Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2010, Blaðsíða 24
EIÐUR Á KROSSGÖTUM Eiður Smári Guðjohnsen er í enskum fjölmiðl-
um sterklega orðaður við enska úrvalsdeildarliðið Fulham. Mark Hughes, nýráðinn stjóri
Fulham, er sagður áhugasamur um að gera Eið að fyrsta leikmanninum sem hann fær
til liðsins. Ekki er þó talið að Fulham kaupi íslenska framherjann heldur hyggst Hughes
freista þess að fá hann að láni frá Monaco. Eiður hefur verið orðaður við fleiri lið undan-
farið, þar á meðal Glasgow Rangers og Tottenham, en ekkert samkomulag komist yfir
viðræðustigið. Eiður er þessa dagana staddur hér á landi vegna æfingaleiks landsliðs-
ins gegn Liechtenstein. Eiður er þögull um framtíð sína og hefur ekkert viljað tala við
íslenska fjölmiðla í aðdraganda leiksins og virðist vera í sjálfskipaðri fjölmiðlaútlegð.
MIKILVÆGT FYRIR UNGU
STRÁKANA Eyjólfur Sverrison, þjálfari U21-
landsliðsins í knattspyrnu, er bjartsýnn fyrir leik
liðsins gegn Þýskalandi í undankeppni EM sem
fram fer í dag, miðvikudag. Í samtali við Fótbolta.
net í gær segir Eyjólfur að leikurinn sé mikið tæki-
færi fyrir ungu landsliðsmennina því horft verði á
leikinn um allan heim. „Við ætlum að slá Þjóðverj-
ana út,“ sagði landsliðsþjálfarinn kokhraustur.
MOLAR
DROGBA ÆTLAR
AÐ BÆTA SIG
n Didier Drogba, framherji Chelsea,
hefur sent varnarmönnum ensku
úrvalsdeildarinnar skýr skilaboð.
Síðasta tímabil,
þar sem hann
varð markahæsti
leikmaður
deildarinnar
með 29 mörk, var
aðeins byrjunin.
Drogba, sem
orðinn er 32 ára,
segir að hann
hafi þurft að
glíma við kviðslit á síðasta tímabili
og á HM en eftir vel heppnaða
aðgerð sé hann tilbúinn að toppa
síðasta tímabil. „Þetta hefur verið
að stríða mér í sex ár, en núna get ég
loks leikið minn leik.“
GIGGS ENN
HUNGRAÐUR
n Ryan Giggs er kannski orðinn
36 ára gamall en hann segist vera
hungraðri en nokkru sinni fyrr í titla.
Giggs er að hefja
sitt 20. tímabil
með aðalliði Un-
ited og þrátt fyrir
að vera farinn að
grána í vöng-
um ætlar hann
ekki að gera
minni kröfur til
sín á komandi
tímabili. „Það er
meira hungur núna því maður vill
ekki fara í gegnum annað sumar
eins og það síðasta þegar við unnum
ekki titilinn.“ Giggs telur sömuleiðis
að nýi framherjinn, Javier Hernand-
ez, geti skipt sköpum fyrir United á
tímabilinu.
BENT MEIDDUR
Á BAKI
n Darren Bent mun missa af vin-
áttulandsleik enska landsliðsins á
miðvikudagskvöldið og vafi leikur
á hvort hann
nái opnunar-
leik Sunderland
í ensku úrvals-
deildinni. Bent
átti frábært tíma-
bil í fyrra þar sem
hann skoraði 24
mörk en aðeins
Wayne Roon-
ey og Didier
Drogba skoruðu fleiri. Bent kennir
sér meins í baki og var einn af fimm
leikmönnum enska liðsins sem gat
ekki æft vegna meiðsla. Bæði Bent
og stjóri Sunderland, Steve Bruce,
segja meiðslin koma á versta tíma
fyrir félagið og eykur enn á vandræði
Fabio Capello fyrir leikinn gegn
Ungverjalandi.
COLE ORÐAÐUR
VIÐ LIVERPOOL
n Liverpool er sagt hafa snúið sér að
framherja West Ham, Carlton Cole,
eftir að félaginu var gerð grein fyrir
því að Totten-
ham vildi 15
milljónir punda
fyrir Peter
Crouch. Breskir
fjölmiðlar segja
danska miðju-
manninn Christi-
an Poulsen við
það að ganga í
raðir Liverpool
frá Juventus og Roy Hodgson vill
bæta við framherja. Þó er talið að
West Ham sætti sig ekki við minna
en 12 milljónir punda fyrir Cole og
því gætu kaupin á honum ráðist af
því hvernig yfirtakan á Liverpool fer
og hvort Javier Mascherano verði
seldur til Inter Milan.
24 SPORT UMSJÓN: SIGURÐUR MIKAEL JÓNSSON mikael@dv.is 11. ágúst 2010 MIÐVIKUDAGUR
Leikmenn í ensku úrvalsdeildinni sjá margir fram á erfiða tíma uppi í stúku
vegna nýrrar reglu sem setur leikmannahópum liðanna skorður.
NÝ REGLA
skekur stórliðin
Nú þegar aðeins nokkrir dagar eru í að enska úr-valsdeildin rúlli af stað standa mörg stórlið-
anna frammi fyrir því vandamáli að
þurfa að skilja nokkrar stórstjörn-
ur á ofurlaunum eftir úti í kuldan-
um fyrir komandi tímabil. Ástæð-
an er ný regla úrvalsdeildarinnar
sem takmarkar leikmannahópa lið-
anna við 25 leikmenn. Þar af þurfa 8
þessara 25 leikmanna að vera upp-
aldir hjá ensku liði. Þetta setur stór-
liðin, sem sankað hafa að sér hverri
alþjóðlegu stórstjörnunni á fæt-
ur annarri, í mikinn vanda. Annað
hvort þarf að eiga sér stað rýming-
arsala, eða þá að útvaldir ofurlauna-
leikmenn þurfa að sitja uppi í stúku
á leikdag. Ein leiðin fram hjá þessu
er að lána leikmenn til annarra liða,
en þá sitja liðin samt sem áður uppi
með tugmilljóna laun leikmanna
án þess að njóta góðs af því sjálf.
Eyðslan kemur í bakið á City
Manchester City hefur eytt ótæpi-
lega undanfarin misseri. Liðið hefur
keypt hverja stórstjörnuna á fætur
annarri fyrir metfé en nú kemur að
skuldadögum. Talið er að City þurfi
að losa sig við á bilinu 8 til 12 leik-
menn vegna nýju reglunnar, því þeir
eru ekki enn hættir að styrkja lið sitt.
James Milner og Mario Balotelli eru
væntanlegir og því gæti ekki verið
pláss fyrir stjörnur á borð við Craig
Bellamy, Roque Santa Cruz, Robin-
ho, Stephen Ireland og Jo.
Reynslan bítur Chelsea
Eins og staðan er hjá Chelsea eru
aðeins fjórir uppaldir leikmenn yfir
21 árs aldri í hópnum hjá Carlo Anc-
elotti. Hann gæti því átt á hættu að
fá aðeins að skrá 21 leikmann í að-
alliðið. Chelsea gæti síðan þurft
að rýma fyrir komu hins brasilíska
Ramires sem talinn er væntanlegur.
Liverpool og Arsenal í bobba
Roy Hodgson getur eins og staðan
er í dag aðeins skráð 20 leikmenn
í aðalliðið auk unglinganna. Hann
hefur þegar lýst því yfir að hann
treysti ekki ungu strákunum til að
halda Liverpool í Evrópudeildinni
og treystir þeim því vafalaust ekki í
slaginn í enska boltanum. Arsenal
er, þótt ótrúlegt megi virðast, í betri
málum en Liverpool því liðið hefur
keypt mikið af kornungum strákum.
Wenger gæti þó verið einu til tveim-
ur sætum frá að fylla 25 manna hóp-
inn 1. september næstkomandi.
Hann hefur gagnrýnt þessa reglu
hvað harðast í fjölmiðlum og segir
hana lama lið á leikmannamarkaði
og gera marga góða leikmenn at-
vinnulausa.
Aðferð Ferguson borgar sig
Alex Ferguson hefur í gegnum tíð-
ina verið duglegur að leyfa ungu
strákunum, sem koma upp í gegn-
um unglingastarfið, að spreyta sig
í aðalliðinu. Þessi stefna hans virð-
ist ætla að borga sig því hann er vel
settur gagnvart nýju reglunni. Hann
gæti þó þurft að rýma til ef hann
styrkir hópinn fyrir 1. september.
Meiddar stjörnur fjarverandi
Þó að Ferguson sé ekki verst settur
af stjórum stóru liðanna þá stend-
ur hann frammi fyrir erfiðri ákvörð-
un. Meiðslapésar á borð við And-
erson og Owen Hargreaves eru
dæmi um leikmenn sem keyptir
voru fyrir háar fjárhæðir og verða
að öllum líkindum skildir eftir úti
í kuldanum. Ensku úrvalsdeildar-
liðin vilja ekki sóa dýrmætu plássi
á leikmenn sem ekki eru heilir og
það skilur Harry Redknapp, stjóri
Tottenham. Jonathan Woodgate
verður líklega ekki leikfær fyrr en
eftir áramót og verður því ekki í 25
manna hópi liðsins. Hann mun því
sitja uppi í stúku fyrri hluta tíma-
bils á meðan liðið greiðir honum
lúxuslaun. Andy Johnson, dýrasti
leikmaðurinn í sögu Fulham, gæti
sömuleiðis setið eftir með sárt enn-
ið jafnvel þó hann verði leikfær eftir
meiðsli fyrir áramót. Þess má geta
að á síðasta tímabili notuðu liðin
í úrvalsdeildinni að meðaltali 27
leikmenn yfir tímabilið. Þá voru að
meðaltali 12 enskir leikmenn valdir
í hópinn á leikdögum og sjö undir
21 árs aldri. mikael@dv.is
Hvað er að breytast?
Þann 1. september næstkomandi þurfa liðin að skila inn 25 manna leikmannalista fyrir komandi leiktíð. Átta þeirra þurfa að vera uppaldir hjá ensku liði.
Hvað gerist ef þau eiga ekki 8 uppalda leikmenn?
Liðin neyðast til að skila inn smærri hóp.
Þýðir þetta að ungir enskir leikmenn fái tækifæri?
Ekki endilega. Uppalinn leikmaður getur verið hver sá sem verið hefur á samningi hjá ensku eða velsku liði í að minnsta kosti þrjú ár þegar viðkomandi var á
aldrinum 16-21 árs.
Afhverju þessi nýja regla?
Enska úrvalsdeildin telur þetta ýta undir þróun unglingastarfs félaganna og hindri að ensk lið safni heimsins bestu leikmönnum til sín.
Hvað ef leikmaður lendir í langtímameiðslum?
Allir leikmenn undir 21 árs aldri eru gjaldgengir í liðið og má því kippa þeim úr
varaliðinu eftir aðstæðum. Undantekning á reglunni er sú að ef til dæmis tveir af
þremur skráðum markvörðum liðs meiðast þá má fá inn varamann utan frá.
Er listinn endanlegur?
Enginn leikmaður sem ekki er skráður á endanlegum lista liðs má leika fyrr en
félagsskiptaglugginn opnar á nýjan leik. Eina undantekningin er ef lið eiga ekki
25 leikmenn til að skrá þá mega þau semja við leikmenn án samnings þar til sá
gluggi lokast.
Hvernig er þessi nýja regla?
Höfuðverkur Stjórar stærstu og ríkustu
félaganna standa frammi fyrir erfiðum
ákvörðunum varðandi leikmannahópa
sína fyrir komandi
tímabil vegna
nýrrar reglu
úrvalsdeildar-
innar. MYNDIR
REUTERS