Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2010, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 17. maí 2010 MÁNUDAGUR 11
NAUÐGARI ÓTTAST FANGELSI
Hrafnhildur Stefánsdóttir, fórnar-
lamb Bjarka Más, flúði til Noregs
eftir að hann áfrýjaði átta ára fang-
elsisdómi á hendur sér til Hæsta-
réttar. Í útlöndum var hún hins
vegar ekki óhult því þangað ferðað-
ist Bjarki Már nýverið og segir hún
hann hafa áreitt sig að næturlagi.
Allan tímann sem hann var í land-
inu vaktaði norska lögreglan heim-
ili Hrafnhildar. „Að fá hann hingað
út var alveg ólýsanlegt, ég sat bara
frosin við eldhúsborðið með hnef-
ana kreppta. Þar sat ég á vakt með
því að horfa út um gluggann. Hann
gerði tilraun til að heimsækja mig
og var bara hér í næsta garði, ég
sturlaðist náttúrlega og gat hvorki
sofið né borðað allan þennan tíma
sem hann var í landinu. Ég mætti
sem betur fer skilningi lögreglunn-
ar sem vaktaði húsið mitt allan tím-
ann,“ segir Hrafnhildur.
Í viðtali í helgarblaði DV sagðist
Hrafnhildur sjálf hafa verið í hátt í
sex ára fangelsi frá því hún kynnt-
ist Bjarka Má. Aðspurð óttast hún
einnig biðina fram að því að hann
hefji afplánun. „Þetta er vissulega
léttir. En á sama tíma óttast ég við-
brögð hans og verð logandi hrædd
þar til hann fer í fangelsi. Nú tekur
við versta biðin því hann hlýtur að
vera ósáttur með niðurstöðuna og
ég veit ekkert hvað hann gerir,“ seg-
ir Hrafnhildur.
„Ég hef lifað í stöðugum ótta,
alla daga og nætur. Málinu er
ekki lokið fyrir mér fyrr en Bjarki
fer loksins inn í fangelsi og í raun
ekki algerlega fyrr en ég er búin
að fá aðstoð við að vinna mig frá
þessum hörmungum. Þó svo ég
viti ekki hversu lengi ég verði að
vinna mig út úr þessu er ég bjart-
sýn á framtíðina. Tilfinningar mín-
ar hafa verið dofnar um árabil og
Guð mun vonandi hjálpa mér með
fyrirgefninguna þegar frá líður. Ég
á mér von um betra líf og bíð eftir
frelsinu.“
Guð hjálpar mér vonandi
með fyrirgefninguna
Strax í fangelsi
Á meðan nærri 400 einstaklingar bíða afplánunar, þar á meðal aðrir
kynferðisbrota- og ofbeldismenn, þarf Bjarki Már ekki að bíða. Páll
Winkel fangelsismálastjóri staðfestir að hann hafi ver-
ið boðaður til afplánunar og að hann hafi nú þriggja
vikna frest til að gefa sig fram. Páll á von á því að
Hegningarhúsið taki fyrst við kynferðisbrotamann-
inum og síðan Litla-Hraun. „Það eru menn þarna
úti sem hafa fengið dóma fyrir hin og þessi brot, of-
beldis- og kynferðisbrot þar á meðal, og þurfa að
bíða eftir plássi. Í sumum tilvikum eru það einstakl-
ingar með ítrekuð ofbeldisbrot á bakinu. Þetta
mál er þannig vaxið að við ráðumst strax í
það. Það eru hreinar línur að hjá okkur
er það forgangsverkefni að koma honum
inn. Þó svo að við glímum við plássleysi
verðum við að taka inn þá sem eru með
alvarlegustu glæpina,“ segir Páll.
Vernda fórnarlambið
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir forgangsröðun
fangels anna nauðsynlega þar sem taka verði úr umferð hættulega
einstaklinga. Það verði einfaldlega að tryggja öryggi fólks og fórnar-
lamba. „Menn sem beita hrottalegu ofbeldi eru augljóslega hættu-
legir, það segir sig sjálft. Í ljósi alvarleika þessa brots finnst mér
skrítið að fórnarlambið hafi ekki verið varið betur. Það segir sig
sjálft að fórnarlambið getur ekki unnið úr ótta sínum á meðan of-
beldismaður gengur laus. Ofbeldi gegn konum verður að taka alvar-
lega og við verðum að gera bót á því,“ segir Guðrún.
Guðrún skilur ekkert í því hvers vegna Bjarki Már hafi hvorki verið
hrepptur í gæsluvarðhald né settur í farbann. „Þarna er um að ræða
einstaklega gróft brot og langan dóm sem lýsir alvöru málsins. Við
hljótum að krefjast þess að hættulegir menn séu einfaldlega tekn-
ir úr umferð og við verðum að hafa leiðir til að tryggja að fleiri geti
ekki orðið fyrir skaða. Við höfum því miður dæmi um slíkt,“ segir
Guðrún.
Varðhald er
undantekning
Kolbrún Sævarsdótt-
ir, saksóknari hjá emb-
ætti ríkissaksóknara,
bendir á að almennt sé
reglan sú að menn séu
ekki settir í gæsluvarð-
hald á meðan beðið er
dóms. Hún segir ákveð-
in skilyrði þurfa að vera
til staðar svo farið sé
fram á varðhald. „Það
eru ákveðin skilyrði,
eins og rannsóknar-
hagsmunir, ótti um að
viðkomandi flýi land
eða að einhverjum standi hætta af viðkomandi. í kynferðisbrota-
málum er sönnunarstaðan oft mjög erfið og þess vegna getur ver-
ið erfitt að fara fram á varðhald. Áður en fólk er dæmt endanlega
er gæsluvarðhald frekar undantekning og fólk getur svo deilt um
hvort það sé rétt. Í þessu ákveðna máli, ef fórnarlambið hefur óttast
þann dæmda, hefði nálgunarbann verið æskilegt en því var hafnað í
Hæstarétti,“ segir Kolbrún.
Hrafnhildur Stefánsdóttir, fórnarlamb Bjarka Más:
Óttast afplánun Í viðtali við DV segist
Bjarki Már óttast fyrirhugaða fangelsisvist
og fullyrðir að hann sé ekki sá kynferðis-
brotamaður sem dómstólar haldi.