Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Page 31
... sjónvarps-
þættinum
How I Met
Your Mother
Frábærir þættir
fyrir ungt fólk á
öllum aldri.
... bókinni
Sögustaðir
Unun að lesa
þessa bók og
skoða mynd-
irnar, segir
gagnrýnandi.
... myndinni A
Nightmare on Elm
Street
Martröð af
leiðindum
föStudAgur
n Haffi Haff á Kónginum
Popparinn Haffi Haff verður á græjunum
á Kónginum í Grafarholti. Haffi tekur
nýju lögin sín og heldur uppi stuðinu frá
tólf til tvö.
n Dansleikur á Breiðinni
Hljómsveitin Napóleon ætlar að gera
allt vitlaust á Breiðinni á föstudagskvöld.
Það verður frítt inn á ballið svo fólk ætti
ekki að láta sig vanta.
n Mono á Spot
Hljómsveitin Mono heldur ball á
skemmtistaðnum Spot í Kópavogi
bæði föstudags- og laugardagskvöld.
Á laugardaginn verður svo sjálfur
stuðkóngurinn Herbert Guðmundsson
með þeim á sviði og tekur sína helstu
slagara.
lAugArdAgur
n Ball á Manhattan
Mikil skemmtun verður haldin á
skemmtistaðnum Manhattan í Keflavík á
laugardag. Fram koma í svörtum fötum,
Haffi Haff og Dj Óli Geir. Plötusnúðurinn
og hljómsveitirnar skiptast á að spila til
að halda þessu fjölbreyttu.
n Sumarstúlkukeppnin 2010
Verður haldin á laugardagskvöld í
Hvítahúsinu á Selfossi. Stúlkurnar munu
koma fram í fatnaði frá Motivo en
eftir keppnina verður dansleikur með
Oxford og DJ Elíot. Húsið opnar 23.00
en keppnin hefst 01.00. Miðaverð er 100
krónur.
n Froðupartí á Selfossi
800 Bar heldur froðupartí í annað sinn á
skömmum tíma vegna fjölda áskorana.
Að þessu sinni verður ballið fyrir 18 ára
og eldri en það hefur hingað til verið
fyrir 16 ára og eldri.
n Stelpuball Gay Pride
Verður haldið á laugardagskvöld á
Skólabrú. Allur aðgangseyrir rennur til
styrktar Hinsegin daga. Fram koma Páll
Óskar, Elektra og fleiri. Húsið verður
opnað klukkan 23.00 og miðaverð er
1.000 krónur.
Hvað er að
GERAST?
Snarrangstæður
Ég hlakkaði mikið til að prófa þenn-
an leik þar sem ég hafði heyrt góða
hluti um nýju FIFA-leikina. Sjálfur
hef ég alltaf verið PES-maður (Pro
Evolution Soccer) og fundist þeir
langtum betri. Eftir að hafa spilað
þennan leik hefur sú skoðun mín
ekkert breyst. Þvert á móti.
Ég hef aðeins dregið úr spilun
á PES-leikjunum og mér skilst að
FIFA 2010 hafi verið mun betri en
nýjasti PES. Þó ég hafi ekki sann-
reynt það sjálfur. Þar að segja á PS3
og X360. EA Sports hefur ekki tekist
að færa þau gæði með sér á Wii og
er það kannski ástæðan fyrir því að
þessi leikur fær mun lægri einkunn
á Wii en á hinum tölvunum.
Heilt yfir finnst mér spilun leiks-
ins slök. Grafíkin er óspennandi og
teiknimyndaleg. Mest fer þó skot-
eiginleikinn í taugarnar á mér. Þeg-
ar maður sveiflar Wii-stýripinnan-
um til þess að skjóta ríður skotið af
með hvellum og látum og myndin
ýmist hægist niður eða verður hrað-
ari. Þannig að endi boltinn í netinu
á er það yfirleitt á svipaða vegu.
Ég get ekki annað en borið leik-
inn saman við þann leik sem ég hef
spilað nánast endalaust síðan ég
fékk hann og er einn besti fótbolta-
leikur heims að mínu mati. PES
2008 á Wii. Þar tókst framleiðand-
anum að gera frábæran leik betri
með Wii-stýrikerfinu. Það tekst ekki
í 2010 FIFA World Cup South Africa.
Það sem er þó jákvætt við leik-
inn er að hann heillar kannski yngri
spilendur með útliti sínu og svo er
auðvitað mikill plús að geta valið
öll landslið í heimi. Það er ekkert
leiðinlegt að setja´nn með Heiðari
Helgu. Ásgeir Jónsson
... mynd-
inni toy
Story 3
Allt í mynd-
inni virkar.
Pabbar
gætu grátið.
...xxx
xxx
föstudagur 9. júlí 2010 fókus 31
2010 FIFA World Cup South AFrICA
Tegund: Fótboltaleikur
Spilast á: Nintendo Wii
tölvuleikir
FIFA 2010 Er
óvandaður og
slakur á Wii.
... sjón-
varps-
þættinum
Cougar
town
Konungleg
skemmtun.
... myndinni
the A-team
Hraður og
hávær hasar
sem flestir ættu
að geta skemmt
sér yfir.
Myrt vændiskona
Mætir afgangi
áhugi á morðmáli dvínar ef fórnar-
lambið er erlend vændiskona, líkt og
hún skrifar um í Aldrei framar frjáls.
„Ég var sjálf blaðakona og veit af eig-
in reynslu að áhuginn er minni. Ég
veit hvað fer á forsíðu og hvað fer á
síðu 25. Þetta er ekki talið áhuga-
vert ef þú átt erfitt með að finna
samkennd með konunni, tengja við
hana. Ef ung dönsk kona er drepin
fer það alltaf á forsíðuna. Allir myndu
tala um það og löggan gerði allt sem
í hennar valdi sætði til þess að finna
morðingjann. En ef hún er einhver
sem þú átt erfiðara með að samsama
þig við, til dæmis vegna þess að hún
er vændiskona eða útlensk eða hvort
tveggja, þá er það annað mál. Jafnvel
finnst einhverjum að hún hafi kallað
morðið yfir sig sjálf!“
Mansalið í Danmörku er fyrst á
fremst á stúlkum frá Austur-Evrópu
og Afríku. Og Sara segir ótrúlega
mikla peninga felast í þessum anga
undirheimanna.
„Þessir menn græða miklu meira
á þessum stúlkum en eiturlyfja- og
vopnasölu. Þetta er svakalega mikill
peningur og það er alveg skelfilegt
að vita til þess að þessir menn skuli
verða vellauðugir á svona starfsemi.
Ég var viðstödd ein réttarhöld yfir
svona mönnum, og mér þykir leitt
að segja það en þetta eru ekki skær-
ustu ljósaperurnar í seríunni. Þetta
eru bara menn með ískalt hjarta sem
neyða stúlkur til þess að selja sig og
græða fúlgur fjár á því. Þetta er auð-
velda leiðin að auðæfum.“
Að sögn Söru er ekki tekið nógu
hart á þeim mönnum sem fundn-
ir eru sekir um mansal. Hún fylgdist
til að mynda með einu máli þar sem
sakborningur fékk tveggja ára fang-
elsi og fór að því loknu bara aftur að
græða pening á því að gera út ungar,
innfluttar konur til kynlífsþjónustu.
Það var ekki fyrr en hann var hand-
tekinn á ný fyrir það sama að honum
var hent úr landi.
Rannsóknarvinnan
andlega erfið
Sara segir vissulega taka á andlega
að kafa svona djúpt í álíka mannleg-
an harmleik og þarna um ræðir. „Jú,
það gerði það sannarlega. Og þessi
saga greip mig föstum tökum af því
að þetta er ekki bara bók um man-
sal heldur bók um mannslíf, auk
þess auðvitað að vera bók um aðal-
persónurnar mínar tvær, Louise og
Camillu. Ég verð því miður að segja
að bókin er svört og sorgleg og hún
endar ekkert sérstaklega vel. En hún
er líka svona sorgleg og harðneskju-
leg vegna þess að mennirnir sem
hafa viðurværi sitt af því að selja
manneskjur eru svo harðneskju-
legir og með hjarta úr steini. Eng-
inn þeirra sér sig um hönd og verð-
ur góður gaur og bókin endurspeglar
það.“
Sara segir sögu sína því gefa
raunsanna mynd af undirheimum
Kaupmannahafnar, en hún sé þrátt
fyrir það skáldskapur. „Ég tók ýmis-
legt af því sem ég sá, las og heyrði af
í rannsóknum mínum og bjó skáld-
skapinn til úr því. Ef svona hlut-
ir gerast í raunveruleikanum gætu
þeir hafa gerst á þann hátt sem ég
lýsi í bókinni. Það áhugaverðasta
sögurnar mínar að mínu mati er
einmitt að þær eru raunsæjar og
harðar. Þetta er ekki fólk að spjalla
saman yfir kaffi latte,“ segir Sara og
hlær.
Gafst upp á bókaútgáfu
Ellefu árum áður en rithöfundar-
ferillinn hófst, eða árið 1993, gerðist
Sara útgefandi glæpasagna eftir aðra
höfunda, bæði danska og erlenda. Þá
var hún ekki byrjuð að setja neitt á
blað sjálf.
„Núna eru glæpasögur svo vin-
sælar að allir vilja skrifa glæpasögur
og gefa þær út, en ég hef alltaf elsk-
að þessa bókmenntagrein. Og þeg-
ar ég byrjaði í útgáfunni voru þær
ekki nærri því jafn vinsælar og nú
til dags.“ Til marks um það hætti
Sara með bókaforlagið sitt árið 1998
vegna þess hve illa reksturinn gekk.
Í framhaldinu vatt hún sér í fjöl-
miðlageirann. „Ég átti aldrei von á
því að ég myndi skrifa sjálf glæpa-
sögur. Ég hugsaði alltaf að þetta væri
eitthvað sem aðrir sköpuðu svo ég
gæti skemmt mér og gleymt mér yfir
í fríi frá amstri dagsins. En eitt skipti
þegar ég var að vinna sem sjónvarps-
fréttamaður og var að farast úr streitu
og álagi fékk ég vikufrí. Þá byrjaði ég
allt í einu að velta því fyrir mér í huga
mínum að ef fjölmiðlamaður í Kaup-
mannahöfn væri að vinna að svo við-
kvæmri frétt að hann yrði drepinn
vegna hennar, hvað væri fréttin þá
um? Þessi vangavelta róaði mig,“ seg-
ir Sara og skellihlær.
Löggur fremstar
í aðdáendaröðinni
Svo héldu heilabrot Söru áfram
þangað til hún var komin með sögu-
þráð og persónur og byrjaði að skrifa.
„Í framhaldinu fékk ég fund með yfir-
manni morðdeildarinnar hjá Kaup-
mannahafnarlögreglunni vegna þess
að mig langaði að fá réttar upplýs-
ingar um ýmislegt sem tengist starfi
deilarinnar. Ég var ekki að spyrja
eitthvað um einstök mál heldur
bara almennra spurninga um vinn-
una þeirra og ýmis lítil atriði, bara
til dæmis hvar og hvenær starfsfólk-
ið fer í mat, hver býr til kaffið á stöð-
inni og svoleiðis. Þetta skiptir máli
að mínu mati. Ég vil ekki að þeir sem
þekkja til þessa heims fussi við lest-
urinn og hlæi. Besta hrós sem ég hef
fengið var frá lögreglumanni sem
sagði: „Það er alveg eins og þú hafir
unnið í morðdeildinni.“ Ég veit líka
að margir lögreglumenn og -konur
eru á meðal þeirra sem eru fyrstir í
bókabúðirnar til þess að ná sér í ein-
tak þegar ný bók eftir mig kemur út.“
Sara segir að draumurinn um að
vera vinsæll rithöfundur sé ekki að
rætast vegna þess að enginn slíkur
draumur hafi verið til staðar. „Ef mig
hefði dreymt um það þegar ég var
yngri að verða glæpasagnadrottn-
ing í Danmörku þá mætti segja að sá
draumur væri orðinn að veruleika.
En mig dreymdi aldrei um það af
því að mér datt ekki í hug að ég gæti
skrifað svona bækur!“ kristjanh@dv.is
Sara Blædel Er á meðal vin-
sælustu glæpasagnahöfunda
Danmerkur um þessar mundir.
MYND FLeMMING GeRNYx