Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Blaðsíða 13
föstudagur 9. júlí 2010 fréttir 13 Sældarlíf KaupþingSKlíKunnar í lúx Ari Daníelsson, fyrrverandi banka- stjóri Glitnis í Lúxemborg, býr í næstu götu við Hreiðar Má í Cents-hverfinu. Hreiðar skuldaði Kaupþingi nærri sex milljarða króna við fall Kaupþings vegna kúlulána til hlutabréfakaupa. Hann var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar sér- staks saksóknara á málefnum Kaup- þings. Kalt yfirbragð hans vakti athygli þegar myndir birtust af honum í ís- lenskum fjölmiðlum eftir að hann var handtekinn og yfirheyrður. Öfugt við Magnús Guðmundsson var ekki að sjá að Hreiðari Má væri brugðið. Þvert á móti gekk hann til og frá yfirheyrsl- um með hendur í vösum eins og hann væri í hæglátum göngutúr á sunnu- degi. Nú hefur hann það gott í Lúxem- borg og situr væntanlega á milljörðum króna sem hann getur leikið sér með - Hreiðar Már var launahæsti íslenski bankamaðurinn. Hreiðar Már er þessa dagana staddur í Lúxemborg en DV náði ekki tali af honum. Ingólfur býr vel Þeir Ingólfur Helgason og Steingrím- ur P. Kárason, fyrrverandi yfirmaður áhættustýringar Kaupþings, búa líka vel í Lúxemborg. Ingólfur býr ásamt fjölskyldu sinni í smábænum Hespe- dv í l úx em bo rg Hafa ekki fengið gögnin frá lúx Beðið er eftir að yfirvöld í Lúx heimili sendingu gagna úr húsleitum í Kaupþingsmálinu: Yfirvöld í Lúxemborg framkvæmdu húsleitir þar í landi í febrúar og maí 2010 fyrir hönd embættis sérstaks saksóknara vegna rannsóknar- innar á málefnum Kaupþings. Meðal annars var um að ræða húsleitir í höfuðstöðvum Banque Havilland, áður Kaupþingi í Lúxemborg. Lagt var hald á mikið magn af gögnum í húsleitunum og munu þau hugsan- lega geta nýst embætti Ólafs Haukssonar í rannsóknunum á málefnum Kaupþings. Embætti Ólafs fór fram á réttaraðstoð við húsleitina með beiðni sem kallast réttarbeiðni á íslensku eða derogatory request á ensku. Þetta er gert þegar yfirvöld í einu landi þurfa aðstoð yfirvalda í öðru en embætti sérstaks saksóknara hefur ekki lögsögu til að fara til Lúxemborgar og framkvæma slík- ar húsleitir sjálft. Yfirvöld í Lúxemborg þurfa nú að vega og meta hvort embætti Ólafs Haukssonar eigi að fá gögnin send eða ekki. Sérstakur rannsóknardómari hefur verið skipaður þar í landi til að fara yfir gögnin. Þeir Kaupþingsmenn geta gert athugasemdir við hvernig hald var lagt á gögnin og þarf rannsóknardómarinn að taka tillit til at- hugasemda þeirra þegar hann ákveður hvort gögnin verða send hingað til lands eða ekki. Heimildir DV herma að gerðar hafi verið ýmsar athugasemdir við það hvernig hald var lagt á gögnin í húsleitunum. Meðal annars munu forsvarsmenn Havilland- bankans hafa gert slíkar athugasemd- ir. Ákvörðun rannsóknardómarans verður hægt að skjóta til æðri réttar í Lúxemborg. Sérstakur saksóknari þarf því að lúta þeim réttarreglum sem gilda í Lúxemborg að þessu leyti og ræður embættið sjálft því ekki alger- lega för í rannsókninni því ákæruvaldið í Lúxemborg heldur utan um þennan anga rannsóknarinnar eins og er. Þetta hefur þau áhrif að embætti sérstaks saksóknara hefur ekki ennþá fengið gögnin sem lagt var hald á í húsleitunum því ennþá er verið að meta hvort senda eigi gögnin hingað til lands. Hugsan- legt er að embætti saksóknara fái gögnin því ekki fyrr en í fyrsta lagi í haust. Á meðan heldur rannsóknin á Kaupþingsmálinu áfram hér heima. Vel gæti hins vegar farið svo, eftir að sérstakur saksóknari fær gögnin frá Lúxemborg í hend- urnar, að kalla þurfi á þá Kaupþingsmenn í yfirheyrslu aftur. Þegar ákæruvaldið í Lúxemborg vegur og metur hvort senda eigi gögnin til Íslands kann að spila inn í hvernig yf- irvöld í ríkinu meta hagsmuni Lúxemborgar sem fjár- málamiðstöðvar í málinu en meirihlutinn af tekjum smáríkisins kemur frá fjármálalífi ríkis- ins. Ekki er gott fyrir Lúxemborg að það spyrjist út fyrir landið að það standi ekki vissan vörð um þá fjármálastarf- semi sem er í ríkinu og þá bankaleynd sem henni fylgir. Þetta er því í raun pól- ítísk spurning en ekki lögfræðileg. Af þessu sést að rannsókn embætt- isins á Lúxemborgarhluta Kaupþings- málsins er mjög tímafrek, flókin og þung í vöfum. range rétt fyrir utan Lúxemborg. Þar býr Ingólfur í fjögurra hæða raðhúsi líkt og Hreiðar Már. Fyrir utan heimili Ingólfs stóð stórglæsileg Audi bifreið, þegar blaðamaður DV fór og skoð- aði húsið, en áætlað verð hennar er í kringum 15 milljónir króna. Við hrun Kaupþings skuldaði Ingólfur Kaupþingi nærri 3.500 millj- ónir króna vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Hann var sem kunnugt er úrskurð- aður í vikulangt gæsluvarðhald vegna rannsóknar sérstaks sakóknara í byrj- un maí og birtust myndir af honum í fjölmiðlum í fylgd lögreglumanna þar sem hann fór til og frá höfuðstöðvum sérstaks saksóknara á Laugavegi. Full- yrða má að þáttur Ingólfs í meintum brotum Kaupþings sem til rannsókn- ar snúist fyrst og fremst um að hann hafi framkvæmt það sem Hreiðar Már sagði honum að gera. Ingólfur var ekki lykilmaður í að skipuleggja viðskipta- gjörninga bankans. Áhættustjórinn Steingrímur Steingrímur P. Kárason býr í hverf- inu Bertrange sem er einnig skammt frá Lúxemborg. Steingrímur var sem kunnugt er yfirmaður áhættustýring- ar Kaupþings en flutti til Lúxemborg- ar um svipað leyti og Hreiðar Már og Ingólfur. Hann skuldaði Kaupþingi nærri 2.300 millónir króna við fall bankans vegna kúluláns sem hann framHald Tjáði hún blaða-manni að Hreiðar Már Sigurðsson væri eini af þeim starfsmönnum fyrirtækisins sem hand- teknir voru á dögunum sem nú væri staddur í Lúxemborg. m yn d Ir f r Á l ú x a n n a S SI g m u n d SS o n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.