Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2010, Side 16
16 erlent 11. ágúst 2010 miðvikudagur
Íranski blaðamaðurinn Akbar Ganji
hefur verið valinn „frelsishetja heims-
pressunnar“ af Alþjóðlegu fjölmiðla-
stofnuninni (IPI), en það eru al-
þjóðleg samtök ritstjóra, stjórnenda
fjölmiðla og þekktra blaðamanna.
Hann hlýtur verðlaunin fyrir baráttu
sína fyrir málfrelsi og jöfnuði.
Ganji eyddi sex árum í hinu ill-
ræmda Evin-fangelsi í Íran fyr-
ir blaðagreinar þar sem valdamikl-
ir stjórnmálamenn og klerkar voru
ásakaðir um að hafa haft hönd í bagga
þegar fræðimenn og mótmælendur
voru myrtir.
Þrátt fyrir skelfilegar aðstæður í
fangelsinu hélt Ganji áfram að skrifa.
Hann ritaði um mögulegar leiðir
Írana til þess að stofna veraldlegt lýð-
ræðisríki, þar sem trúarleiðtogar sætu
ekki á valdastóli. Hann hefur kallað
eftir auknum mannréttindum, frjálsri
fjölmiðlun og réttlátu réttarkerfi.
Akbar Ganji var sleppt úr fang-
elsi árið 2006 og yfirgaf hann þá Íran
en hélt áfram að berjast fyrir frelsi og
réttindum í heimaland sínu.
„Hugrekki hans undir stöðugri
ógn yfirvalda og löng barátta hans
fyrir sannleika og réttlæti ætti að vera
okkur öllum innblástur,“ sagði Ali-
son Bethel McKenzie hjá IPI. „Barátta
hans skiptir sérstaklega miklu máli
nú um stundir þegar pólitískir and-
ófsmenn eru ofsóttir í auknum mæli
í Íran.“
Alþjóðlega fjölmiðlastofnunin
hefur höfuðstöðvar í Vínarborg. Sam-
tökin hafa lengi veitt blaðamönnum
um allan heim viðurkenningar fyrir
störf sín og baráttu. Árið 2006 heiðr-
aði stofnunin rússneska blaðamann-
inn Önnu Politkovskaju, en hún var
myrt aðeins tveimur mánuðum fyrr.
Alþjóðlega fjölmiðlastofnunin verðlaunar íranskan blaðamann:
Berst fyrir málfrelsi í Íran
Sat inni í sex ár Akbar Ganji reitti stjórnvöld í Teheran til reiði þegar hann ásakaði valdamikla menn um að hafa fyrirskipað morð
á mótmælendum. Fyrir það sat hann í fangelsi í sex ár. ReuteRS
Vilja borga skuld
með ginseng
Stjórnvöld í Norður-Kóreu vilja gera upp gamla skuld við Tékka með því að senda þeim ógrynni af gins-
eng sem framleitt er í stórum stíl í landinu. Norður-Kóreumenn standa í ströngu vegna refsiaðgerða sem
komnar eru til vegna aukinnar spennu í deilum þeirra við Suður-Kóreumenn. Tékkar þurfa ekki á miklu
ginseng að halda og vilja frekar sink.
Stjórnvöld í Pyongyang, höfuð-
borg Norður-Kóreu, hafa boðist til
að borga hluta skuldar sinnar við
Tékkland með gríðarstórri gins-
engssendingu í stað þess að greiða
í fé þar sem einræðisstjórnin stríðir
við erfiðan fjárhagsvanda.
Norður-Kórea hefur í árarað-
ir glímt við mikinn efnahagsvanda
heima fyrir en hefur nú lent í enn
verri stöðu vegna alþjóðlegra refsi-
aðgerða sem lengi hafa beinst að
landinu vegna kjarnorku- og eld-
flaugaáætlunar þess. Refsiaðgerð-
ir hafa nú verið hertar enn frekar
vegna suður-kóreska herskipsins
sem sökk nálægt ströndum Norð-
ur-Kóreu.
Skuldir norðurkóreska ríkisins
eru taldar vera um tólf milljarð-
ar Bandaríkjadala, sem nema um
1.400 milljörðum íslenskra króna.
Tveir þriðju hlutar skuldarinnar
eru við fyrrverandi kommúnista-
ríki.
Skulda tékkum fyrir vélar
Tékkneskir embættismenn hafa
staðfest að stjórnvöld í Pyongyang
hafi boðist til að greiða fimm pró-
sent af tíu milljón dala skuld með
ginseng. Ginseng er planta með
matmiklum rótum sem notaðar
eru í ýmsum læknisfræðilegum til-
gangi. Sagt hefur verið að ginseng
bæti minni, þrótt og jafnvel kyn-
þrótt, en lækningarmáttur rótanna
hefur verið umdeildur.
Á valdatíð kommúnista í Tékkó-
slóvakíu var landið eitt helsta
viðskiptaland Norður-Kóreu.
Tékkóslóvakar seldu Norður-Kór-
eumönnum þungavélar, vörubíla
og sporvagna.
Vöruskipti hafa lengi tíðkast á
milli kommúnistalanda og annarra
ríkja sem staðið hafa fyrir utan fjár-
málakerfi Vesturlanda. Kúba hefur
til dæmis greitt fyrir olíu frá Ven-
esúela með því að senda lækna til
bágstaddra svæða.
Kapítalistarnir sem nú ráða ríkj-
um í Tékklandi eru þó ekki taldir
ginkeyptir fyrir ginseng og telja sig
líklega ekki þurfa orkuskammt.
Hafa ekki not fyrir ginsengið
„Við höfum reynt að sannfæra þá
um að senda okkur til dæmis sink
sem þeir grafa úr námum í Norður-
Kóreu,“ segir Tomas Zidek, aðstoð-
arfjármálaráðherra Tékklands, við
tékkneska dagblaðið MF Dnes.
Radek Lezatka, upplýsingafull-
trúi fjármálaráðuneytisins, sagði
að stjórnvöld í Prag væru enn að
ræða hvort Norður-Kóreumenn
megi greiða skuldina með bein-
hörðum peningum eða með varn-
ingi.
Blaðamenn MF Dnes hafa
reiknað út að fimm prósent norð-
urkóresku skuldarinnar jafngildi
tuttugu tonnum af hinum orku-
miklu ginsengrótum. Samkvæmt
Financial Times jafngildir það tólf
tonnum þegar miðað er við mark-
aðsverk norðurkóresks ginsengs í
Tævan. En eins og Financial Times
bendir einnig á eru báðar þessar
tölur miklu hærri en tölurnar um
ársneyslu ginsengs í Tékklandi, en
Tékkar neyta aðeins 1,4 tonns á ári.
Bandaríkjamenn æfir
Alþjóðlegar öryggissveitir upp-
götvuðu í fyrra gríðarstórar ólög-
legar vopnasendingar, sem eru ein
aðaltekjulind stjórnvalda í Pyongy-
ang í Norður-Kóreu. Vopnasalan er
talin hafa velt hundruðum milljón-
um Bandaríkjadala.
Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra hafa brugðist ókvæða
við eftir að suðurkóreska herskipið
sökk í mars og sakað Norður-Kór-
eumenn um athæfið. Samkvæmt
Financial Times ætla stjórnvöld í
Washington að gera áhlaup á al-
þjóðleg viðskipti Norður-Kóreu, en
þeir telja að kommúnistastjórnin
stundi víðtæka glæpi á sviði pen-
ingaþvættis og lyfjasmygls.
Helgi HRafn guðmundSSon
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Við höfum reynt að sann-færa þá um að senda okk-
ur til dæmis sink sem þeir grafa
úr námum í Norður-Kóreu.
ginseng Ginseng er framleidd í gífurlega miklum mæli beggja megin víglínunn-
ar á Kóreuskaga. ReuteRS
gera upp skuld Kim Jong-Il og undirmenn hans vilja borga skuld við Tékka með gríðarstórri ginsengssendingu. ReuteRS