Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2010, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 11. ágúst 2010 FRÉTTIR 7
Forseti mótorhjólasamtakanna MC Iceland, tilvonandi Vítis-
engla á Íslandi, Einar Ingi Marteinsson, hefur beðið lögfræð-
inga að kanna réttarstöðu sína og meðlima samtakanna
vegna skilgreiningar Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra.
Hún segir Vítisengla flokkaða sem skipulögð glæpasamtök af
erlendum lögregluyfirvöldum og ætlar að sporna gegn því að
samtökin festi hér rætur.
Einar Ingi Marteinsson, oft nefnd-
ur Einar „Boom“, forseti mótor-
hjólasamtakanna MC Iceland hef-
ur ákveðið að höfða mál á hendur
Rögnu Árnadóttur dómsmálaráð-
herra. Ástæðan er sú að ráðherrann
flokkar mótorhjólasamtökin Hells
Angels, Vítisengla, sem glæpasam-
tök og segist ekki eiga von á öðru en
að svo verði einnig hér á landi.
Ragna ráðherra hefur boðað
löggjöf gegn starfsemi Vítisengla
hérlendis og sérfræðingar ráðu-
neytisins hafa verið fengnir til að
undirbúa lagatexta tveggja frum-
varpa í þá veru. Annars vegar til að
gefa stjórnvöldum skýrari heimildir
til að leysa upp félagasamtök með
ólögmætan tilgang og hins vegar
heimild til forvirkra rannsóknar-
heimilda. Í samtali við DV í vikunni
sagði Ragna frumvörpin tvö hugs-
uð til verndar borgurum landsins,
með því að sporna gegn skipulagðri
glæpastarfsemi.
Ekki bannað
Einar Ingi staðfestir að hafa nú þeg-
ar leitað til lögfræðinga til að kanna
réttarstöðu meðlima mótorhjóla-
samtakanna og þá vegna skilgrein-
ingar dómsmálaráðherra á samtök-
unum sem glæpasamtökum. Hann
hefur í samtali við DV lýst því yfir
að klúbburinn sé fjölskyldusamtök
og segir ekkert ólögmætt við það
að keyra um landið á mótorhjóli.
„Hvernig getur dómsmálaráðherra
kallað starfsemi okkar glæpastarf-
semi? Hvernig er hægt að banna
löglega starfsemi okkar? Við sem
klúbbur höfum aldrei verið dæmd-
ir fyrir glæp. Það er ekki ólöglegt að
keyra mótorhjól á Íslandi og að vera
í mótorhjólaklúbbi á Íslandi er ekki
lögbrot. Hins vegar eru yfirlýsingar
dómsmálaráðherra klárt lögbrot og
við erum að skoða réttarstöðu okkar
vegna ummæla ráðherra,“ segir Ein-
ar Ingi.
Auknar heimildir
Fyrirhuguð lagafrumvörp Rögnu
byggjast á nefndaráliti þar sem kom-
ist var að þeirri niðurstöðu að sam-
kvæmt stjórnarskránni væri mögu-
legt að leysa upp félagasamstök sem
talin væru hafa ólögmætan tilgang.
Þrátt fyrir að nefndin teldi þetta
mögulegt nú þegar ákvað dóms-
málaráðherra að styrkja heimildir
stjórnvalda enn frekar með nýjum
lögum í þessa veru. Lögin gefi yfir-
völdum betri vopn í baráttunni gegn
skipulagðri glæpastarfsemi.
Að leysa upp Vítisengla hér-
lendis segir Ragna hins vegar ekki
vera töfralausn í baráttunni og í
samtali við DV sagðist hún helst
vilja komast af án þess að setja frek-
ari lög. „Ég vildi óska þess að við
þyrftum ekki að gera tillögur um
þetta í samfélagi okkar. Sjálf vildi
ég helst komast af án slíkra heim-
ilda en það er svo að skipulögð
glæpastarfsemi er orðin staðreynd
hjá okkur og við þurfum því mið-
ur aukin úrræði til að geta brugðist
við. Það er í raun það sorglega við
þetta allt saman.“
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
VÍTISENGLAR
GEGN RÖGNU
RÁÐHERRA
n Fjöldaferð er fram undan hjá meðlimum íslensku mótorhjólasamtakanna MC
Iceland til Englands þar sem þeir sækja ráðstefnu Evrópudeilda Hells Angels-mót-
orhjólasamtakanna. Samkvæmt heimildum DV eru nokkrar líkur á því að á ráð-
stefnunni verði klúbburinn lýstur fullgildur meðlimur í alþjóðlegu samtökunum.
n Tæpt ár er liðið frá því að MC Iceland náði því skrefi að verða svokallaður „pros-
pect“-klúbbur Vítisengla en það er í raun síðasta skrefið sem taka þarf áður en
mótorhjólaklúbburinn verður fullgildur meðlimur Hells Angels. Fastlega er búist
við því að fullgildingin gangi í gegn nú þar sem venjan sé að slíkt gerist ári eftir að
síðasta skrefið er tekið. Nú þegar hafa samtök Vítisengla verið stofnuð hérlendis,
HA Iceland, og ráðstefnan sem fram undan er hefst 28. ágúst, nákvæmlega upp á
dag ári eftir að MC Iceland hlaut „prospect“-nafnbótina.
n Ráðstefna Evrópudeilda Vítisengla fer fram á Englandi síðla ágústmánaðar,
nánar tiltekið í hinni heimsfrægu knattspyrnuborg Manchester. Eftir því sem DV
kemst næst stefna flestir meðlimir MC Iceland að því að fara á ráðstefnuna með
það í huga að vera til staðar ef fullgildingin gengur í gegn. Vandi meðlimanna er
sá að fyrir fram er þeim ekki tilkynnt um hvort það gerist eður ei og mæta þeir því
til leiks upp á von og óvon.
Verða brátt Vítisenglar
Byggja á gögnum Ragna Árnadóttir bendir á að fullyrðingar um Vítisengla
sem glæpasamtök séu byggðar á gögnum. Hún á von á því að það komi til kasta
dómstóla að skera úr um málefni mótorhjólasamtakanna hér á landi. „Það sem
ég hef sagt um að erlend löggæsluyfirvöld líti á Hells Angels sem skipulögð
glæpasamtök byggi ég á gögnum sem hafa verið lögð fyrir mig. Hitt er svo
annað mál að íslensk stjórnvöld verða að sanna mál sitt með fullnægjandi hætti.
Endanleg niðurstaða er hjá dómstólum eins og stjórnarskrárákvæðið segir til
um,“ segir Ragna.
Við sem klúbbur
höfum aldrei verið
dæmdir fyrir glæp.
Ekki sáttur Einar
„Boom“ er ekki
sáttur við að Vítisenglar
hérlendis séu flokkaðir
sem glæpasamtök og
íhugar málshöfðun
gegn dómsmálaráð-
herra. Hann segir ekki
ólöglegt að keyra um á
mótorhjóli.