Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Qupperneq 43

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Qupperneq 43
föstudagur 9. júlí 2010 sakamál 43 Hélène Jegado fæddist 1803 á litlum bóndabæ skammt frá Lorient á Bretagneskaga í Frakk- landi. Sjö ára missti hún móður sína og var send til vinnu með tveim- ur frænkum sínum sem voru þjón- ustustúlkur á prestsetrinu í Bubry, en lítið er vitað um fyrstu ár Hél- ène allt þar til hún gerðist matselja í þorpinu Guern. Talið er að Hélène hafi eitrað fyrir sínu fyrsta fórnarlambi árið 1833, en þá var hún í vinnu hjá séra Le Drogo í Guern. Á rúmlega þriggja mánaða tímabili frá 28. júní til 3. október dóu sjö af heimilisfólkinu á prestsetrinu skyndilega. Á meðal þeirra sem gáfu upp öndina voru presturinn og syst- ir Hélène sem var í heimsókn. Augljós sorg Hélène og guð- ræknilegt fas voru svo sannfærandi að engum datt til hugar að bendla hana við dauðsföllin. Að auki var ekki langt um liðið frá kólerufar- aldrinum 1832 og því allt eins líklegt að um eðlilegt banamein hefði verið að ræða. Fórnarlömbum fjölgar Hélène Jegado tók sess systur sinn- ar í Bubry og áður en langt um leið lágu þrjá manneskjur í valnum, þeirra á meðal önnur frænka henn- ar. Hélène lagði nú land undir fót og fór til Locminé í Morbihan þar sem hún leigði húsnæði með sauma- konu að nafni Marie-Jeanne Lebou- cher. Marie-Jeanne og dóttir henn- ar gáfu fljótlega upp öndina, en sonur Marie-Jeanne varð alvarlega veikur. Það kann að hafa bjargað lífi sonarins að hann afþakkaði að- stoð Hélène til að komast til heilsu. Ekkja í sama þorpi gerði þau mistök að leigja Hélène herbergi. Ekkjan dó eftir að hafa neytt súpu sem nýi leigjandinn hafði matbúið. Árið 1835 dvaldi Hélène um skamma hríð í nunnuklaustri í Auray þar sem hún hafði verið ráð- in til þjónustustarfa. Þaðan var hún rekin eftir að hafa orðið uppvís að skemmdarverkum og helgispjöll- um. Þjófnaðir taka við af morðum Hélène Jegado var ráðin sem mat- selja á fjölda heimila en staldraði alla jafna stutt við á hverjum stað. Dauðsföll og veikindi voru áber- andi á þeim heimilum þar sem hún starfaði og flest fórnarlambanna báru einkenni arseníkeitrunar, en arseník fannst aldrei í fórum Hél- ène. Frá árinu 1841 til ársins 1850 virðst sem Hélène Jegado hafi tekið sér frí frá morðum, en engin grun- samleg dauðsföll á því tímabili hafa verið eignuð henni. En margir vinnuveitenda Hél- ène tilkynntu síðar um þjófnaði á heimili þeirra. Auk þess sem Hél- ène virtist hafa óslökkvandi þörf fyrir að eitra fyrir fólki þjáðist hún af stelsýki og var gripin glóðvolg við stuld nokkrum sinnum. En árið 1849 flutti Hélène Jeg- ado til Rennes og þess var skammt að bíða að ferill hennar tæki nýja stefnu og örlagaríka. Yfirlýsing um sakleysi vekur grunsemdir Árið 1850 bættist Hélène í hóp starfsfólks Théophile Bidard, próf- essors í lögum við háskólann í Rennes. Ein þjónustustúlkan, Rose Tessier, varð veik og safnaðist til feðra sinna eftir að Hélène hafði annast hana. Ári síðar endurtók sagan sig þegar önnur þerna, Rosalie Sarra- zin, veiktist og dó. Tveir læknar höfðu reynt að bjarga lífi Rosalie en ekki haft erindi sem erfiði, en vegna þess hve einkennunum svip- aði til einkennanna hjá Rose ári áður tókst þeim að fá leyfi ættingja Rosalie til að kryfja hana. Hélène Jegadi vakti grunsemdir í eigin garð þegar hún lýsti því yfir að hún væri saklaus áður en nokk- ur hafði spurt hana um nokkurn skapaðan hlut og hún var hand- tekin í júlí árið 1851. Niðurstöð- ur rannsóknar tengdu Hélène við 23 grunsamleg dauðsföll sem áttu sér stað á árunum 1833 til 1841, en ekkert málanna var rannsakað í þaula því þau voru fyrnd með til- liti til málshöfðunar. Þjóðsögur á svæðinu hafa eignað Hélène fjölda óútskýrðra dauðsfalla en talið er að hún hafi í reynd fyrirkomið um 36 manns. Eftirtektarverð varnarræða Réttarhöldin yfir Hélène Jegado hófust þann 6. desember 1851, en vegna ákvæða í frönskum lög- um um leyfileg sönnunargögn og fyrningu mála var hún að- eins ákærð fyrir þrjú morð, þrjár morðtilraunir og ellefu þjófnaði. Svo virðist sem fallið hafi ver- ið frá einni morð ákærunni sem varðaði barnsmorð, en lögreglan vildi ekki koma foreldrum barns- ins í uppnám með því að grafa lík þess upp. Hegðun Hélène við réttar- höldin var æði sveiflukennd. Hún átti það til að muldra auð- mjúklega, reka upp óp sem ein- kenndust af mikilli guðrækni og einnig að sýna saksóknurum of- beldiskennda tilburði. Hélène neitaði statt og stöðugt að vita yfir höfuð hvað arsen- ík væri, þrátt fyrir yfirþyrmandi vísbendingar um hið gagnstæða. Þegar síðustu fórnarlömbin höfðu verið grafin upp og rann- sökuð greindist mikið magn ars- eníks í þeim. Verjandi Hélène fór nýstár- lega leið í lokaræðu sinni og hélt því fram að skjólstæðingur sinn þyrfti lengri tíma en aðrir til að iðrast og þess vegna yrði að hlífa henni við dauðarefsingu. Að auki væri hún dauðvona vegna krabbameins. Hélène Jegado var dæmd til að enda líf sitt á höggstokknum og var tekin af lífi í viðurvist fjölda áhorfenda 26. febrúar 1852. morðóða matseljan Hélène Jegado var franskur raðmorðingi. Talið er að hún hafi á átján ára tímabili myrt allt að 36 manns með arseníki. Líklegt er talið að hún hafi tekið sér hlé frá morðum um tæplega tíu ára skeið en tók svo upp fyrri iðju. Hún endaði ævina á höggstokknum árið 1852. Auk þess sem Hélène virt- ist hafa óslökkvandi þörf fyrir að eitra fyrir fólki þjáðist hún af stelsýki og var grip- in glóðvolg við stuld nokkrum sinnum. Spennandi Útivistarferðir um Fjallabak Strútsstígur - Falleg og fjölbreytt gönguleið á Skaftártunguafrétti Sveinstindur -Skælingar - Stórkostlegt gönguland á bökkum Skaftár Fegurðin er að Fjallabaki Laugavegi 178. Sími 562 1000. www.utivist.isLaugavegi 178 - Sími 562 1000 - utivist.is Bókanir í síma 562 1000 Hélène Jegado Banaði hátt í fjörutíu manns með eitri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.