Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Síða 25
föstudagur 9. júlí 2010 fréttir 25
Einn meintur njósnari hefur fengið
meiri athygli en hinir. Þar er um að
ræða Önnu Chapman, en hún hefur
fengið stærri skerf af sviðsljósinu en
félagar hennar. Anna eyddi á árum
áður tíma sínum á Englandi og sýnir
myndin sem dregin hefur verið upp
af Önnu, sem ku heita Anya Kush-
chenko réttu nafni, unga konu sem
lifði og hrærðist á meðal viðskipta-
jöfra og fjármálamanna. Hún stund-
aði næturklúbbinn Annabel’s sem er
mikið sóttur af viðskiptamönnum,
þeirra á meðal Vincent Tchenguiz og
Philip Green, sem á sumar af stærstu
smásöluverslunum Bretlands. Af
þessum sökum vöknuðu grunsemdir
hjá FBI um að hún hefði fengið það
verkefni hjá rússnesku leyniþjón-
ustunni að koma sér í mjúkinn hjá
áhrifamiklu fólki á Vesturlöndum.
Áhyggjulaus bóhem
Anna Chapman er með meist-
aragráðu í hagfræði frá háskóla í
Moskvu. Síðar starfaði hún í Lund-
únum, meðal annars hjá NetJets,
Barclays-banka og fáeinum fyrir-
tækjum öðrum. Árið 2001 hitti hún
Alex Chapman í reifpartíi í Lundún-
um. Alex Chapman er sonur bresks
fjármálamanns og gengu hann og
Anna í hjónaband skömmu síðar í
Moskvu.
Þegar Anna var handtekin í júní
viðurkenndi Alex að það kæmi hon-
um ekki á óvart. Sagði hann að Anna
hefði verið „áhyggjulaus bóhem“
þegar þau giftust. Alex sagði enn
fremur að Anna væri afburðagáfuð
og með greindarvísitölu upp á 162.
Alex gerði sér síðar mat úr ljós-
myndum af Önnu, sem hann seldi,
sem sýna hana hálfnakta, hand-
fjatla kynlífsleikföng og lýsti fjálg-
lega frammistöðu hennar í rúminu
og hvað hún aðhylltist í þeim efn-
um. Anna Chapman hefur fengið
mesta umfjöllun meintra njósnara,
svo mikla að móður hennar, Irinu
Kuschenko, finnst nóg komið. Hún
hefur gagnrýnt fjölmiðla og sagðist
mögulega höfða mál gegn dagblöð-
um á þeim grundvelli að þau hefðu
virt rétt Önnu til einkalífs að vettugi.
Irina Kuschenko sagði að dótt-
ir sín hefði ávallt verið „sjálfstæð og
ærleg manneskja“.
Fyrirhuga Fangaskipti
Anna Chapman Heitir réttu
nafni Anya Kushchenko. Mynd: Afp
kynþokkafulli njósnarinn