Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2010, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2010, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 17. maí 2010 FRÉTTIR NAUÐGARI ÓTTAST FANGELSI Bjarki Már Magnússon stjórnmála- fræðingur er í sjokki eftir niðurstöðu Hæstaréttar í síðustu viku þar sem hann var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir kynferðis- og ofbeldisbrot. Hann segist einfaldlega ekki vera sá brota- maður sem talið er og íhugar að fara með málið fyrir mannréttindadóm- stól. Samkvæmt dómsorði töldu dóm- stólar brot Bjarka Más ekki eiga sér hliðstæðu í íslensku réttarkerfi. Hann var dæmdur fyrir ítrekuð brot gegn þáverandi sambýliskonu sinni, Hrafn- hildi Stefánsdóttur, og meðal annars fyrir að neyða hana til kynlífsathafna með fjölda annarra karlmanna. Sam- kvæmt upplýsingum frá Fangelsis- málastofnun hefur hann nú þegar verið boðaður til afplánunar og hefur hann þrjár vikur til að gefa sig fram. Í samtali við DV segist Bjarki Már ætla að hlýta boðun um afplánun en aðspurður segist hann óttasleginn yfir fangelsisvist. Hann segist einfaldlega ekki vera sá glæpamaður sem dóm- stólar telja. Enginn „stalker“ „Mér var mjög brugðið við þessa nið- urstöðu og það er áfall hversu þung- ur dómurinn er. Þessar ásakanir eru gjörsamlega út í hött og mér finnst dómurinn hafa farið frjálslega með sönnunarfærslu. Ég tel þessi brot engan veginn fullsönnuð enda eru þau ekki í samræmi við raunveru- leikann og okkar samband,“ segir Bjarki Már. Í helgarblaði DV lýsti Hrafnhild- ur ótta sínum yfir því að Bjarki Már hafi gengið laus á meðan málið hlaut meðferð dómstóla. Aðspurður segist Bjarki hissa á þessum ótta og bæt- ir því við að hann telji Hrafnhildi ekki eins mikið fórnarlamb og hún viji láta í skína. Hann bendir einn- ig á að þau hafi verið í ágætis sam- bandi frá að þau hættu saman og fyr- ir vikið vísar hann því á bug að hann hafi setið fyrir henni og áreitt hana. „Hrafnhildur býr í íbúð sem við eig- um og því fór ég út til Noregs. Það er ekki rétt að ég sé einhver voðalegur „stalker“ og við höfum verið í alveg ágætu sambandi. Ég fékk til dæmis textaskilaboð á dögunum sem inni- héldu hlý orð. Hingað til hef ég því ekki orðið var við neina hræðslu af hennar hálfu og þetta kemur mér því mjög á óvart,“ segir Bjarki Már. Svakalegir hnekkir Bjarki Már íhugar nú stöðu sína eft- ir niðurstöðu Hæstaréttar og útilok- ar ekki að leita til mannréttindadóm- stóls Evrópu. Hann óttast ekki afdrif sín þegar í fangelsið verður komið en kannast ekki við að hafa verið boðað- ur til afplánunar. „Ég tel algjörlega á mér brotið og get illa við þessa nið- urstöðu unað. Það var í málsmeð- ferð Hæstaréttar sem ég fór að hugsa framhaldið og hef ég nú þegar verið í sambandi við lögfræðinga erlendis,“ segir Bjarki Már og bætir við: „Þessi dómur eru svakaleg- ir hnekkir fyrir mig. Stimpill sem kynferðisbrotamaður er svakalegur enda að ósekju. Ég trúi því bara ekki að Hæstiréttur hafi ekki litið betur til sönnunarfærslu í málinu. Þetta mun hafa veruleg áhrif á mína fram- tíð og hefur þegar gert. Ég er þokka- lega menntaður og með svona dóm á bakinu er engin spurning að það mun hafa áhrif.“ Óttast framtíðina Aðspurður segist Bjarki Már ætla að fara eftir settur reglum og gefa sig fram við fangelsismálayfirvöld þeg- ar boðun um afplánun berst. Hann ítrekar álit sitt að og því sé erfitt að horfa upp á þungan dóm. „Það er margt í málinu frá A-Ö sem á ekki við rök að styðjast og því erfitt að horfa upp á þennan dóm. Tilhugsunin að vera á leið í fangelsi er mjög sér- stök og eiginlega er ég ekki búinn að hugsa það til enda. Það er að sjálf- sögðu ekki góð tilfinning að þurfa að horfast í augu við það. Ég óttast ekki um líf mitt og limi þegar inn verður komið enda er ég ekki þessi maður,“ segir Bjarki Már. „Ég ítreka að fyrir mér er það sjokk að hún segist núna óttast mig með einhverjum hætti. Það er engin ástæða til, ég hef aldrei borið ann- að en góðan hug til Hrafnhildar. Það er alltaf eitthvað sem öðruvísi hefði mátt fara, hugsanlega hef ég lagt á hana of miklar byrðar varðandi fjár- mál og annað. Ég er ekki kynferð- isbrotamaður og ég er ekki þetta skrímsli sem verið er að lýsa.“ Bjarki Már Magnússon er í sjokki eftir niðurstöðu Hæstaréttar sem dæmdi hann í átta ára fangelsi fyrir alvarleg kynferðis- og ofbeldisbrot sem eiga sér ekki hliðstæðu samkvæmt dómsorði. Hann óttast afplánun í fangelsi og íhugar að fara með málið fyrir mannréttindadómstól. Tilhugsunin að vera á leið í fangelsi er mjög sérstök og eiginlega er ég ekki búinn að hugsa það til enda.TRAUSTI HAFSTEINSSONblaðamaður skrifar: trausti@dv.is Úr dómi Hæstaréttar n „Við ákvörðun refsingar ákærða verður litið til þess að hann hef- ur gerst sekur um fjölmargar líkamsárásir og sérlega gróf og alvarleg kynferðisbrot gegn þá- verandi sambúðarkonu sinni. Brotin stóðu yfir um árabil og af- leiðingar þeirra fyrir hana eru al- varlegar, eins og nánar greinir í héraðsdómi.“ n „Ákærði neyddi sambúðarkonu sína með hótunum og beinu of- beldi til kynmaka við aðra karla, ljósmyndaði athæfi þeirra og tók upp á myndband. Af hálfu ákæru- valdsins er því haldið fram að ekkert geti skýrt þessa háttsemi ákærða annað en það að þessi kynmök annarra hafi haft kyn- ferðislegt gildi fyrir hann og kom- ið í staðinn fyrir eða bætt upp hefðbundið samræði, jafnvel þótt hann hafi sjálfur iðulega tekið þátt í þessum athöfnum.“ n „Meðal annars liggur fyrir sú niðurstaða þeirra að ákærði sé afar skapríkur og stjórnsamur, en A aftur á móti óvenju undirgefin og með lágt sjálfsmat. Þetta hafi meðal annars birst í því að hún hafi verið reiðubúin til að leggja allt í sölurnar fyrir hann. Héraðs- dómur mat framburð A trúverð- ugan og stöðugan og að innbyrð- is samræmi hafi verið í frásögn hennar frá upphafi, auk þess sem vísað var til þess að ekki yrði séð að hún hafi reynt að gera hlut ákærða verri en efni stæðu til. Frásögn ákærða var jafnframt tal- in að ýmsu leyti ótrúverðug. Fall- ist verður á með héraðsdómi að hafið sé yfir skynsamlegan vafa að sú ógn, sem A stóð af ákærða og líkamlegt ofbeldi hans, hafi leg- ið því til grundvallar að hún hafi tekið þátt í þeim kynlífsathöfnum með öðrum körlum, sem greinir í ákæru. Verður því staðfest sú nið- urstaða héraðsdóms að sannað sé að ákærði hafi neytt A með hótun- um um líkamlegt ofbeldi til þeirra athafna.“ n „Í hinum áfrýjaða dómi er ít- arlega greint frá lýsingum A á því hvernig sambúð hennar og ákærða hafi breyst fljótlega eft- ir að hún hófst og ofbeldi hans og harka gagnvart henni aukist stig af stigi og einkennt loks allt samband þeirra. Samhliða hafi komið í ljós kynlífsórar hans, sem hafi lýst sér í hugmyndum og síðan kröfum um að fleiri karlar skyldu kallaðir til þátttöku í kyn- lífi þeirra. Hún kvaðst í byrjun hafa átt erfitt með að trúa að al- vara byggi að baki þessu af hálfu ákærða, en látið svo nauðug und- an til að þóknast honum. Síð- an hafi komið í ljós, og endan- lega í mars 2006, að skýr tengsl hafi verið á milli líkamlegs of- beldis ákærða við hana og óvilja hennar til að taka þátt í athöfn- um af þessum toga. Óttinn við enn meira ofbeldi hafi ráðið því að hún hafi iðulega látið undan kröfum hans um kynlíf með þátt- töku annarra, enda hafi hún að- eins átt tveggja kosta völ, ann- aðhvort að samþykkja þetta eða sæta ella ofbeldi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.