Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Síða 52
52 umsjón: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 9. júlí 2010 föstudagur
Stærsti knattspyrnuleikur heims fer fram á sunnudaginn þegar Holland mætir Spáni í úrslitaleik heims-
meistarakeppninnar í knattspyrnu. Hvorugt liðið hefur unnið HM áður og verður því ritað nýtt nafn á doll-
una í fyrsta skipti síðan 1998. Liðið sem vinnur verður áttundi heimsmeistarinn í sögunni.
Fjögurra vikna fótboltaveislu í Suður-
Afríku lýkur á sunnudaginn þegar úr-
slitaleikur heimsmeistarakeppninn-
ar fer fram. Holland mætir þar Spáni
í úrslitaleik en daginn áður takast á
Þýskaland og Úrúgvæ í leiknum um
þriðja sætið. Ljóst er að nýtt nafn fer á
dolluna því hvorki Spáni né Hollandi
hefur tekist að vinna HM áður. Hol-
lendingar eiga að baki tvo úrslitaleiki
en Spánverjar hafa aldrei áður komist
lengra en átta liða úrslit.
Hollendingar hafa nú unnið fjór-
tán leiki í röð í undankeppni og í loka-
keppninni. Spánn hefur tapað einum
leik á mótinu, þeim fyrsta gegn Sviss.
Það er þó aðeins annar af tveimur
tap leikjum liðsins síðastliðin tvö ár
eftir að Vicente del Bosque tók við lið-
inu. Hinir þrjátíu hafa allir unnist og
má alveg segja sem svo að Spánn sé
með besta lið heims. En hvað gerist á
sunnudaginn?
Nýtt nafn á dolluna
Það verða krýndir nýir heimsmeist-
arar í knattspyrnu á sunnudaginn,
sama hvort liðið vinnur, en úrslita-
leikurinn er áhugaverður fyrir margra
hluta sakir. Evrópuþjóðir hafa aldrei
unnið utan Evrópu og þá verður
þjóðin sem sigrar í leiknum önnur af
tveimur þjóðum sem ekki hefur unn-
ið keppnina á heimavelli. Hitt liðið er
Brasilía sem tókst ekki að vinna HM í
Brasilíu árið 1950 en á þó fimm titla.
Sjö lið hafa unnið keppnirnar átj-
án sem haldnar hafa verið hingað til.
Verður því sigurvegarinn á sunnu-
daginn áttundi heimsmeistarinn
í röðinni. Síðast voru krýndir nýir
meistarar árið 1998 þegar Frakkland
vann á heimavelli. Spánn hafði fyrir
leikinn gegn Þýskalandi á miðviku-
daginn aldrei leikið í undanúrslitum
á HM en Holland á að baki tvo úr-
slitaleiki, árin 1974 og 1978. Í bæði
skiptin tapaði Holland fyrir gestgjafa-
þjóðunum, fyrst Þýskalandi og svo
Argentínu.
Mesti heiður knattspyrnunnar
„Leikmennirnir okkar vita hvað fót-
bolti er,“ segir Vicente del Bosque,
þjálfari Spánar. Vissulega rétt hjá hjá
hinum aldna en eldklára þjálfara.
Spánn er ríkjandi Evrópumeistari
en það var Luis Aragones sem stýð-
ir Spáni til síns fyrsta stórtitils á EM
fyrir tveimur árum. Del Bosque hef-
ur heldur betur tekið við keflinu því
af 32 leikjum hefur honum tekist að
stýra liðinu til sigurs í þrjátíu.
„Tapið gegn Sviss í fyrsta leik
mótsins var okkur erfitt,“ segir hann.
„Við verðskulduðum það ekki. Við
höfum vaxið síðan þá og komið okk-
ur í úrslitaleikinn. Það er ekki til
meiri heiður í fótbolta en að vinna
heimsmeistarakeppnina. Við ætt-
um samt ekki að vera monta okkur
eða verða of spenntir. Við þurfum
bara að standa okkur í úrslitaleikn-
um. Hollenska liðið stendur fyrir frá-
bæran fótbolta og hefur alltaf gert.
Ég vona svo sannarlega að við getum
haldið boltanum eins og við eigum
að okkur og náð að spila okkar leik,“
segir del Bosque.
Stígum upp á réttum tíma
„Málið er bara að njóta úrslitaleiks-
ins,“ segir framherjinn David Villa
sem hefur skorað fimm mörk til
þessa á HM. Hann missti af úrslita-
leiknum á EM fyrir tveimur árum
vegna meiðsla og er staðráðinn í
að landa sínum fyrsta alþjóðatitli
á sunnudaginn. „Ef við spilum á
sunnudaginn eins og við gerðum
gegn Þýskalandi eigum við frábær-
an möguleika á að vinna leikinn. Þar
spiluðum við nákvæmlega eins og
við viljum gera,“ segir hann en Villa
veit vel af getu Hollendinga.
„Holland er með frábært lið með
stórkostlega leikmenn á miðjunni
og frammi. Við þurfum virkilega að
mæta þeim fast og spila okkar bolta
gegn þeim. Við höfum sýnt það áður
að við stígum alltaf upp á réttum
tíma, sérstaklega í stórleikjum. Leik-
urinn gegn Þýskalandi var sá besti
sem ég hef spilað en ég vona svo
sannarlega að sunnudagurinn verði
betri,“ segir David Villa sem samdi
við Barcelona áður en hann hélt til
Suður-Afríku.
Spilar gegn landi móður sinnar
„Það verður virkilega gaman að spila
gegn Spáni í úrslitum,“ segir miðju-
maðurinn Rafael van der Vaart. Hol-
lendingurin öflugi er ættaður frá
Spáni en móðir hans kemur þaðan.
Þá spilar hann með stórliðinu Real
Madrid. Van der Vaart var í byrjun-
arliðinu í öllum leikjum riðlakeppn-
innar en eftir að Arjen Robben kom
til baka eftir meiðsli hefur hann þurft
HOllANd
n Riðlakeppni
sigur á Danmörku: 2-0
(sjálfsmark, Dirk Kuyt)
sigur á japan: 1-0 (Wesley sneijder)
sigur á Kamerún: 2-1
(Van Persie, Huntelaar)
n 16 liða úrslit
sigur á slóvakíu: 2-1
(Robben, sneijder)
n 8 liða úrslit
sigur á Brasilíu: 2-1 (Wesley sneijder 2)
n Undanúrslit
sigur á Úrúgvæ: 3-2
(Bronchors, sneijder, Robben.)
SpáNN
n Riðlakeppni
Tap gegn sviss: 0-1
sigur á Hondúras: 2-0 (David Villa 2)
sigur á síle: 2-1 (David Villa, Iniesta)
n 16 liða úrslit:
sigur á Portúgal: 1-0 (David Villa)
n 8 liða úrslit
sigur á Paragvæ: 1-0 (David Villa)
n Undanúrslit
sigur á Þýskalandi: 1-0 (Carles Puyol)
Leiðin í úrsLit
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Völlurinn
soccer city - Jóhannesarborg
Sætafjöldi: 88.460
Byggður: 1987 (mikið endurbættur)
Aðalsmerki keppninnar er sjálfur soccer City-völlurinn sem fékk mikla andlitslyft-
ingu fyrir mótið. stórkostlegur völlur sem tekur tæplega 90.000 manns í sæti.
ÞjáLfararnir
BeRT vAN MARwijk - HOllANd
Þjálfað: FC Herderen, RKVCL Limmel,
sV meerssen, Fortuna sittard, Feyen-
oord, Borussia Dortmund, Holland.
Titlar sem leikmaður: 1 (Hollenskur
bikarmeistari með AZ)
Titlar sem þjálfari: 2 (Hollenskur
bikarmeistari og uEFA Cup, bæði með
Feyenoord)
Tölfræði með Holland:
2008-2010: 26 leikir (19 sigrar - 6
jafntefli - 1 tap), 73,08% sigurhlutfall,
mörk 41:17.
viceNTe del BOSqUe - SpáNN
Þjálfað: Real madrid B, Real madrid,
Besiktas, spánn.
Titlar sem leikmaður: 9 (5 spánarmeist-
aratitlar og fjórir bikarmeistaratitlar með
Real madrid)
Titlar sem þjálfari: 7 (spænska deildin
2, spænski bikarinn 1, meistaradeildin
2, ofurbikar Evrópu 1, heimsmeistari
félagsliða 1, allt með Real madrid)
Tölfræði með Spán:
1994-1996: 11 leikir (5 sigrar - 1 jafntefli -
5 töp), 45.45% sigurhlutfall, mörk 23:22.
2008-2010: 32 leikir (30 sigrar - 0 jafntefli -
2 töp), 92,59 % sigurhlutfall, mörk 87:17.
Sigurstranglegir
spánverjar virkuðu
ógnarsterkir gegn
Þýskalandi. MyNd ReUTeRS
Nýir meistarar krýNdir