Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2010, Side 45
föstudagur 23. júlí 2010 umsjón: páll svansson palli@dv.is tækni 45
Um 75 prósent unglinga eiga far-
síma (og 58 prósent tólf ára barna).
Rétt tæplega 90 prósent þeirra ungl-
inga sem eiga farsíma, senda og taka
á móti smáskilaboðum, flest á degi
hverjum. Helmingur þeirra sendir
allt að fimmtíu skilaboð dags dag-
lega, einn af hverjum þremur sendir
um hundrað skilaboð.
Þetta kemur fram í niðurstöð-
um rannsóknarverkefnis sem Pew-
rannsóknarsetrið í Bandaríkjunum
stendur að, en rannsóknarsetrið
hefur það að meginmarkmiði að
kanna og veita upplýsingar um fé-
lagslega hegðun, viðhorf og strauma
sem móta líf almennings í Banda-
ríkjunum og annars staðar í heim-
inum í dag. Þetta tiltekna verkefni
snýr að internetinu og áhrifum þess
á fjölskyldur, samfélög, vinnustaði,
heimili, daglegt líf, menntun, heilsu-
vernd og stjórnmál.
Síðastliðin þrjú ár hefur rann-
sóknarsetrið kannað með hvaða
hætti bandarískir unglingar nýta sér
netið og þá sérstaklega hina gífurlegu
notkun þeirra á samskiptasíðum en
setrið hefur einnig rannsakað notk-
un farsíma og smáskilaboða með-
al þessa aldurshóps síðan árið 2006.
Talið er að niðurstöðurnar megi yfir-
færa á unglinga flestra landa Vestur-
Evrópu svo ekki skeiki nema einu til
tveimur prósentustigum.
sMs og farsímar
Á aðeins fjórum árum hafa texta-
skilaboð fest sig í sessi sem vinsæl-
asta samskiptaformið meðal ungl-
inga. Farsímanotkun þessa hóps
er þó að sjálfsögðu ekki eingöngu
bundin við smáskilaboð en um 80
prósent unglinga notfæra sér símana
einnig til að taka myndir, 60 prósent
hlusta á tónlist, 46 prósent spila leiki,
32 prósent skiptast á myndskeiðum
og 23 prósent tengjast samskiptasíð-
um.
Hluti af lífinu
Auk farsímanotkunar hefur notkun
unglinga á samskiptasíðum aukist
um helming á síðustu þremur árum
en um 73 prósent þeirra nota nú slík-
ar síður, aðallega Facebook. Stafræn
samskipti eru ekki bara hluti af lífi
hins venjulega unglings, þau eru líf
hans!
Ástæðan er einföld, tæknin fellur
eins og klæðskerasaumuð að þörf-
um unglingsins á þessum mikilvægu
mótunarárum. Farsímar og sam-
skiptasíður auðvelda þá hluti sem
unglingar hafa alla tíð gert; að skapa
sjálfsmynd, öðlast sjálfstæði gagn-
vart foreldrum, vera „kúl“ út á við og
ganga í augun á hinu kyninu.
Að daðra, gorta, slúðra, stríða
og fara á trúnó, allt fer þetta nú að
stórum hluta fram í hinum stafræna
heimi og unglingurinn þarf ekki
lengur að hafa áhyggjur af bólunni á
nefinu eða hvort hann roðni of mik-
ið. Hann gefur sér einnig meiri tíma
til að íhuga hvað hann lætur frá sér
fara og nær að halda sambandi við
gífurlega stóran hóp jafnaldra sinna.
skynsamleg viðhorf
Foreldrum finnst oft og tíðum sem
net- og símanotkun unglingsins
sé allt of mikil en þeir athuga ekki
hversu stórt hlutverk hún leikur í lífi
þeirra í dag. Spurningin er hvort að
þessi mikla breyting sem orðið hef-
ur á atferli unglinga dragi úr hæfni
þeirra í samskiptum augliti til auglits
og sem fullorðnir einstaklingar verði
þeir hálfgerðir skjáþrælar samskipta-
lega séð.
Langflestir ef ekki allir unglingar
virðast þó hafa mótað með sér skyn-
samlegt viðhorf gagnvart stafrænum
samskiptum og líta á þau sem við-
bót en ekki eitthvað sem geti komið
í staðinn fyrir hefðbundin samskipti
manna á milli. palli@dv.is
Aukin sjálfsvitund og feimni eru oft fylgifiskar þess mótunarferlis sem unglingsárin
eru. Ný bandarísk rannsókn bendir til þess að stafræn samskipti innan þessa aldurs-
hóps veiti unglingum aukið öryggi og auðveldi þeim að skapa sjálfsmynd.
Hausa-
veiðar
á netinu
Í könnun sem nýlega var gerð á
vegum Microsoft kemur fram að
um 75 prósent bandarískra ráðn-
ingarstofa framkvæma nú víðtæka
netkönnun á þeim einstaklingum
sem sækja um störf í gegnum þær.
Þetta er gert að beiðni þeirra fyr-
irtækja sem leita til ráðningarstof-
anna og er þá beðið um að ferill
umsækjandans á samskiptasíð-
um, myndskeiðs- og ljósmynda-
síðum, umræðusíðum og leikja-
síðum sé kannaður. 70 prósent
ráðningarstofanna upplýstu að
þær hefðu hafnað umsækjendum
vegna upplýsinga sem fundust við
slíka vefferilskönnun..
Flip-
board
Fyrir
ipad
Flipboard er nýtt forrit fyrir iPad sem
kom á markað í vikunni en með for-
ritinu tengist notandinn samskipta-
síðunum Facebook og Twitter og
upplifir efnið með öðrum hætti en
fólk hefur vanist hingað til. Markmið
forritsins er að notandanum finnist
sem hann skoði tímarit þar sem öllu
er haganlega fyrir komið og vel upp-
sett, frekar en vefsíðu þar sem enda-
laus röð líkra pósta verður að hálf-
gerðu útlitslegu kraðaki. Ráðgert er
að forritið bæti við sig öðrum tengi-
möguleikum þegar á líður, bæði vin-
sælum vefsíðum og jafnvel netpósti
ásamt viðhengjum.
þjónusta
Fyrir sjó-
ræningja
Tveir af meðlimum Sjóræningja-
flokks Svíþjóðar eða Piratpartiet eru
þessa dagana að setja á stofn inter-
netþjónustu í anda flokksins ef svo
má að orði komast. Friðhelgi verða
einkunnarorð fyrirtækisins sem ekki
mun viðhalda neinum upplýsingum
um hvað viðskiptavinir gera á netinu
en þeir geta þar að auki tengst þjón-
ustunni á þann hátt að ekki er hægt
að rekja slóð þeirra í netheimum af
öðrum aðilum. Verið er að prufu-
keyra þjónustuna í Lundi en fyrir-
tækið vonast til að færa út kvíarnar á
næstu mánuðum þannig að allir Sví-
ar geti nýtt sér hana.
staFrænir
n lingar
sMs Á aðeins fjórum árum hafa textaskilaboð fest sig í sessi sem vinsælasta samskiptaformið meðal unglinga.
viðbót Langflestir unglingar virðast líta
á stafræn samskipti sem viðbót en ekki
eitthvað sem geti komið í staðinn fyrir
hefðbundin samskipti.