Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2010, Page 61
föstudagur 9. júlí 2010 sviðsljós 61
leikkonan Blake Lively var glæsileg þegar hún mætti á tísku-sýningu Chanel á Haute Couture-tískuviku í París. Verið var að sýna haust- og vetrarlínu Chanel en Lively var sérstaklega
boðið að vera viðstödd.
Leikkonan er stödd í Frakklandi vegna þess að undanfarna daga
hafa atriði í þáttunum sem hún leikur í, Gossip Girl, verið tekin þar
upp. Leikkonan hefur verið dugleg við að fara á tískusýningar í París
en á mánudag fór hún á sýningu Christian Dior í fylgd með aðalrit-
stjóra Vouge, Önnu Wintour.
Fangelsuð
í viku? vandræði Mels Gibson halda áfram eftir að enn ein hljóðupptakan hefur skot-ið upp kollinum. Enn hafa þessar
upptökur ekki verið spilaðar fyr-
ir almenning en í þeirri nýjustu er
Gibson sagður viðurkenna að hafa
beitt Oksönu Grigorieva ofbeldi.
Oksana, sem á barn með leikar-
anum, hefur sakað Gibson um að
hafa gengið í skrokk á sér en lög-
fræðingar þvertaka fyrir það.
„Hvernig maður lemur konu
með barn í fanginu? Ber hana
tvisvar í andlitið. Hvernig maður
er það?“ á Oksana að hafa sagt á
upptökunni og Gibson svarað því:
„Veistu hvað? Þú áttir það fokking
skilið!“
Ekki er langt síðan fjölmiðl-
ar greindu frá öðrum upptökum
þar sem Gibson hótaði að brenna
húsið ofan af Oksönu og að hann
vonaði að henni yrði nauðgað af
blökkumönnum. Ef upptökurnar
reynast ekta má búast við því að
leikarinn og leikstjórinn sé í mikl-
um vandræðum því Oksana hefur
einnig sagst eiga ljósmyndir sem
sanni ofbeldið.
28 ára gamla tennis-drottningin Serena Williams talar opin-
skátt um líkama sinn í viðtali í
nýjasta tölublaði Harper’s Bazaar.
Þar segist hún alltaf hafa öfundað
systur sína Venus af vaxtarlaginu.
„Þegar ég var 23 ára áttaði ég mig
á því að ég væri ekki Venus. Hún
er allt öðruvísi. Ég er með miklar
línur. Ég er með stór brjóst og risa-
rass. Venus er hins vegar eins og
módel. Hávaxin og passar í öll föt.“
Serena segir að hún hafi viljað
vera eins og systir sín þegar þær
voru að alast upp en í dag sé hún
búin að sætta sig við líkama sinn.
„Reyndar er eitt sem ég hef alltaf
átt svolítið erfitt með og það eru
upphandleggirnar á mér,“ eða það
sem jafnan er kallað byssurnar á
vaxtarræktarmáli. „Fólk vill hafa
þá stælta og flotta en mínir eru of
stæltir. En ég kvarta samt ekki. Þeir
borga reikningana mína,“ segir
Serena létt en hún er meðal ann-
ars núverandi Wimbeldon-meist-
ari.
Serena Williams talar um líkamsvöxtinn:
Byssurnar borga
Serena Williams Finnst hún vera
með of stælta upphandleggi.
Flottur bossi Serena segist hafa
sætt sig við vaxtarlag sitt.
sumarleg
og sæt
Enn mEiri
v ndræ i
Blake Lively í París:
Mel Gibson
Er sakaður um
að hafa gengið
í skrokk á sinni
fyrrverandi.
Mel Gibson viðurkennir ofbeldið:
Vesturvör 30c, Sími 575-1500
Ferð á Kársnesið borgar sig!
www.kvikkfix.issko
ðaðu!
Bremsuviðgerðir
Verðdæmi: Klossar framan
Yaris 1,3 ýmsir kr. 10.050.-
Innifalið í verði er vinna,
klossar, kaffi og vöfflur
með sultu og rjóma.
Ath. á ekki við allar gerðir.