Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Side 30
Útgáfutónleikar Seabear Sjömenningarnir í  Seabear halda útgáfutónleika sína í Iðnó í kvöld, föstudag. Tónleikarnir eru settir upp vegna útgáfu annarrar plötu þeirra, We Built A Fire, sem kom út í mars síðastliðnum. Vegna tónleikaferðalaga erlendis undanfar- ið hálfa árið eða svo hafa útgáfutónleikarnir tafist aðeins. Hljómsveitin er í stuttu fríi hér á landi áður en hún mun halda aftur út fyrir landstein- ana í haust með spilamennsku bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Húsið er opnað klukkan 21 og er miðaverð krónur 2000. Upphitun sér Eysteinn Pétursson um og mun hann stíga á svið rétt fyrir 22. ÞjóðdanSa- og Þjóðlagamót Þjóðdansafélag Reykjavíkur stendur fyrir  þjóðdansa- og þjóðlagamótinu Ísleik 2010 sem hefst í dag, föstudag. Mótið fer fram í Hagaskóla og er haldið í samráði við norrænu danssamtökin Nordlek dagana 9. til 16. júlí. Flestar uppákomur á mótinu eru í boði mótsins, það er, með engum aðgangseyri. Þjóðdansafélag Reykjavíkur vonast eftir að flestir landsmenn fái notið boðsins. Nánari upplýsingar um mótið á isdans.is. epísk snilld 2.0 Það er ekki að ástæðulausu sem Super Mario Galaxy 2 er strax kom- inn í þriðja sæti yfir bestu dæmdu leiki allra tíma á gamerankings.com. Aðeins forveri hans og The Legend of Zelda: Ocarina of Time eru ofar á listanum. Hér er um að ræða ann- að meistaraverkið í röð frá Nintendo þar sem rauðklæddi píparinn er í að- alhlutverki. Í fyrstu sýnist leikurinn vera nokk- uð svipaður þeim fyrri og að mörgu leyti er hann það auðvitað. Enda er ekkert að því að gera leik sem svipar til eins besta dæmda tölvuleiks sem gerður hefur verið. En eftir því sem maður spilar leikinn meira kemst maður að því að það er bara meira af skemmtilegum hlutum að gera. Jafn góður plús meira gaman. Hversu gott er það? Útlit leiksins er einstakt. Þrívídd- arútlit hans er brautryðjandi og þrátt fyrir að Wii sé lang „minnst“ af þriðju kynslóðar leikjatölvum sannar hún hér mátt sinn séu eiginleikar hennar rétt notaðir. Þó Super Mario Galaxy 2 sé ekki besti tölvuleikur sem ég hef spilað á lífsleiðinni fer hann í hóp með örfá- um leikjum sem ég hef gefið fimm stjörnur. Ástæðan er sú hversu ótrú- lega vandað, skemmtilegt og magn- að verk er hér á ferð og það ber að virða. Til hversu breiðs hóp hann nær og hversu margslunginn, lang- lífur og hressandi hann er. Ef það er einn leikur sem þú ætlar að kaupa á Wii í ár þá er þetta hann. Allir geta spilað hann. Börnin jafnt sem fullorðnir. Ásgeir Jónsson 30 fókus 9. júlí 2010 föstudagur Sýning á verkum SamÚelS Verk Samúels Jónssonar, „lista- mannsins með barnshjartað“, hafa verið mörgum ferðalanginum í Selárdal innblástur. Samúel byggði einn síns liðs kirkju utan um altaris- töflu sem hann málaði þegar sókn- arnefndin hafði hafnað myndinni. Félag um endurreisn listasafns Samúels hefur nú opnað í kirkjunni að Brautarholti í Selárdal sýningu um líf og list Samúels og endurreisn verka hans. Eftirmyndir tólf mál- verka hans eru á sýningunni. bryndíS Sem janiS Söngkonan Bryndís Ásmunds- dóttir mun ásamt hljómsveit flytja lög eftir Janis Joplin á skemmtistaðnum Sódómu Reykjavík bæði föstudags- og laugardagskvöld þessa helgina. Á laugardagskvöldinu ætlar svo sjálf rokkamma Íslands, Andrea Jónsdóttir, að sjá um að þeyta skífum bæði fyrir og eftir tón- leika. Amman sú er einnig mikill aðdáandi Joplin þannig að búast má við mikilli tónlistarveislu um helgina. Bryndís túlkaði rödd Janis í rokksöngleik sem byggður var á ævi gyðjunnar í Íslensku óperunni í fyrra. Tónleikar hefjast upp úr miðnætti bæði kvöld og kostar 1200 krónur inn. Safnaverðlaun- in afhent Forseti Íslands afhendir Safnaverð- launin 2010 að Bessastöðum á ís- lenska safnadaginn næsta sunnu- dag. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár og eru nú veitt í sjöunda sinn. Þrjú söfn eru tilnefnd til verð- launanna: Byggðasafn Skagfirð- inga, Nýlistasafnið í Reykjavík og Heimilisiðnarðarsafnið á Blöndu- ósi. Íslandsdeild ICOM (Alþjóðaráð safna) og Félag íslenskra safna og safnmanna (FISOS) standa saman að íslensku safnaverðlaununum. Dómnefnd tilnefnir þrjú söfn og vel- ur þau úr innsendum hugmyndum en auglýst er eftir ábendingum frá almenningi, félagasamtökum og fag- aðilum. Í ár bárust meira en sjötíu ábendingar. Mario Er enn þá konung- ur tölvuleikjanna. Super Mario Galaxy 2 Tegund: Ævintýraleikur Spilast á: Nintendo Wii tölvuleikir Myrt vændiskona Mætir afgangi Sara Blædel hefur á stuttum tíma komist í hóp vinsælustu glæpa- sagnahöfunda í Danmörku. Hún hef- ur sent frá sér fimm bækur og stutt er í þá sjöttu, en fyrsta bók Söru kom út árið 2004. Bókin seldist ekkert tiltak- anlega vel en þegar hún var útnefnd besta frumraun glæpasagnahöfund- ar það ár tók sala hennar mikinn kipp. „Þremur mánuðum síðar kom önnur bók mín út og hún varð gríð- arlega vinsæl. Hálfu ári síðar hætti ég í vinnunni minni, ekki vegna þess að ég væri orðin svo rík heldur vegna þess að ég átti erfitt með að sinna bæði mínum daglegu störfum og skrifunum og öllu sem þeim tengd- ist. Það er nefnilega mjög tímafrekt að fylgja eftir bókunum með upp- lestrarferðum, áritunum, viðtölum og fleiru,“ segir Sara. Hún hafði síðustu sjö árin þar á undan starfað bæði sem blaðamaður og í sjónvarpsfréttum. Og þegar bók Söru númer tvö, sem heitir Kallaðu mig prinsessu og kom út í íslenskri þýðingu hjá Uppheimum í fyrra, byrjaði að seljast í miklu magni átt- aði hún sig ekki strax á því. „Ég var svo einbeitt í vinnunni að ég áttaði mig ekki alveg strax á vinsældum bókarinnar. Ég var bara fókuseruð í minni vinnu, skaust svo kannski í eitt og eitt viðtal og upp- lestur hér og þar, en hélt svo áfram að vinna. En síðan kom sumarið og þá rauk hún svo hátt upp á vinsældalist- um að þá skall þetta á mér. Það var skrítið eftir að hafa sjálf verið mann- eskjan sem beið í röð klukkustund- um saman eftir nýrri bók eftir ein- hvern glæpasagnahöfund,“ segir hin brosmilda Sara og splæsir í eitt stórt. Tæp milljón eintök seld í Danmörku Sala á bókum Söru í Danmörku nálg- ast milljón eintök en bækurnar hafa verið gefnar út í tíu löndum. Nýver- ið var rétturinn svo seldur til þess ellefta, Bandaríkjanna. „Ég geri mér ekki vonir um að slá í gegn þar, en það er gaman að það skuli hafa tekist að semja við bandarískan útgefanda. Ein bók á að koma út næsta vor og svo önnur haustið eftir. Síðan verð- ur bara skoðað hvernig salan hefur gengið eftir það upp á frekari útgáfu að gera.“ Fyrir utan gott gengi í bók- sölunni hefur kvikmyndarétturinn á Kallaðu mig prinsessu verið seldur. Aðalpersónan í öllum bókum Söru er Louise Rick, rannsóknar- lögreglukona í morðdeild Kaup- mannahafnarlögreglunnar. Í annarri bókinni eftir Söru sem kemur út á ís- lensku, Aldrei framar frjáls, og kom í bókabúðir hér á landi á dögunum, þarf Rick að glíma við morðmál þar sem fórnarlambið er vændiskona frá Austur-Evrópu. Sökum þess hvað konan starfaði við og hvaðan hún kemur er áhugi yfirmanna lögregl- unnar lítill á því að leysa málið fljótt. Á sama tíma finnst ungbarn yfirgef- ið í kirkju og fær sú saga meiri athygli hjá lögreglu og fjölmiðlum því þar er um að ræða lítið barn. Blaðakonan Camilla Lind er einnig þátttakandi í tilraunum til að leysa málin og er önnur af aðalpersónunum í bókum Söru. „Upphaf sögunnar í huga mér byrjaði á því að lítið barn fannst í kirkju,“ segir Sara. „Svo fór ég að hugsa að ef einhver veit eitthvað um aðra manneskju, þá er hún með tak á henni. Og þegar ég fór að velta fyr- ir mér skýru dæmi um manneskjur sem hafa tak á öðrum manneskjum, þá komu fljótt upp í hugann þeir sem þvinga vændiskonur til þess að fara út á götu að selja sig. Þannig byrjaði ég að skrifa söguna um vændiskon- una myrtu og mansalið og vændis- starfsemina í Kaupmannahöfn.“ Yfirvöld sinnulaus gagnvart mansali Sara rannsakaði þessi mál vel fyr- ir skrif sögunnar. Hún segir mansal ekki mjög mikið í Danmörku miðað við mörg önnur lönd, en tölur bendi til þess að það hafi aukist síðustu ár. Umræðan um þetta þrælahald nú- tímans hafi aukist samhliða því. „Lögreglan og stjórnvöld hafa því reynt aðeins meira undanfarin miss- eri að vinna gegn þessari starfsemi. En í gegnum tíðina hefur löggan og pólitíkusar lítið gert í þessum mál- um. Ég átti til dæmis athyglisvert samtal við yfirmann hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn sem harmaði það mjög hversu erfitt er að handsama mennina á bak við mansalið. Hann sagði mér að það þyrfti að elta þá alla daga og nánast allan sólarhringinn ef takast ætti að sanna að konurn- ar á götunni létu mennina fá pen- ingana sem þeir afla með vændinu því nauðsynlegt væri að eiga mynd- ir af því til þess að eygja vona um að þeir yrðu sakfelldir fyrir dómstólum. Og þetta væri sérstaklega erfitt í ljósi þess að þeir byggju þegar við mikla manneklu við að leysa önnur verk- efni, sem þó útheimtu ekki jafnmik- inn tíma og fyrirhöfn. Við það bættist að öllum væri sama hvort þeir næðu að fangelsa mennina sem standa á bak við mansal erlendu stúlknanna. Stjórnmálamennirnir eru heldur ekki áhugasamir um að ná þessum mönnum. Þeir hafa meiri áhuga á að menn sem ganga um með hnífa séu settir á bak við lás og slá. Þessar ungu stúlkur og örlög þeirra mæta því al- gjörum afgangi.“ Fylgdist með réttarhöldum Sara kveðst líka hafa séð hvernig Mansal er stór þáttur í nýrri glæpasögu hinnar dönsku Söru Blædel, Aldrei framar frjáls, sem kom nýverið út í íslenskri þýðingu. Skáldkonan segir sorglegt hversu sinnuleysi lögreglu og stjórnvalda sé mikið þegar erlendar vændiskonur eru annars vegar. Kristján Hrafn Guðmundsson ræddi við Söru þegar hún heimsótti Ísland á dögunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.