Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2010, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2010, Blaðsíða 21
ÆTTFRÆÐI 17. maí 2010 MÁNUDAGUR 21 Sigríður Salvarsdóttir FYRRV. HÚSFREYJA Í VIGUR Sigríður fæddist í Reykjarfirði við Ísafjarðardjúp og ólst þar upp. Hún gekk í barnaskóla í Reykjanesi og stundaði nám í Húsmæðraskólan- um á Löngumýri í Skagafirði 1944– 45. Sigríður var matráðskona við Héraðsskólann í Reykjanesi vetur- inn 1947–48 og síðar matreiðslu- kennari þar 1985–86, var í vist í Reykjavík veturinn 1948–49, hjá Bínu Thoroddsen kennara og Sverri Kristjánssyni sagnfræðingi og vann á búi foreldra sinna – stundum sem bústýra vegna veikinda móður sinn- ar eða fjarvista hennar en hún var oft matráðskona og handmennta- kennari við skólann. Sigríður flutti í Vigur 1950 og var húsfreyja á þessum sögufræga stað á árunum 1953–85. Þar hefur ætíð verið annasamt enda gestkvæmt í Vigur með afbrigðum auk þess sem Sigríður hafði lengst af fjölda vanda- lausra barna í heimili um lengri eða skemmri tíma. Fjölskylda Sigríður giftist 14.7. 1951 Baldri Bjarnasyni, f. 9.11. 1918, d. 8.7. 1998, bónda og oddvita í Vigur. Hann var sonur Bjarna Sigurðsson- ar, f. 24.7. 1889, d. 30.7. 1974, bónda og hreppstjóra í Vigur, og k.h., Bjarg- ar Björnsdóttur, f. 7.7. 1889, d. 24.2. 1977, húsfreyju. Baldur og Sigríður tóku við búi í Vigur 1953 og bjuggu til 1985 er syn- ir þeirra tóku við búinu. Á Sigríður þar enn lögheimili, en er nú búsett á Hlíf á Ísafirði. Sonur Sigríðar og Hafliða Jóns- sonar, fyrrv. garðyrkjustjóra Reykja- víkurborgar, er Hafsteinn, f. 25.2. 1946, garðyrkjufræðingur í Þingborg í Árborg, kvæntur Iðunni Óskars- dóttur, f. 18.1. 1945, meinatækni, og eiga þau þrjár dætur. Börn Sigríðar og Baldurs eru Björg, f. 10.9. 1952, kennari á Hól- um í Hjaltadal, var gift Jónasi Eyj- ólfssyni, f. 18.1. 1952, og eiga þau þrjá syni; Ragnheiður, f. 11.7. 1954, starfsmaður Eflingar, búsett í Reykjavík, gift Óskari Óskarssyni, f. 19.6. 1952, skrifstofumanni hjá Olíufélagi Íslands, og eiga þau þrjú börn en Óskar er bróðir Iðunnar; Bjarni, f. 14.2. 1957, plasttæknir, bú- settur í Hafnarfirði; Salvar Ólafur, f. 5.9.1960, smiður og bóndi í Vig- ur, kvæntur Hugrúnu Magnúsdótt- ur, f. 21.12. 1961, húsfreyju og eiga þau fjögur börn; Björn, f. 2.7. 1966, búfræðingur, búsettur á Ísafirði, kvæntur Ingunni Ósk Sturludóttur, f. 23.12. 1959, húsfreyju og söngkonu, og eiga þau tvö börn. Fósturdóttir Sigríðar og Baldurs er Valdís Þorgilsdóttir, f. 14.8. 1948, búsett í Innri-Njarðvík, gift Antoni Margeirssyni, en hún á tvö börn. Systkini Sigríðar eru Gróa, f. 7.6, 1922, nú látin, ritari á Veðurstofunni var búsett í Reykjavík; Hákon, f. 14.6 1923, nú látinn, hreppstjóri í Reykj- arfirði við Ísafjarðardjúp; Arnheið- ur, f. 5.5.1927, d. 5.7. s.á.; Arndís, f. 14.5. 1929, ljósmóðir og fyrrv. bóndi i Norður-Hjáleigu í Álftaveri; Ólafía, f. 12.8 1931, húsfreyja í Vatnsfirði við Ísafjarðardjúp. Foreldrar Sigríðar voru Salvar Ólafsson, f. 4.7. 1888, d. 3.9. 1979, og k.h., Ragnheiður Hákonardóttir, f. 16.8. 1901, d. 19.5. 1977, bændur í Reykjafirði við Ísafjarðardjúp. Ætt Salvar var sonur Ólafs, b. í Lágadal í Nauteyrarhreppi Jónssonar, b. í Lágadal Jónssonar. Móðir Salvars var Evlalía Sigríð- ur Kristjánsdóttir, b. á Fremri-Bakka Bjarnasonar, b. í Kambsnesi Jóns- sonar. Móðir Evlalíu var Guðrún Guðmundsdóttir, b. í Fremri-Arn- ardalshúsum Þorvaldssonar. Móðir Guðrúnar var Salvör, systir Jónasar á Bakka, afa prófessoranna Jónasar og Halldórs Elíassona. Þá var Jónas langafi Ragnheiðar Erlu Bjarna- dóttur, guðfræðings, líffræðings og fjölfræðings. Salvör var dóttir Þor- varðar, b. í Eyrardal Sigurðssonar, ættföður Eyrardalsættar Þorvarðar- sonar. Ragnheiður var dóttir Hákonar, b. á Reykhólum Magnússonar, b. á Kletti í Geiradal Jónssonar. Móðir Ragnheiðar var Arndís, systir Ragnheiðar, móður Jóns Leifs. Bróðir Arndísar var Böðvar, fað- ir Bjarna hljómsveitarstjóra, föður Ragnars dægurlagasöngvara. Ann- ar bróðir Arndísar var Þórður, kaup- maður í Reykjavík, faðir Regínu leik- konu og Sigurðar tónskálds. Arndís var dóttir Bjarna, óðalsb. á Reykhól- um, Þórðarsonar. 30 ÁRA „„ Eva Kuttner Ægisstíg 3, Sauðárkróki „„ Marzena Teresa Dziamska Þúfubarði 19, Hafnarfirði „„ Kristín Ósk Jónsdóttir Laufengi 12, Reykjavík „„ Hrönn Jónsdóttir Suðurvangi 2, Hafnarfirði „„ Ástrós Rún Sigurðardóttir Kálfhólum 2, Selfossi „„ Jón Þór Árnason Kerlingardal, Vík „„ Óli Ásgeir Hermannsson Grandavegi 7, Reykjavík „„ Jóhanna Eiríka Ingadóttir Bjallavaði 15, Reykjavík „„ Brynjar Ísaksson Fífuseli 34, Reykjavík „„ Stefán Bjarnarson Marteinslaug 10, Reykjavík „„ Þór Sveinsson Furugrund 22, Kópavogi 40 ÁRA „„ Jóhannes Gunnar Sveinsson Heiðarhrauni 7, Grindavík „„ Lilja Ólafsdóttir Langanesvegi 21, Þórshöfn „„ Guðrún Skúladóttir Hvassahrauni 5, Grindavík „„ Magnús Steinþór Pálmarsson Glósölum 5, Kópavogi „„ Steinn Guðni Einarsson Engjaseli 68, Reykjavík „„ Hörður Eiríksson Stórhóli 69, Húsavík „„ Guðný Guðnadóttir Bæjargili 104, Garðabæ „„ Guðrún Marta Ásgrímsdóttir Fannafold 184, Reykjavík 50 ÁRA „„ Bryndís Bragadóttir Brekkubraut 6, Akranesi „„ Ingibjörg Gunnarsdóttir Hátúni 10a, Reykjavík „„ Ragnheiður Anna Georgsdóttir Norðurvangi 1, Hafnarfirði „„ Ólafur Vilhjálmsson Smárabraut 20, Höfn í Hornafirði „„ Piotr Pawel Kasperczak Hveravöllum 3, Húsavík „„ María Þorgerður Guðfinnsdóttir Tjarnargötu 39, Reykjavík „„ Signý Ósk Richter Bogabraut 13, Skagaströnd „„ Natan Þór Harðarson Miðtúni 34, Reykjavík „„ Kristín Erna Jónsdóttir Hafnarbraut 26, Dalvík „„ Runólfur Jónatan Hauksson Bogaslóð 16, Höfn í Hornafirði „„ Auður Ingvarsdóttir Vesturgötu 73, Reykjavík „„ Kristþór Gunnarsson Sævangi 5, Hafnarfirði „„ Unnur Þorgrímsdóttir Broddadalsá 2, Hólmavík „„ Guðmundur Sigurðsson Hrólfsskálavör 5, Seltjarnarnesi „„ Beverly Louise Stephenson Mánagötu 6, Ísafirði 60 ÁRA „„ Anton Jan Reijnders Gunnarsbraut 45, Reykjavík „„ Þórður Valdimarsson Boðagranda 6, Reykjavík „„ Guðmundur Ingi Jónatansson Böggvisbraut 11, Dalvík „„ Guðrún A. Runólfsdóttir Mánabraut 19, Kópavogi „„ Gunnlaug Jóhannesdóttir Melabraut 33, Seltjarnarnesi „„ Jón Þór Sigurðsson Grettisgötu 47, Reykjavík „„ Sigbjörn Guðjónsson Miðhúsum 13, Reykjavík „„ Sæmundur Sæmundsson Réttarbakka 15, Reykjavík „„ Hólmfríður Ingvarsdóttir Huldugili 60, Akureyri „„ Kristján Guðmundsson Sunnuhvoli, Vogum 70 ÁRA „„ Vernharður Jónsson Skipagötu 7, Akureyri „„ Lúðvík Fahning Hansson Álftamýri 52, Reykjavík „„ Unnur Einarsdóttir Ártúni 4, Hellu „„ Brynhildur Ingólfsdóttir Miklubraut 50, Reykjavík 75 ÁRA „„ Pétur Gissurarson Gilsbakka 1, Seyðisfirði „„ Þuríður Sigurðardóttir Kistuholti 11, Selfossi „„ Sjöfn Guðmundsdóttir Nesvegi 105, Seltjarnarnesi 80 ÁRA „„ Kristján Pétursson Löngumýri 57, Garðabæ „„ Jón Elías Guðjónsson Hallgeirsey, Hvolsvelli „„ Jóhanna Sveinbjarnardóttir Sóltúni 11, Reykjavík 85 ÁRA „„ Ebba Lovísa Andersen Keilugranda 6, Reykjavík „„ Vigdís Ester Eyjólfsdóttir Vallartröð 10, Kópavogi 85 ÁRA Í DAG 30 ÁRA „„ Andzelina M. Kusowska Sigurðsson Eskihlíð 16a, Reykjavík „„ Tomasz Stanislaw Gronek Lækjarkinn 6, Hafnarfirði „„ Adam Frackowiak Torfufelli 25, Reykjavík „„ Lukasz Michal Cichosz Grenimel 1, Reykjavík „„ Jelena Malejeva Furugrund 75, Kópavogi „„ Grzegorz Domasiewicz Silfurbraut 7a, Höfn í Hornafirði „„ Annie Brogan Garman Þverholti 7, Reykjavík „„ Hulda Ósk Traustadóttir Engjaseli 72, Reykjavík „„ Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson Ægisgrund 3, Skagaströnd „„ Vigdís Guðjohnsen Jófríðarstaðavegi 8a, Hafnarfirði „„ Þorkell Þór Gunnarsson Heiðarhvammi 9b, Reykjanesbæ „„ Halla Hjördís Eyjólfsdóttir Helluvaði 21, Reykjavík „„ Bryndís Snorradóttir Þórðarsveig 4, Reykjavík „„ Runólfur Vigfússon Hagamel 48, Reykjavík „„ Telma Ingibjörg Sigurðardóttir Suðurgötu 33, Reykjavík 40 ÁRA „„ Anna Pálsdóttir Viðarási 25, Reykjavík „„ Þorgerður Hafsteinsdóttir Fjóluási 2, Hafnarfirði „„ Olga Guðrún Gunnarsdóttir Túnbrekku 15, Ólafsvík „„ Magnús Ninni Reykdalsson Baugstjörn 30, Selfossi „„ Sigurbjörg P. Erlendsdóttir Fellsási, Breiðdalsvík „„ Margrét Sigurjónsdóttir Arnarhrauni 26a, Hafnarfirði „„ Íris Andrea Ingimundardóttir Hringbraut 45, Reykjavík 50 ÁRA „„ Zdzislaw Przybyszewski Langadal 5, Eskifirði „„ Guðbjörg Helgadóttir Norðurbraut 33, Hafnarfirði „„ Birna Kristín Baldursdóttir Eskiholti 2, Borgarnesi „„ Aðalheiður Bragadóttir Giljalandi 14, Reykjavík „„ Rúnar Sigurður Birgisson Vallarási 5, Reykjavík „„ Guðmundur Kristinn Guðnason Þverlæk, Hellu „„ Sigurður Erlendsson Engihjalla 25, Kópavogi „„ Jón Bragi Gunnarsson Stapasíðu 11c, Akureyri „„ Valdís Stefánsdóttir Miklubraut 72, Reykjavík „„ Haraldur H. Stefánsson Norðurvangi 11, Hafnarfirði „„ Sigrún Aðalgeirsdóttir Vestursíðu 14c, Akureyri „„ Birna Rósa Gestsdóttir Gauksmýri 5, Neskaupsta𠄄 Helga Ingibjörg Sigurðardóttir Flúðaseli 85, Reykjavík „„ Guðlaug Ágústa Þorkelsdóttir Æsuborgum 14, Reykjavík „„ Þórunn Guðmundsdóttir Stórholti 25, Reykjavík 60 ÁRA „„ Jónína Inga Jónsdóttir Steinaflöt, Varmahlí𠄄 Jóhann Ólafur Þórðarson Klettaborg 13, Akureyri „„ Hulda M. Magnúsdóttir Mávahlíð, Snæfellsbæ „„ Hafdís A. Magnúsdóttir Borgarbraut 2, Borgarnesi „„ Nadiya Margelova Blöndubakka 18, Reykjavík „„ Zofia Kleinschmidt Grundarstíg 15, Reykjavík „„ Björn Gústafsson Klapparbergi 25, Reykjavík „„ Jón B Sveinsson Vallargerði 34, Kópavogi 70 ÁRA „„ Matthildur Valtýsdóttir Álftamýri 38, Reykjavík „„ Sævar Sigurðsson Hjarðarholti 6, Selfossi „„ Sigfús Guðmundsson Bakkabakka 1, Neskaupsta𠄄 Álfheiður Bjarnadóttir Funafold 67, Reykjavík 75 ÁRA „„ Sigurást Klara Andrésdóttir Bólstað, Hellu „„ Nína Erna Eiríksdóttir Borgarhlíð 2, Stykkishólmi „„ Guðbjörg Benjamínsdóttir Prestastíg 9, Reykjavík „„ Regína Stefnisdóttir Sogavegi 134, Reykjavík „„ Steinunn L. Steinsen Básbryggju 13, Reykjavík „„ Gunnar Gunnarsson Klifagötu 14, Kópaskeri 80 ÁRA „„ Sigurður Hjartarson Álfaskeiði 96, Hafnarfirði „„ Jóhanna S. Jóhannesdóttir Fagrabæ 16, Reykjavík „„ Þorvarður Helgason Lundarbrekku 8, Kópavogi 90 ÁRA „„ Þórhalla Þorsteinsdóttir Víðilundi 2d, Akureyri TIL HAMINGJU INGJU AFMÆLI 17. MAÍ 80 ÁRA Í DAG Björn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi 1946, loftskeytaprófi 1948, símrit- araprófi 1950 og stúdentsprófi frá MH 1975. Björn starfaði á Loftskeyta- stöðinni í Gufunesi í nokkur ár, hjá Samvinnutryggingum, Trygg- ingafélaginu Heimi hf. og loks Vá- tryggingafélaginu hf. til 1970. Hann starfaði hjá Íslenskum aðalverktök- um hf. á Keflavíkurflugvelli á árun- um 1971-75 en starfaði síðan hjá Ís- lenskri endurtryggingu frá 1976 og þar til hann lét af störfum fyrir ald- urs sakir. Fjölskylda Björn kvæntist 16.10. 1954 Helgu Elsu Jónsdóttur, f. 16.8. 1931, hús- móður og fyrrv. skrifstofumanni. Hún er dóttir Jóns Friðriks Matthí- assonar loftskeytamanns og k.h., Jónínu Jóhannesdóttur húsmóður. Börn Björns og Helgu Elsu eru Jónína Bjartmarz, f. 23.12. 1952, gift Pétri Þór Sigurðssyni, f. 29.3. 1954, og eru synir þeirra Birnir Orri, f. 25.6. 1985, og Ernir Skorri, f. 27.2. 1989; Óskar Bjartmarz, f. 14.3. 1956, en kona hans er Svava Schiöth, f. 19.11. 1957, og er sonur þeirra Ottó Axel, f. 7.11. 1996, en börn Óskars frá fyrra hjónabandi og Kristínar I. Gunnarsdóttur, f. 9.1.1957, eru Björn Rúnar, f. 19.11. 1977, og Bryn- hildur Ásta, f. 23.12.1980; Jón Frið- rik Bjartmarz, f. 27.8. 1957, kvæntur Ingibjörgu Jóhannsdóttur, f. 14.10. 1959, og eru börn þeirra Guðrún, f. 11.3.1982 en maður hennar er Þorri Björn Gunnarsson og er son- ur þeirra Alexander Jóhann, f. 17.7. 2007, og Arnar, f. 18.3.1988; Björn Bjartmarz, f. 23.4. 1962, en dóttir hans og Rögnu Lóu Stefánsdóttur er Elsa Hrund, f. 29.6. 1993, en sam- býliskona Björns er Sigríður María Jónsdóttir og á hún þrjú börn, Jó- hann Gunnar, Tómas og Evu Maríu. Bræður Björns: Gunnar Bjart- marz, f. 1931, lengst af kaupmað- ur í Reykjavík; Hilmar Bjartmarz, f. 1934, rafvirki í Garðabæ; Freyr Bjartmarz, f. 1938, offsetprentari í Kópavogi. Foreldrar Björns: Óskar Bjart- marz, f. 15.8. 1891, d. 15.7. 1992, forstöðumaður Löggildingarstofu, og k.h., Guðrún Bjartmarz f. Bjarn- arson 4.9. 1901, d. 24.10. 1977, hús- freyja. Björn Stefán Bjartmarz FYRRV. SKRIFSTOFUMAÐUR TIL HAMINGJU AFMÆLI 18. MAÍ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.