Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Side 20
20 úttekt 9. júlí 2010 föstudagur „Við áttum frábæra æsku,“ segir Ósk- ar. Hann er miðjubarnið, Guðni bróð- ir hans er yngstur og systir þeirra elst. „Pabbi og mamma bjuggu sam- an á Ísafirði. Hann var alkóhólisti og skildi við mömmu. Mamma byrjaði að drekka út af skilnaðinum. Við flutt- um svo til Akureyrar og þar fór hún að drekka mjög stíft,“ segir Guðni. Óskar segir að skilnaðurinn hafi verið erfið- ur fyrir móður þeirra. Faðir þeirra yfir- gaf hana snögglega og skildi hana eft- ir eina með þrjú börn á meðan hann yngdi upp. Þeir voru svo ungir og sérstak- lega Guðni sem varð þess lítið var að mamma hans væri að drekka. Á með- an þeir bjuggu enn báðir heima gat mamma þeirra yfirleitt hamið sig þar til þeir voru farnir upp í rúm að sofa. Þá fyrst hófst drykkjan að einhverju ráði, segir Guðni: „Auðvitað sá ég hana oft fulla en hún byrjaði yfirleitt ekki að drekka fyrr en við vorum komnir í hátt- inn. Þannig að ég sá ekki mjög mikið af því sem var að gerast. Einstaka sinn- um sá ég flöskur þegar ég kom fram á morgnana. Ég man eftir einu skipti þar sem mér blöskraði og ég fór. Þá hafði ég hótað því að fara ef hún hætti ekki að drekka, sem hún gerði ekki, þannig að ég labbaði út. Ég var þreyttur og tættur en hún elti mig, náði mér og fór með mig heim þar sem við fórum að sofa. Þegar við vöknuðum daginn eftir var hún orðin edrú og fín.“ Hlúði að börnunum Drykkjan kom ekki í veg fyrir að hún hugsaði vel um börnin. Hún gat séð þeim fyrir því sem þau þurftu, ást, hlýju og öryggi, segir Guðni: „Það var merkilegt hvernig hún gat það alltaf. Hún gat það og hún gerði það. Hún var í vinnu og hélt öllu hreinu og fínu heima. Á kvöldin sturtaði hún svo í sig brennivíni. Ég var auðvitað ungur og vitlaus og sá ekki hvað var að gerast. Mamma fór mjög leynt með drykkj- una en systkini mín voru eldri og vissu meira. Við fengum alltaf nóg að borða og þó að við hefðum næstum misst af einum jólum, hvað með það?“ Ein jólin rankaði mamma hans nefnilega ekki við sér úr áfengisdáinu fyrr en klukkan fimm. „Þetta var svolítið stress um daginn, en svo vaknaði hún og gerði allt klárt fyrir klukkan sjö. Þá var allt orðið hreint og fínt. Hún er nefni- lega þekkt fyrir það að vera snyrtilegur róni,“ útskýrir Guðni. Einn í heiminum Yfirleitt sat hún ein að sumbli en undir blálokin á þessu tímabili var hún far- in að draga með sér alls konar menn heim, sem voru þá drykkjufélagar og kærastar. Þá kom fyrir að hún hélt partí. „Þá var hún farin að missa tökin. Annars var hún aldrei með læti,“ segir Guðni. Óskar rifjar það upp að hún reyndi að ná tökum á drykkjunni og fór nokkr- um sinnum í meðferð því hún hafi ver- ið staðráðin í því að hætta. Á með- an voru þeir bræður sendir í fóstur. Stundum fóru þeir saman en stund- um var Guðni sendur til ættingja á Ísa- firði og Óskar fór einn í fóstur. „Við vor- um bara litlir strákar. Ætli ég hafi ekki verið svona sjö, átta og níu ára gamall. Guðni er tveimur árum yngri. Ég fór alltaf til ókunnugra. Það var mjög erf- itt. Ég vissi ekkert hvar mamma væri eða hvað væri í gangi. Ég grét mig í svefn á kvöldin og spurði mig að því af hverju ég væri ekki hjá mömmu minni. Ég þekkti þetta fólk ekki neitt. Mér var bara sagt að hún væri veik og þyrfti að láta lækna sig. Svo liðu heilu mánuðirnir þar til ég fór heim aftur. Á meðan ég var á þessum fósturheimil- um fann ég fyrir einmanaleika. Ég var tómur að innan og leið eins og ég væri einn í heiminum.“ Óskar fór á fjögur fósturheimili. Fyrst fór Guðni með honum og það var aðeins skárra. „Þegar ég var einn sakn- aði ég hans mjög mikið. Það var skrýt- ið að vera svona einn. Hann var farinn á Ísafjörð, systir mín var farin suður og mamma var horfin í flöskuna. Mér fannst ég vera einn og yfirgefinn. Þetta voru erfiðir tímar.“ Ofbeldisfullur sambýlismaður Hann var líka einn hjá móður sinni þegar versti kaflinn í þeirra sambýli hófst. Þetta var um sumar og Guðni var í sveit en Óskar hafði orðið eftir á Akureyri. Systir þeirra var farin suður þar sem hún leigði íbúð með vinkonu sinni og sá um sig sjálf sextán ára göm- ul. Mamma þeirra kom úr meðferð en í þetta skiptið kom hún ekki ein. Hún hafði kynnst manni í meðferðinni og þau hófu búskap. Óskari fannst það svolítið skrýtið að fá annan mann inn á heimilið eftir skilnaðinn en mjög spennandi um leið. Nú áttu þau líka bíl í fyrsta skipti. Þetta leit allt mjög vel út, allavega í þá tvo mánuði sem þau entust edrú saman. „Á einum degi breyttist allt þegar þau duttu í það. Þetta varð ein martröð.“ Maðurinn sem hafði verið geð- þekkur og vinalegur breyttist í ófreskju um leið og hann sneri sér að flösk- unni. „Hann var snarklikkaður með áfengi og mjög ofbeldishneigður. Ég man þegar ég vaknaði eina nóttina og sá hvar hann lá ofan á mömmu og lét höggin dynja á henni. Ég hafði vaknað við hljóðin undan höggunum.“ Óskar kastaði stól í manninn og kastaði sér svo ofan á hann til að reyna að ýta hon- um ofan af móður sinni. Maðurinn ýtti honum frá en róaðist um leið. „Þá vissi hann hvað hann var búinn að gera. Daginn eftir talaði mamma við mig. Hún reyndi að segja að hann hefði gert mistök og hann myndi aldrei endur- taka leikinn. Hann gerði þetta auðvit- að aftur og aftur og ég þurfti að horfa Hér á undan var stiklað á stóru í sögu Önnu Guðrúnar Óskarsdóttur. Synir hennar horfðu upp á móður sína missa tökin á áfengissýkinni og lífinu eins og þau þekktu það. Þeir lýsa því hvernig sjúkdómurinn stigmagnaðist og hörmungunum sem fylgdu. Þeir voru sendir í fóstur og annar bróðirinn sá sambýlismann hennar beita hana ofbeldi, heimilið tæmast þegar hún seldi allar eigur þeirra fyrir áfengi og flúði sjálfur á náðir áfengis. Þeir eru báðir fjölskyldumenn í dag og eiga enn erfitt með að sætta sig við sjúkdóminn. „ég veit að hún saknar okkar“ inGibjÖrG dÖGG kjartansdÓttir blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is Hún hefur aldrei fyrirgefið sjálfri sér hvernig þetta fór. sv ið sE tt m yn d s iG tr yG G u r a ri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.