Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Page 25
föstudagur 9. júlí 2010 fréttir 25 Einn meintur njósnari hefur fengið meiri athygli en hinir. Þar er um að ræða Önnu Chapman, en hún hefur fengið stærri skerf af sviðsljósinu en félagar hennar. Anna eyddi á árum áður tíma sínum á Englandi og sýnir myndin sem dregin hefur verið upp af Önnu, sem ku heita Anya Kush- chenko réttu nafni, unga konu sem lifði og hrærðist á meðal viðskipta- jöfra og fjármálamanna. Hún stund- aði næturklúbbinn Annabel’s sem er mikið sóttur af viðskiptamönnum, þeirra á meðal Vincent Tchenguiz og Philip Green, sem á sumar af stærstu smásöluverslunum Bretlands. Af þessum sökum vöknuðu grunsemdir hjá FBI um að hún hefði fengið það verkefni hjá rússnesku leyniþjón- ustunni að koma sér í mjúkinn hjá áhrifamiklu fólki á Vesturlöndum. Áhyggjulaus bóhem Anna Chapman er með meist- aragráðu í hagfræði frá háskóla í Moskvu. Síðar starfaði hún í Lund- únum, meðal annars hjá NetJets, Barclays-banka og fáeinum fyrir- tækjum öðrum. Árið 2001 hitti hún Alex Chapman í reifpartíi í Lundún- um. Alex Chapman er sonur bresks fjármálamanns og gengu hann og Anna í hjónaband skömmu síðar í Moskvu. Þegar Anna var handtekin í júní viðurkenndi Alex að það kæmi hon- um ekki á óvart. Sagði hann að Anna hefði verið „áhyggjulaus bóhem“ þegar þau giftust. Alex sagði enn fremur að Anna væri afburðagáfuð og með greindarvísitölu upp á 162. Alex gerði sér síðar mat úr ljós- myndum af Önnu, sem hann seldi, sem sýna hana hálfnakta, hand- fjatla kynlífsleikföng og lýsti fjálg- lega frammistöðu hennar í rúminu og hvað hún aðhylltist í þeim efn- um. Anna Chapman hefur fengið mesta umfjöllun meintra njósnara, svo mikla að móður hennar, Irinu Kuschenko, finnst nóg komið. Hún hefur gagnrýnt fjölmiðla og sagðist mögulega höfða mál gegn dagblöð- um á þeim grundvelli að þau hefðu virt rétt Önnu til einkalífs að vettugi. Irina Kuschenko sagði að dótt- ir sín hefði ávallt verið „sjálfstæð og ærleg manneskja“. Fyrirhuga Fangaskipti Anna Chapman Heitir réttu nafni Anya Kushchenko. Mynd: Afp kynþokkafulli njósnarinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.