reyna að smíða hluti á
verkstæðinu hjá pabba.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á
Íslandi?
„Í litlu þorpi í Namibíu sem heitir
Swakopmund sem ég heimsótti fyrir
nokkrum árum.“
Hvaða bók er á náttborðinu?
„Það eru nokkrar, Litli prinsinn, Hvíti
tígurinn, Íslenskar lækninga- og drykkjar-
jurtir og fleiri.“
Hvaða bíómynd sástu síðast?
„Little Miss Sunshine.“
Hvernig er tilfinningin að hafa
unnið Minn Ásmundur-keppnina?
„Það er góð tilfinning og mikil hvatning
til að halda áfram að þróa hugmyndir
sem krauma í hausnum.“
Ertu mikill aðdáandi Ásmundar
Sveinssonar?
„Já, ég hef alltaf verið mikill aðdáandi
Ásmundar.“
Er þetta mikil viðurkenning fyrir
stofuna ykkar?
„Já, vissulega. Björg í bú fékk líka tilnefn-
ingu til nýsköpunarverðlauna forsetans
2010 fyrir annað verkefni svo að það er
mikil hvatning fyrir okkur að halda áfram
að takast á við spennandi verkefni.“
Hvað ætliði að gera við verðlaunin?
„Við ætlum að koma „Mínum Ásmundi“
í framleiðslu og kannski borga okkur
einhver laun fyrir hönnunarvinnuna.“
MAÐUR DAGSINS
KJALLARI
„Ég les fréttirnar á netinu.“
HERBORG SIGURÐARDÓTTIR
31 ÁRS STARFSMAÐUR Í ÁLVERI
„Les þær meira á netinu.“
GRÉTAR JÚLÍUSSON
61 ÁRS BÍLSTJÓRI
„Bæði eiginlega.“
DÆNA DÖNN
66 ÁRA
„Bara bæði, ég kíki bæði á netið og
skoða blöðin.“
ÆVAR ÓLASON
27 ÁRA STRÆTÓBÍLSTJÓRI
„Ég les þær í blöðunum.“
HRAFNHILDUR VILHELMSDÓTTIR
69 ÁRA
HVORT LESTU FRÉTTIRNAR Í BLÖÐUM EÐA Á NETINU?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
Dómari! Valur og Haukar mættust í öðrum leik liðanna í Vodafone-höllinni á Hlíðarenda á sunnudag. Hér má sjá leikmenn
liðanna í harðri baráttu og þegar hitinn er mestur er erfitt að leyna tilfinningum sínum. MYND RÓBERT REYNISSON
VALUR GUNNARSSON
rithöfundur skrifar
Íslendingum voru ekki
seld eiturlyf í góðærinu,
að minnsta kosti ekki
fyrst og fremst. Hinsvegar
voru örfáir aðilar
sem stjórnuðu
nauðsynjavörum
þjóðfélagsins.