Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2010, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 17. maí 2010 FRÉTTIR
Hinn 81 árs gamli Frano Selak
vann sem nemur 120 milljón-
um króna í króatíska lottóinu fyr-
ir fimm árum. Hann hefur heldur
betur átt skrautlega ævi; sloppið úr
flugslysi, dottið út úr flugvél og lif-
að af alvarlegt lestarslys. Nú hefur
Króatinn ákveðið að selja lúxushús
sitt og gefa allt reiðufé sitt til vina
og vandamanna.
„Allt sem ég þarf er unnusta
mín, Katarina. Peningar eða pen-
ingaleysi mun ekki breyta neinu,“
segir Selak en hann ætlar að ganga
að eiga Katarinu á næstunni. Verð-
ur hún þar með fimmta eiginkona
hans. Selak ætlar að flytja aftur á
uppeldisslóðir sína, nánar tiltekið
til Petrinja sem er bær skammt frá
Zagreb, höfuðborg Króatíu. Selak
ákvað þó að skilja smá aur eftir
til að geta gengist undir aðgerð á
mjöðm til að geta lifað eðlilegu lífi
í ellinni.
Sem fyrr segir hefur Selak átt
skrautlega ævi og í raun óskiljanlegt
að hann skuli enn vera á lífi. Árið
1962 lenti hann í alvarlegu slysi þeg-
ar hann var á leið í lest frá Sarajevo til
Dubrovnik. Lestin fór út af sporinu
og steyptist ofan í ísilagða á. Sautján
manns létust í slysinu en Selak tókst
við illan leik að komast í land, þjáður
af ofkælingu og handleggsbrotinn.
Aðeins einu ári síðar datt hann út
úr flugvél ásamt nítján öðrum þeg-
ar dyr á vélinni opnuðust skyndilega.
Nítján manns létust í slysinu en það
varð Selak til happs að hann lenti á
heysátu. Árið 1966 missti ökumaður
rútu, sem Selak var farþegi í, stjórn á
henni með þeim afleiðingum að hún
endaði úti í á. Fjórir létust í slysinu.
Árið 1970 kom upp eldur í bifreið
hans. Selak tókst að koma sér út úr
bílnum áður en eldurinn læsti sig í
eldsneytistankinn með þeim afleið-
ingum að hann sprakk í loft upp. Þá
varð hann fyrir strætisvagni í mið-
borg Zagreb árið 1995 en slapp án
alvarlegra meiðsla. Ekki löngu síðar
vann hann 120 milljónir króna í lott-
ói.
„Ég hef aldrei sagt að ég hafi verið
heppinn að komast lífs af úr þessum
slysum. Ég var hins vegar óheppinn
að lenda í þeim,“ segir Selak.
einar@dv.is
Kallaður heppnasti maður heims eftir skrautlega ævi:
Gefur auðæfi sín
Stubbar koma
í veg fyrir ryð
Efni sem notuð eru í síur á sígar-
ettum geta komið í veg fyrir að stál
ryðgi. Þetta er samkvæmt niðurstöð-
um kínverskra vísinda-
manna sem rannsökuðu
innihald stubbanna. Þeir
fundu níu efnasambönd,
blönduðu þeim saman
og komu þeim fyrir á stál-
pípum sem notaðar eru í
olíuleiðslur. Í ljós kom
að stálið ryðgaði
síður eftir að efna-
blandan hafði verið
borin á pípurnar. Það var Jun Zhao,
prófessor við Jiatong-verkfræðihá-
skólann, sem leiddi rannsóknina.
Gætu niðurstöðurnar nýst í olíuiðn-
aðinum en milljörðum króna er eytt
á hverju ári í viðhald og viðgerðir á
pípunum.
Hundakjöt
í geimnum
Kínverjar hafa að undanförnu reynt
að hasla sér völl í geimnum og eru
komnir í samkeppni við Bandarík-
in og Rússland á því sviði. Nú hefur
Yang Liwei, fyrsti geimfari Kín-
verja, opinberað að boðið hafi verið
upp á hundakjöt þegar hann fór á
braut um jörðu árið 2003. „Margir
vina minna eru forvitnir um hvað
við borðum og halda að við séum
á sérstöku fæði. Staðreyndin er sú
að við borðum frekar venjulegan
mat,“ sagði Liwei og bætti því við að
hundakjöt hefði verið á boðstólum.
Hafa dýraverndunarsamtök gagn-
rýnt matseðilinn.
Sarkozy reiður
Nicholas Sarkozy, forseti Frakk-
lands, setti hnefann í borðið og
hótaði að draga Frakkland út úr
samstarfi við evruríkin. Þetta gerði
Sarkozy á fundi með leiðtogum
evruríkjanna þegar björgunarpakk-
inn fyrir Grikkland var samþykktur í
byrjun mánaðarins. Sarkozy vildi að
öll evruríkin myndu skuldbinda sig
til að aðstoða Grikki út úr vanda-
málum sínum. Varð þetta til þess að
Angela Merkel, kanslari Þýskalands,
gaf eftir og féllst á að samþykkja
björgunarpakkann.
Obama aðstoðar
Ísraelsmenn
Barack Obama mun á næstu dög-
um leggja til við bandaríska þing-
ið að 200 milljónum dala verði
veitt í að aðstoða Ísraelsmenn við
að koma sér upp eldflaugavarn-
arkerfi. Kerfinu er ætlað að verj-
ast mögulegum eldflaugaárásum
frá Gaza-ströndinni og Suður-
Líbanon. Ísraelsmenn hafa þeg-
ar hafið prófanir á kerfinu en til
stendur að taka það formlega í
notkun síðar á árinu.
Bandaríkjamenn hafa að und-
anförnu aukið fjárhagsaðstoð
sína við Ísraelsmenn. Árið 2009
nam hún 2,55 milljörðum Banda-
ríkjadala en nái áætlanir Obama
fram að ganga munu þær aukast
upp í 3,15 milljarða dala fyrir árið
2018.
Mótmælendur í Taílandi segjast til-
búnir til þess að taka upp viðræður
á nýjan leik við taílensku ríkisstjórn-
ina, gegn því að stjórnin dragi til baka
hersveitir sínar sem hafa háð blóð-
ugt stríð við mótmælendur á götum
Bangkok síðustu daga.
Natthawut Saikua, er leiðtogi
UDD-hreyfingarinnar í Taílandi, sem
segist berjast fyrir lýðræði í landinu
á kostnað einræðis. Hann segir mót-
mælendur vilja sáttafund með ríkis-
stjórninni, sem Sameinuðu þjóðirnar
hafi milligöngu um. Óstöðguleikinn
í Taílandi hefur náð nýjum hæðum
síðustu daga. Mótmælendur og and-
spyrna hinna svokölluðu „Rauðu
skyrtna“ hafa í þúsundum talið
streymt út á götur miðborgar Bang-
kok.
25 hafa fallið
Að minnsta kosti 25 manns hafa lát-
ist í átökum mómælenda og lögreglu
í Bangkok. Þar að auki hafa mörg
hundruð manns slasast alvarlega í
átökunum. Natthawut, leiðtogi and-
spyrnuhreyfingarinnar, virðist vera
búinn að fá nóg. „Við viljum biðja
ríkisstjórnina um að draga hermenn
sína til baka úr hverfunum sem við
höfum verið í. Við viljum hefja við-
ræður með milligöngu SÞ sem allra
fyrst.“
Útgöngubann hafði verið sett á í
Bangkok vegna óeirðanna. Á sunnu-
dag var ákveðið að aflétta útgöngu-
banninu á þeim forsendum að her-
menn ríkisstjórnarinnar hefðu náð
tökum á ástandinu.
„Útgöngubann er ekki nauðsyn-
legt lengur,“ sagði Aksara Kerdpol,
herforingi í taílenska hernum. Hann
segir nauðsynlegt að öryggissveitir
fái áfram að athafna sig í að handtaka
„hryðjuverkamenn“ eins og hann
kallar þá sjálfur. Hins vegar eigi það
ekki að bitna á óbreyttum borgurum.
Skotsvæði
Að minnsta kosti einn féll í átökum í
gær og átta manns féllu á laugardag
þegar taílenskar öryggissveitir mörk-
uðu svæði í miðborg Bangok þar sem
hver sem er yrði skotinn, ef hann
hætti sér inn á það.
Mörkun skotsvæðisins var nokk-
uð óvænt þar sem ríkisstjórnin hafði
áður lýst því yfir að mótmælendur
hefðu til klukkan 15 í dag til þess að
yfirgefa umrædd svæði. Karlar þurftu
að skrá sig við sérstök hlið, en kon-
ur og börn gátu farið án þess að skrá
sig. Taílenskir fjölmiðlar sögðu svo
Við viljum biðja ríkisstjórnia um
að draga hermenn sína
til baka úr hverfunum
sem við höfum verið í.
Við viljum hefja viðræð-
ur með milligöngu SÞ
sem allra fyrst.
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
ÓFRIÐUR Í TAÍLANDI
Frumstæð vopn Mótmæl-
endur stöfluðu upp dekkjum
og notuðu teygjubyssur gegn
taílenskum öryggissveitum.
Þeir máttu sín lítils, þar sem
herinn beitti leyniskyttum.
MYNDIR/AFP