Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Page 8
Álfheiður tengd lýsingu n Álfheiður Ingadóttir heilbrigðis- ráðherra er einn vígreifasti aktífisti íslenskra stjórnmála og tekur jafnan harða afstöðu með lítilmagn- anum. Þannig var hún viðstödd hina sögulegu árás mótmæl- enda á Lögreglu- stöðina á Hverf- isgötu við upphaf búsáhaldabylt- ingarinnar. Álfheiður þarf hins vegar að slíðra sverðin þegar heim er kom- ið. Eiginmaður hennar, Sigurmar K. Albertsson hæstaréttarlögmaður, vinnur fyrir lánafyrirtækið Lýsingu og reynir allt hvað hann getur til að tryggja sigur lánafyrirtækisins á einstaklingum sem eiga erfitt með að borga tvöfölduð gengistryggð lán. Þetta hlýtur að vera nokkuð erfitt fyr- ir Álfheiði sem er alin upp í Alþýðu- bandalaginu og hefur alltaf haft hags- muni almennings og lítilmagnans að leiðarljósi í hinni eilífu baráttu við stórfyrirtækin og auðvaldið. Bónusfortíð Baugshatara n Hægri-öfgamaðurinn Friðbjörn Orri Ketilsson, sem stendur meðal annars að vefmiðlinum AMX, hefur skipað sér í flokk með Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni og fleirum, sem eru harðsvíruðustu andstæðing- ar Baugsveld- isins. Friðbjörn býr hins vegar yfir ýmiss konar starfsreynslu, sem hann hefur mishátt um. Reyndar má segja að frá hans yngri árum sé einn ferill sláandi farsæll. Hann byrjaði sem lagerstarfsmaður hjá Bónus árið 2000. Þá vann hann sig fljótt upp í stöðu aðstoðarverslunarstjóra og síðar verslunarstjóra hjá Bónus. Þetta má sjá á ferilskrá hans, sem var fjar- lægð af netinu fyrir nokkru. Þar taldi hann fram að áður en yfir lauk hefði hann verið verslunarstjóri í minnst 13 Bónusverslunum, áður en stolt hans dvínaði. Vel væri því hægt að hengja nafngiftina fyrrverandi Baugsliði á þennan harða AMX-mann. hatur hannesar n Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur svarað ásökunum Egils Helgasonar um að hann leggi fæð á Þorvald Gylfason hag- fræðing og fjöl- skyldu hans og kallar þá gjarnan Aragötufeðgana þegar illa liggur á honum. Að sögn Hannesar ber hann engar til- finningar til Þorvaldar og fjölskyldu, en hins vegar kunni að vera að hann sjálfur sé eitur í beinum þeirra. Ástæðan sé að Hannes hafi upplýst ritstuld föður Þorvaldar, Gylfa Þ. Gíslasonar ráðherra, í blaðagrein árið 1979. Undanfarið hefur Hannes verið staddur í Brasilíu í leyfi. Það er ekki óviðeigandi, þar sem einhverjar æv- intýralegustu sápuóperur heims eru framleiddar þar í landi. sandkorn 8 fréttir 9. júlí 2010 föstudagur Brúðkaups gjafir FU RS TY N JA N Söfnunarstell 13 teg. á lager - Pöntum inn í enn fleiri stell Hnífaparatöskur f/12m. 72 hlutir margar gerðir Hitaföt - margar gerðir Líttu á www.tk.is FALLEGUR KRISTALL K r i n g l u n n i - S í m i : 5 6 8 9 9 5 5 40 ára Vörur á verði fyrir þig Ótrúlegt glasaúrval á frábæru verði Verum vinir á Lyst ehf., rekstraraðili Metro, áður McDonald‘s, er gjaldþrota. Rekstur- inn hefur verið seldur Lífi og heilsu ehf. sem tekur við veitingastöð- um Metro í Skeifunni og á Smára- torgi. Rekstri veitingastaðarins í Kringlunni hefur verið hætt. Jón Garðar Ögmundsson, eigandi Lyst- ar, segir leiðinlegt að svo hafi farið, hann hafi fundið vinnu fyrir marga starfsmenn frá Kringlunni á öðrum veitingastöðum og reynt að aðstoða alla þá starfsmenn sem þjást vegna þessara tímamóta hjá Metro. „Ég lenti sjálfur verst í þessu. Lán- in mín hækkuðu, eins og hjá mörgum öðrum, og á endanum seldi ég rekst- urinn. Ég reyndi að hjálpa krökkun- um sem unnu í Kringlunni og gerði það sem ég gat,“ segir Jón Garðar. Guðlaug Ingibjörg Albertsdóttir var rekstrarstjóri Metro í Kringlunni. Hún er ósátt við vinnubrögð Lyst- ar, enda segist hún ekki hafa fengið útborguð laun um síðustu mánaða- mót. Hún á von á barni og segir að streitan sem fylgi því að standa í deil- um við fyrrverandi vinnuveitendur sína hafi haft slæm líkamleg áhrif. Algjört sjokk „Þegar Metro í Kringlunni hætti, var mér ekki sagt upp og ég á því enn þá rétt á launum hjá fyrirtækinu,“ segir Guðlaug Ingibjörg sem hefur unn- ið hjá fyrirtækinu í hálft sjöunda ár. „Ég fékk algjört sjokk á föstudaginn síðasta þegar ég komst að því að ég hafði ekki fengið útborgað hjá fyrir- tækinu. Margir þeirra sem unnu undir mér í Kringlunni hafa feng- ið vinnu á öðrum veitingastöðum Metro. Þeir fengu útborgað frá nýja fyrirtækinu, en ég er enn á launa- skrá hjá Lyst ehf., sem er gjaldþrota. Ég er leið og sár yfir þessu, því ég vann lengi fyrir þetta fyrirtæki,“ seg- ir hún. Komin átta mánuði á leið Guðlaug á von á barni og er komin átta mánuði á leið. „Mér skilst að ég eigi inni þriggja mánaða upp- sagnarfrest, en mér hefur samt auðvitað ekki verið sagt upp enn þá. Ég á líka sumarfrí inni. Ég leitaði til stéttarfélagsins Efling- ar og þar var mér sagt að ég gæti sótt launin mín til Ábyrgðasjóðs launa þar sem ég fengi greitt eft- ir tólf til átján mánuði. Eigendur Lystar hafa ekki haft samband við mig um launamál né annað í kjöl- far þessa gjaldþrots. Ég er ólétt og stressið hefur líkamleg áhrif, mér leið mjög illa á föstudaginn þegar ég fékk ekki útborgað. Ég reyndi að hringja á skrifstofu Lystar og þar var búið að aftengja öll síma- númer. Ég talaði við þann sem ég hélt að væri framkvæmdastjóri en hann neitaði að hafa gegnt þeirri stöðu síðastliðin tvö ár, sem kom mér algerlega í opna skjöldu.“ Reyna að aðstoða alla Guðlaug segist hafa heyrt reglulega í fyrrverandi starfsmönnum sín- um í Metro, Kringlunni. „Þeir vilja fá útskýringar á hver þeirra rétt- ur sé, hvort þeir fái ekki örugglega útborgað og hvort þeir fái orlofið greitt. Ég hef bent þeim á að ræða við stéttarfélagið en að það væri í raun ekki mikið sem ég gæti gert.“ Jón Garðar Ögmundsson segir að nú sé reynt að greiða úr þeim málum sem fylgja gjaldþroti Lyst- ar. „Við erum að vinna í þessu og það munu allir fá greitt á endan- um. Það er leiðinlegt að svona hitti á, en við höfum reynt að hjálpa öll- um sem að málinu koma.“ Það vakti heimsathygli í nóv- ember þegar Lyst ehf. tók niður skilti McDonald‘s og hóf að selja Metro- borgara í staðinn. Það var gert í kjölfar hrunsins þar sem kostnaðarsamt þótti að flytja hið sérvalda McDonald‘s-hráefni til landsins og heppilegra að nota mestmegnis íslenskt hráefni í borg- arana. HElGI HRAFn GuðmundSSOn blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is FÆR EKKI LAUN FRÁ GJALDÞROTA METRO Rekstraraðili hamborgarakeðjunnar Metro er gjaldþrota. Jón Garðar Ögmundsson, eigandi Lystar ehf., seldi Líf og heilsu ehf. reksturinn. Veitingastað Metro í Kringlunni hefur verið lokað. Guðlaug Ingibjörg Albertsdóttir, rekstrarstjóri Metro í Kringlunni, fékk ekki greidd laun um síðustu mánaðamót þó að henni hafi ekki verið sagt upp. metro Veitingastaðakeðjan,semáðurbarnafnMcDonald‘s,stendurátímamótum. Eigandi lystar JónGarðarÖgmunds- sonsegiraðstarfsfólkiðfáilauninsín, þráttfyrirþáerfiðustöðusemkominer upp. Sár og leið GuðlaugIngi- björgAlbertsdóttirfærekki launinsínhjáMetro.Húnsegir þaðhafatekiðá,endaséhún komináttamánuðiáleið. Ég er ólétt og stressið hefur líkamleg áhrif.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.