Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2010, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR 11. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
Pálmi Gestsson segir þetta vera eðlilegt framhald:
Vildu halda áfram
„Ég held að þetta sé eðlilegt framhald
af því fjársvelti sem Ríkisútvarpið er
í,“ segir Pálmi Gestsson Spaugstofu-
maður þegar hann er spurður út í þá
ákvörðun Ríkisútvarpsins að vera
ekki með Spaugstofuna á dagskrá
næsta vetur. Spaugstofan er búin að
vera vinsælasti sjónvarpsþátturinn
hjá Ríkisútvarpinu í 21 ár en Pálmi
segir Ríkisútvarpið telja að ekki séu
til fjármunir til áframhalds á þætt-
inum.
„Við hefðum gjarnan viljað halda
þessu áfram og teljum fulla þörf á
svona dægurmálatengdum þætti
sem sé nauðsynlegur í þjóðfélag-
inu, hvort sem við kæmum að slík-
um þætti eða ekki. Þetta er búið að
vera mjög skemmtilegt og auðvitað
söknum við þess líka. En einhvern
tímann verður allt að hætta,“ segir
Pálmi.
Hann segir Spaugstofumenn
hafa ýmis verkefni næsta vetur en
þeir verði aðallega í leikhúsunum í
vetur að sögn Pálma. „En við erum
með fullt af hugmyndum sem yrði
gaman að gera að veruleika en við
erum ekkert farnir að huga að því
þannig séð.“ birgir@dv.is
Fjöldi hugmynda Pálmi
Gestsson segir Spaug-
stofumenn búa yfir fjölda
hugmynda sem gaman
væri að vinna frekar.
„Okkur finnst leiðinlegt ef þeir fara
af skjánum. Dyrnar okkar standa
opnar fyrir þeim og við myndum
gjarnan vilja halda þeim í lofti,“
segir Kristjana Thors Brynjólfs-
dóttir, dagskrárstjóri Skjás eins.
Þreifingar eru í gangi milli með-
lima Spaugstofunnar og Skjás eins
um að þættirnir verði á dagskrá þar
í vetur.
Kristjana segir að þó sé ljóst að
Skjár einn hafi ekki yfir sama fjár-
magni að ráða og RÚV. „Þrátt fyrir
niðurskurð hjá RÚV þá höfum við
ekki sama fjármagn og þeir. Ég held
að þjóðin vilji enn horfa á Spaug-
stofuna og það er mikilvægt líka
á þessum tímum að slá upp léttu
gríni þegar það er alvara í gangi
alla vikuna.“
Skjár einn heitur
SPAUGSTOFAN KVEÐUR
INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: indiana@dv.is
Eftir rúma tvo áratugi hefur vinsæl-
asti þáttur landsins, Spaugstofan,
verið flautaður af. Þetta var þeim
sem komið hafa að framleiðslu
þáttanna tilkynnt á fundi á þriðju-
dag en í tölvupósti sem Páll Magn-
ússon útvarpsstjóri sendi starfsfólki
Ríkisútvarpsins á þriðjudagsmorg-
un kemur fram að ástæðan sé boð-
aður niðurskurður stjórnvalda á
tekjum Ríkisútvarpsins.
Fyrsti þáttur þeirra Spaugstofu-
manna fór í loftið í Sjónvarpinu
þann 21. janúar árið 1989 und-
ir nafninu 89 af stöðinni. Árið eft-
ir hét þátturinn 90 af stöðinni og
síðar Enn ein stöðin. Upphaflega
var Spaugstofan skipuð þeim Erni
Árnasyni, Sigurði Sigurjónssyni,
Karli Ágústi Úlfssyni, Randveri Þor-
lákssyni og Þórhalli Sigurðssyni,
betur þekktum sem Ladda. Þegar
Laddi gekk til liðs við Gríniðjuna
kom Pálmi Gestsson í hans stað.
Randver rekinn
Árið 2007 var Randver óvænt lát-
inn fara en uppsögn hans vakti
hörð viðbrögð í samfélaginu enda
kom brotthvarfið mönnum í opna
skjöldu. Sitt sýndist hverjum enda
hafa landsmenn alltaf haft sterk-
ar skoðanir á Spaugstofunni, efn-
istökum hennar og -þáttum. Sam-
kvæmt heimildum DV var það
ákvörðun þáverandi dagskrár-
stjóra, Þórhalls Gunnarssonar, að
láta Randver fara í von um að fríska
upp á þáttinn. Markmiðið hafi verið
að hleypa ungum og upprennandi
leikurum inn í þættina sem höfðu
verið lítið breyttir frá upphafi.
Spaugstofumenn og samstarfs-
menn Randvers til sautján ára vildu
lítið tjá sig um brotthvarf Randvers
eftir uppsögnina en greinilegt var
að þeir voru allt annað en sátt-
ir. „Þetta er alfarið ákvörðun dag-
skrárstjórans Þórhalls Gunnars-
sonar. Ég er vissulega mjög leiður
og þungur yfir því að Randver skuli
ekki vera með okkur lengur því
hann hefur verið með okkur í mjög
langan tíma. Ég sakna hans mikið
úr þessar vinnu og ég hefði gjarnan
viljað hafa hann áfram. Ég vona að
þetta eigi ekki eftir að koma niður á
þættinum,“ lét Karl Ágúst hafa eft-
ir sér í viðtali við DV þann 13. sept-
ember 2007.
Allir með skoðanir
Frá upphafi hefur Spaugstofan ver-
ið ádeila á íslensk samfélagsmál og
nokkurs konar spegill á samtím-
ann þar sem gert er grín að mönn-
um og málefnum. Þátturinn hefur
verið sýndur vikulega svo Spaug-
stofumenn hafa þurft að vinna hratt
í gegnum árin. Í DV þann 29. ág-
úst 2008 sagði Pálmi Gestsson það
ótrúlegt að sumir þættirnir hafi yfir-
höfuð komist til skila. „Maður hefur
upplifað stundum vikulegt krafta-
verk að koma þessu á koppinn. Til
dæmis þegar fall meirihlutans var
og Tjarnarkvartettinn myndaðist
vorum við búnir að taka upp þátt en
þurftum að byrja alveg upp á nýtt.
Við ætlumst heldur ekkert til þess
að fólk sýni því einhvern skilning
hvernig svona ferli fer fram. Það er
nú það sem birtist endanlega í sjón-
varpinu sem skiptir máli. Hvort sem
leiðin að því hefur verið erfið eða
auðveld.“
Hver þáttur hefur vakið umræð-
ur í samfélaginu og eftir umdeilda
þætti hafa bloggheimar hrein-
lega logað. Í viðtalinu sagði Pálmi
eðlilegt að þjóðin hefði skoðun á
Spaugstofunni. „Og ég býst ekki við
neinu öðru. Við erum hins vegar
að þjóna svo breiðum aðdáenda-
hópi að ég tel það einsdæmi í sjón-
varpssögunni. Við erum að gera
aðdáendum til geðs frá tveggja ára
aldri til níræðs. Og oft segja sumir
að þetta hafi verið okkar besti þátt-
ur meðan aðrir eru alveg á því að nú
þurfum við að hætta.“.
Umdeildustu þættirnir
Stundum hefur mönnum þótt
grínið fara yfir strikið og nægir að
nefna þáttinn þegar veikindi Ólafs
F. Magnússonar, þáverandi borgar-
fulltrúa, voru tekin fyrir. Þátturinn
er einn eftirminnilegasti þátturinn
frá upphafi og þótti mörgum nóg
um. Í viðtali við DV þann 15. febrú-
ar 2010 sagði Pálmi þá félaga aldrei
ætla að ráðast á fólk persónulega.
„Ég hermi ekki eftir forsetanum af
því að mér er illa við hann eða ég
ber ekki virðingu fyrir honum. Ól-
afur var opinber persóna og hans
veikindi voru í öllum fjölmiðlum og
við drógum dám af þeirri umfjöll-
un.“ Umtalaðasti þátturinn hlýtur
þó að vera páskaþátturinn árið 2007
þegar þeir félagar gerðu grín að síð-
ustu kvöldmáltíðinni. Þátturinn
leiddi til þess að fimmmenningarn-
ir voru yfirheyrðir af lögreglunni og
sakaðir um guðlast. Í viðtali við DV
í febrúar sagði Pálmi engan ákveð-
inn Spaugstofumann vilja ganga
lengra en hina. „Eins ólíkir karakt-
erar og við erum þá erum við ein-
kennilega samstíga og þess vegna
Spaugstofan hefur verið flautuð af dagskrá RÚV eftir rúma tvo
áratugi á skjánum. Þáttaröðin hefur verið gríðarlega vinsæl frá
upphafi og alltaf notið mikils áhorfs en núna kveðja drengirnir
sjónvarpsáhorfendur og verður án efa mikil eftirsjá að þeim.
Yfir til þín Spaugstofan verður
ekki á dagskrá Ríkissjónvarpsins í
vetur og eiga margir eftir að sakna
þessara hressu félaga.