Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2010, Blaðsíða 25
HLAUPAÁRIÐ BÚIÐ HJÁ BOLT Aðeins nokkr-
um dögum eftir óvænt tap fyrir Bandaríkjamanninum Tyson Gay í
Stokkhólmi hefur fljótasti maður veraldar, spretthlauparinn Usain
Bolt, tilkynnt að hann hlaupi ekki meira á árinu. Bolt ber við þrálátum
meiðslum í mjóbaki. Bolt hefur verið harðlega gagnrýndur í heima-
landinu, Jamaíku, út af tapinu gegn Gay og hann sagður áhugalaus
í keppnunum þar á undan. Óttast margir að skemmtanalífið sé að
þvælast fyrir hlauparanum ótrúlega. Sjálfur vonast hann til að snúa
aftur 2011 betri en fyrr því næstu tvö ár séu mikilvæg keppnisár.
PIPPEN OG JORDAN SAMAN Á NÝ NBA-
goðsögnin Michael Jordan mun bjóða vin sinn og liðsfélaga til fjöl-
margra ára hjá Chicago Bulls, Scottie Pippen, velkominn í Frægð-
arhöll körfuboltamanna á föstudaginn. Pippen er meðal þeirra
útvöldu sem teknir verða inn í Frægðarhöllina að þessu sinni en
Jordan var þess heiðurs aðnjótandi í fyrra. Karl Malone og Jerry
Buss eru meðal þeirra sem einnig verða teknir inn og þá verða tvö
landslið Bandaríkjanna í körfubolta heiðruð; Ólympíuliðin frá 1960
og Draumaliðið frá Ólympíuleikunum í Barcelona 1992.
MOLAR
GERRARD: COLE
BETRI EN MESSI
n Steven Gerrard, fyrirliði Liver-
pool, hefur hrifist mjög af nýjustu
stjörnu liðsins Joe Cole. „Messi
getur fram-
kvæmt ótrúlega
hluti en allt sem
hann getur gert,
getur Joe gert
jafn vel ef ekki
betur,“ er haft
eftir Gerrard.
Bjartsýnin hjá
Gerrard end-
ar ekki þar því
hann spáir því að Cole verði valinn
leikmaður ársins á Englandi. Hann
telur einnig að félagið komist aftur
í hóp þeirra bestu undir stjórn Roy
Hodgson.
EVERTON MEÐ STÓRT
TILBOÐ Í REMY
n Everton hefur boðið þrettán
milljónir punda í Frakkann Loïc
Remy, leikmann Nice. Remy er
óvænt orðinn
einn eftirsótt-
asti framherji
Evrópu og hefur
verið orðaður
við fjölmörg lið.
Remy er 23 ára
gamall og mun
leika sinn fyrsta
landsleik á mið-
vikudagskvöld-
ið þegar Frakkland mætir Noregi
í Osló. Til að geta greitt svo háa
fjárhæð fyrir leikmanninn þarf Ev-
erton þó að selja framherjann Ya-
kubu. Forráðamenn West Ham eru
sagðir áhugasamir, en Yakubu er
metinn á átta milljónir punda.
MILITO OG ZANETTI
FRAMLENGJA HJÁ INTER
n Argentínumennirnir Javier
Zanetti og Diego Milito hjá Inter
hafa framlengt samninga sína við
liðið. Zanetti,
sem varð 37 ára
á þriðjudag,
skrifaði undir
samning sem
gildir til júní
2013 en Milito
gerði samning
til júní 2014.
Þeir voru báðir
lykilleikmenn í
velgengni Inter á síðasta tímabili.
Milito skoraði bæði mörk Inter í
2:0 sigri á FC Bayern í úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu í vor. Ja-
vier Zanetti hefur leikið með Inter
frá árinu 1995 og er leikjahæsti
leikmaður í sögu liðsins með yfir
700 leiki að baki.
CAPELLO SEGIST
EFTIRSÓTTUR
n Fabio Capello, landsliðsþjálfari
Englands í knattspyrnu, segir að
hann hafi fengið þrjú tilboð síðan
Englending-
ar féllu úr leik
á HM í sumar.
Capello hafn-
aði þeim hins
vegar öllum til
að halda áfram
með enska
landsliðið. Talið
er að Inter sé
eitt þessara fé-
laga en svo fór að Rafael Benitez
var ráðinn. „Þetta voru þrjú stór
félög en ég vil ekki tala um þau af
virðingu við stjórana sem eru þar
nú,“ segir Capello sem mun freista
þess að koma enska liðinu á Evr-
ópumótið í Póllandi og Úkraínu
árið 2012. Þar er enska liðið í riðli
með Sviss, Svartfjallalandi, Búlg-
aríu og Wales.
MIÐVIKUDAGUR 11. ágúst 2010 SPORT 25
NÝ REGLA
Martin O’Neill hættir hjá Aston
Villa eftir fjögur ár í starfi.
BLÓÐHEITI ÍRINN
KVEÐUR MEÐ HVELLI
Martin O’Neill sagði starfi sínu sem
stjóri Aston Villa lausu með fússi á
þriðjudaginn. Rétt rúmlega fjórum
árum eftir að hann var ráðinn til fé-
lagsins segja knattspyrnuspeking-
ar að deilur við eiganda liðsins um
leikmannakaup og fjármál hafi ver-
ið kornið sem fyllti mælinn hjá Íran-
um. DV rifjar upp feril hins skraut-
lega stjóra.
Þrekvirki lítilmagnans
O’Neill var ráðinn til Villa í ágúst
2006 eftir að hann hafði tekið sér frí
frá þjálfun í rúmt ár og hætt hjá Glas-
gow Celtic til að annast veika eigin-
konu sína. Á fimm árum hjá skoska
stórveldinu vann hann deildina í þrí-
gang, þrjá skoska bikarmeistaratitla
og einn deildarbikar. O’Neill var eft-
irsóttur og orðaður við mörg stórlið.
Allt þar til veikindi eiginkonu hans
komu upp.
Það kom því nokkuð á óvart þeg-
ar hann snéri sér aftur að þjálfun og
ákvað að taka við Aston Villa, félagi
sem leiktíðina 2005/2006 var í botn-
baráttu í ensku úrvalsdeildinni og
hafði endað í 16. sæti. Fyrsta leik-
tíð stjórans var kaflaskipt eftir góða
byrjun og endaði liðið að lokum í 11.
sæti. Næstu þrjú árin með O’Neill
við stjórnvölinn endaði Villa í 6.
sæti deildarinnar og bætti sig hvert
ár. Umdeildar ákvarðanir O’Neills,
óstöðugt gengi og fámennur leik-
mannahópur hindruðu þó Villa
ávallt í að brjótast inn í hóp efstu
fjögurra liðanna. Miðað við það fjár-
magn og þann fámenna leikmanna-
hóp sem O’Neill hafði úr að moða í
baráttunni við stórliðin eru þó flest-
ir sammála um að hann hafi unnið
mikið þrekvirki með Villa sem leikið
hefur yfir væntingum ár hvert.
Fjársveltur í baráttunni
Þrátt fyrir frábæran árangur með
Villa var alltaf ljóst að O’Neill hafði
ekki mikla fjármuni til að styrkja
hópinn ár frá ári. Leikmenn hafa
verið seldir á þessum tíma en lítið af
þeim fjármunum sem fengust í þeim
viðskiptum hafa runnið í innkaupa-
veski O’Neills. Flestir eru sannfærðir
um að O’Neill hafi hætt vegna ósætt-
is við eiganda liðsins, Randy Lern-
er, um þessa stefnu liðsins. Hvorki
O’Neill né núverandi stjórn vilja
tjá sig um ástæður uppsagnarinnar
að svo stöddu en fyrrverandi stjóri
Aston Villa, Graham Taylor, er einn
margra sem er fullviss um að fjár-
svelti sé ástæða uppsagnarinnar.
Stjörnurnar á útleið
Eftir að hafa stýrt Villa í 6. sæti deild-
arinnar tvö tímabil í röð bjóst O’Neill
við peningum til leikmannakaupa
fyrir leiktíðina 2009/2010. Stærstu
tíðindin í þeim efnum voru að ákveð-
ið var að selja fyrirliða liðsins, Gar-
eth Barry, fyrir 12 milljónir punda til
Manchester City árið 2009. Stærstu
kaup O’Neills eftir það voru kaupin á
Stuart Downing frá Middlesbrough.
Kornið sem fyllti mælinn er hins
vegar yfirvofandi sala á James Mil-
ner til Man. City fyrir tugi millj-
óna punda. Leikmaðurinn átti frá-
bært tímabil í fyrra en O’Neill mun
hafa fengið þau skilaboð frá for-
ráðamönnum liðsins að ekki væri
hægt að lofa honum hárri upphæð
af þeirri sölu til ráðstöfunar í leik-
mannakaup. Villa stendur frammi
fyrir baráttu í deildinni sem og í
Evrópukeppninni. Gremja O’Neill
er því skiljanleg í ljósi þess að ann-
ar stjörnuleikmaður liðsins, Ashley
Young, er nú orðaður við stærri lið.
O’Neill stóð því frammi fyrir því að
vera að missa alla sína stjörnuleik-
menn og fá lítið fyrir sinn snúð til að
styrkja liðið. Honum var nóg boðið
og gekk út.
Bradley eftirmaður O’Neills?
Fyrrverandi eigandi Aston Villa,
Doug Ellis, sem fékk O’Neill til liðs-
ins á sínum tíma lýsir vonbrigðum
sínum með brotthvarf stjórans. Ellis
er nú heiðursforseti félagsins og seg-
ir þó að brotthvarfið hafi ekki komið
sér mikið á óvart.
Í gær lýsti Bob Bradley, landsliðs-
þjálfari Bandaríkjanna, yfir áhuga á
að taka við af Martin O’Neill á Villa
Park. „Ég get ekki neitað því að tæki-
færi til að þjálfa á Englandi væri of
gott til að hafna.“ Hann er í bresk-
um fjölmiðlum sagður líklegasti eft-
irmaður O’Neills eins og staðan er í
dag en ljóst er að hver sá sem fylgir
í fótspor hans á verðugt verkefni fyr-
ir höndum. Mikil ábyrgð hvílir því á
herðum Randy Lerner að finna eftir-
mann eins líflegasta stjóra ensku úr-
valsdeildarinnar.
Kveður vígvöllinn Martin
O’Neill vann mikið þrekvirki hjá
Aston Villa þar sem hann hafði
úr litlu að spila í baráttunni við
stórliðin. MYND REUTERS
SIGURÐUR MIKAEL JÓNSSON
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is