Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2010, Qupperneq 30
Skemmtikrafturinn og matgæð- ingurinn Maggi mix sendi fyrir helgi frá sér nýtt lag og mynd- band við það. Lagið heitir Ég er svo einmana og þar syngur Maggi um kynni sín af dömu af erlendu bergi brotinni. Samkvæmt texta lagsins kynntist Maggi stúlkunni á MSN-spjallforritinu en hefur ekki heyrt í henni lengi vegna bilana í tölvu hennar. Vinsældir lagsins standa ekki á sér frekar en með annað sem Mixarinn tekur sér fyrir hendur og hefur rignt inn athugasemdum. Frumraun Ásdísar Ránar Gunnars- dóttur í tónlistarbransanum verð- ur frumflutt í dag, mánudagsmorg- un klukkan 9.30 á Kananum 100.5. Lagið heitir Handle Me (Feel my Body) og vill Ásdís að stelpur hækki í viðtækjunum þegar spilun hefst, hendi frá sér kústum, tuskum og börnum og stígi villtan dans. „Þetta lag er svoldið spes og al- veg ótrúlega SEXY!  Ég gerði það fyrir ykkur stelpurnar og „basicly“ þá vil ég að þið hækkið græjurn- ar í botn þegar þið heyrið það spil- að í útvarpinu, hendið frá ykkur kústinum, tuskunni og börnunum - og finnið Ránina í ykkur með því að stíga þokkafullan dans í takt við lagið,“ segir Ásdís um lagið í pistli á pressan.is. Ásdís segist ekki hafa gert upp hug sinn um hvort tónlistarferill hennar muni spanna meira en bara þetta eina lag. Það fari eftir við- brögðum fólks. „Þið kannski telj- ið mig „crazy“ núna, en í alvöru þá er þetta lag „Dívunnar“ og á eftir að gera ykkur allar ómótstæðilegar á dansgólfinu hvort það sé heima eða á skemmtistöðum bæjarinns,“ segir Ásdís ákveðin. MAGGI EINMANA BÓKASÝNINGIN Í FRANKFURT: Fyrrverandi stórsenterinn og landsliðsmaðurinn, Andri Sigþórsson, er kominn aftur í íslenska boltann. Þó ekki til að spila heldur verður hann annar sérfræðinga þáttarins Ís- lensku mörkin á RÚV í sumar. Andri verður í góðum félags- skap Hjörvars Hafliðasonar sem kom sterkur inn í þættina í fyrra. Andri er tiltölulega nýfluttur heim frá Danmörku þar sem hann rak bakarí eftir atvinnu- mannsferilinn í knattspyrnu. Á sínum tíma var Andri einn skæðasti framherji Íslands en á meiðslahrjáðum ferli sínum lék hann með KR,  FSV Zwickau, SV Salzburg og Molde. 30 MÁNUDAGUR 3. maí 2010 FÓLKIÐ Ásdís Rán Samdi lagið fyrir ykkur stelpurnar. MYND ARNOLD BJÖRNSSON ÁSDÍS RÁN VILL AÐ KONUR ALSTAÐAR FINNI „RÁNINA“ Í SÉR: „HENDIÐ FRÁ YKKUR BÖRNUNUM“ Heitar umræður spruttu upp á fésbókarsíðu Eiríks Arnar Norðdahl rithöfundar um þá full-trúa Íslands sem taka þátt í viðburði sem ber yfirskriftina Slam-Saga og fer fram í Þýskalandi á næsta ári. Uppákoman gengur í grunninn út á að þýsk og íslensk skáld spinna sinn eig-in texta upp úr íslensku fornsögunum og fer fram í tengslum við Bókasýninguna í Frankfurt en eins og kunnugt er verður Ísland heiðursgestur á sýningunni að ári. Þau þrjú sem taka þátt í Slam-Saga eru Bergur Ebbi Benediktsson, Ugla Egilsdóttir og Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA. Upp á síðkastið hafa þau getið sér gott orð fyrir uppistand á krám landsins og fleiri stöðum og finnst þeim sem gagnrýna valið það skjóta skökku við að slíkir grínist- ar taki þátt í bókamessunni í staðinn fyrir útgefna höf- unda af yngri kynslóðinni. Eiríkur Örn spyr til dæmis hvaða „rugl“ þetta sé og finnst „helvíti mikil fyrirlitn- ing“ endurspeglast í valinu. Halldór Guðmundsson er í forsvari fyrir Frankfurt- verkefnið. Hann segir Slam-Saga viðburðinn einungis einn af fjölmörgum þáttum kynningarstarfsins. „Við reynum að kynna Ísland og íslenskar bók- menntir með mjög breiðum hætti,“ segir Halldór. „Þess vegna fengum við til dæmis Kristínu Svövu og fleiri skáld sem tengjast Nýhilútgáfunni til að sjá um kynningarsíðuna Nýjar raddir sem er að finna á síðu Frankfurt-verkefnisins [sagenhaftes-island.is]. Við kostum kynninguna en þau ráða henni alfarið. Ég hef þess vegna sérstaklega hreina samvisku gagnvart Ei- ríki og félögum, og þar fyrir utan er bók væntanleg eft- ir Eirík á þýsku í tengslum við Frankfurt-sýninguna.“ Halldór bætir við að Sagenhaftes Island hafi gert alls kyns annað kynningarefni sem snúi meðal ann- ars að Nýhilskáldum. „Og þegar kom að því að teyma saman einhverja frá Þýskalandi með uppistands- og rappsenunni hér ákváðum við að leita til annars hóps með það. Við erum bara að reyna að tengja verulega breidd af ungu íslensku fólki í þetta verkefni.“ Eitt af því sem gagnrýnt er í valinu á Bergi, Halldóri og Uglu er að ekkert þeirra hafi fengið gefinn út eftir sig skáldskap á bók, þótt reyndar fyrsta bók Bergs sé vænt- anleg síðar í maí. Halldóri finnst ekkert óeðlilegt við það þar sem um uppákomu sé að ræða. „Þetta er ekki útgáfa, þetta er uppákoma. Þýsku höfundarnir sem taka þátt í henni eru úr senu sem stundum er kölluð „spoken word poetry“ og við vildum leita til uppistandara og rappara hér heima og sjá hvort ekki kæmi eitthvað skemmtilegt út úr því. Þetta er svona tilraunaeldhús af því að við erum að öðru leyti að leggja mjög mikla áherslu á útgefna höf- unda.“ Aðspurður hvort mörgum af skáldunum sem kynnt eru í verkefninu Nýjar raddir verði boðið til Þýskalands fyrir upplestra og fleira kveðst Halldór eiga von á því að ein- hverjir þeirra taki þar þátt. „En okkar hlutverk er voða mik- ið að reyna að kynna. Svo velja Þjóðverjarnir hverjum þeir vilja bjóða. Og um leið og menn eiga von á því að verða gefnir út í Þýskalandi, eins og í tilfelli Eiríks og margra ann- arra höfunda, eru auðvitað miklar líkur á því að þeim verði boðið á upplestra og aðrar uppákomur.“ kristjanh@dv.is UNGSKÁLD SKYLMAST Berorð skoðanaskipti áttu sér stað á netinu í tengsl- um við val á þremur ungum listamönnum sem valdir voru til þátttöku í viðburði á Bókasýningunni í Frankfurt á næsta ári. Forsvarsmaður Frankfurt-verk- efnisins kveðst hafa hreina samvisku. Eiríkur Örn Athugasemd rithöfundarins um valið á þremenningunum kom af stað heitum umræðum á netinu. MYND KRISTINN MAGNÚSSON Halldór Guðmundsson Hefur hreina samvisku gagnvart ungskáldum landsins. MYND KARL PETERSSON Ugla Egilsdóttir Ein þeirra þriggja sem fara til Þýskalands í tengslum við Slam-Saga. MYND EGGERT JÓHANNESSON ANDRI AFTUR Í BOLTANN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.