Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Qupperneq 6
6 fréttir 18. ágúst 2010 miðvikudagur „Mitt mál er nú komið enn lengra og ég hef sent inn erindi til Héraðsdóms þar sem ég bið um að fram fari mat óháðs aðila um hvort ég hafi orðið fyrir einelti af hálfu bæjarstjóra. Þá hefur lögmaður minn sent erindi til Persónuverndar, vegna áframsend- ingar tölvupósts með einkamál- um mínum, og þá óska ég eftir því að Vinnueftirlitið meti hið meinta einelti,“ segir Ólafur Melsted, fram- kvæmdastjóri tækni- og umhverfis- sviðs Seltjarnarnesbæjar. Helmingur af framkvæmdastjór- um Seltjarnarnesbæjar er kom- inn í leyfi frá störfum. Að minnsta kosti í öðru tilvikinu, tilviki Ólafs, er ástæðan erfið samskipti við Ásgerði Halldórsdóttur bæjarstjóra en sam- kvæmt heimildum DV á það einnig við í hinu tilvikinu. Reynist það rétt eru tveir framkvæmdastjórar bæj- arins ósáttir við framkomu bæjar- stjórans í þeirra garð. Um er að ræða helming af framkvæmdastjórunum sem þar starfa ef marka má vefsvæði bæjarins. Aðspurður segir Ólafur ljóst að málshöfðun af sinni hálfu fari fram. Hann segist hafa verið tekinn af launaskrá bæjarins í sumar þrátt fyr- ir að hafa sjálfur fengið framlengingu veikindaleyfis. „Veikindaleyfi mínu lauk um miðjan júlí en þá hafði ég fengið framlengingu því um atvinnu- sjúkdóm væri að ræða en þá var mér bara kippt af launaskrá í staðinn. Þegar þetta liggur allt fyrir verður málið kært og trúðu mér, það verður kært,“ segir Ólafur. Ólafur hefur lagt fram matsbeiðni til Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem þess er óskað að samskipti hans við bæjarstjórans verði skoðuð og skil- greind. Bæjarfulltrúar hafa allir feng- ið afrit af þeirri beiðni og eru meint- ar deilur framkvæmdastjóranna við bæjarstjórann nokkuð til umræðu meðal starfsfólks bæjarins þessa dagana. trausti@dv.is Framkvæmdastjóri á Nesinu tekur næstu skref varðandi málarekstur: Tekinn af launaskrá Seltjarnarnes Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Seltjarnarnes- bæjar ætlar með mál sitt fyrir dómstóla. Afhenti ekki bréfið Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sjúkrahúsprestur á Landspítalan- um, hafði samband við DV vegna ummæla sem hann lét falla í mánudagsblaði DV í tengslum við bréf Birgis Ás Guðmundsson- ar organista í Bústaðakirkju um ósiðlegt athæfi Ólafs Skúlasonar, þáverandi sóknarprests og síðar biskups. Birgir bað Kjartan um að koma bréfinu áfram til kirkjuráðs fyrir sig og sagðist hann hafa gert það. Kjartan segir að við nánari eftirgrennslan sína hafi komið á daginn að hann sendi bréf- ið aldrei áfram. Biskup og aðrir meðlimir kirkjuráðs fengu bréfið því fyrst í hendur þegar Sigrún Pálína Ingvarsdóttir afhenti þeim bréfið og kynnti þeim efni þess í júní 2009 þegar hún sat fund ráðsins. Gerð gervigras- vallar styrkt Litla-Hraun hefur fengið um sjö milljónir króna í styrk frá Knatt- spyrnusambandi Evrópu, UEFA, til þess að láta gera gervigrasvöll við fangelsið. Frá þessu er sagt í sunn- lenska fréttablaðinu Dagskránni. Völlurinn er kominn til landsins og bíður þess að verða settur upp. Bæjarráð Árborgar hefur samþykkt að gefa eftir námugjöld af sandnámi við Eyrarbakka vegna uppsetningar vallarins. Fólksfækkun á landinu Íbúum á Íslandi hefur fækkað um 1.240 á einu ári, sem nemur 0,4 prósenti samkvæmt tölum Hag- stofunnar. Enginn landshluti fór varhluta af fólksfækkuninni síð- ustu tólf mánuði fyrir utan Norð- urland eystra þar sem fjölgaði um 103. Sem fyrr eru langflestir íbúar á höfuðborgarsvæðinu, en þar búa nú 63,3 prósent íbúa- landsins. Í Reykjavík fækkaði um 553 íbúa. Ráðinn til N1 Kristján Arason, fyrrverandi lands- liðsmaður í handbolta og síðar lykilstjórnandi í Kaupþingi, hefur verið ráðinn yfirmaður söludeildar olíufélagsins N1. Kristján hefur störf í næstu viku, en síðustu misserin hefur hann unnið fyrir Capacent á Íslandi auk starfa fyrir handknatt- leiksdeild FH. Kristján er kvæntur Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fyrrverandi menntamálaráðherra, en hún hætti tímabundið á Alþingi vegna um- ræðu um risastór lán þeirra hjóna hjá Kaupþingi. „Félagar mínir plötuðu mig út í þetta fyrir kippu af bjór,“ segir Andri Berg- mann sem varð frægur á örskots- stundu þegar hann hljóp hálfnak- inn inn á bikarúrslitaleik KR og FH á laugardaginn. „Þetta var svona „split- second“-ákvörðun,“ segir þessi 22 ára gamli Grafarvogsbúi um þann tíma sem það tók hann að mana sjálfan sig upp í það að vippa sér úr fötunum og hlaupa inn á. „Maður gerir þetta bara svona „spontaneously ““. Hann seg- ist ekki vera búinn að fá bjórkippuna frá félögunum ennþá. „En það er eins gott að hún skili sér,“ segir hann. Andri starfar sem pítsubakari á Wilson’s Pizza og segist stefna á há- skólanám í framtíðinni. Í símaskránni er hann hins vegar titlaður sem lög- fræðingur. „Adrenalínkikk“ Andri hljóp inn á völlinn við mikinn fögnuð áhorfenda en hann fór inn á völlinn með tvö blys. „Annað þeirra virkaði þó ekki,“ segir Andri og tekur fram að hann styðji hvorki KR né FH. „Ég er bara áhugamaður um íslenska knattspyrnu.“ Þessi áeggjan félaganna kom til út af engu að sögn Andra en hann seg- ist hafa fengið mikið „adrenalínkikk“ þegar hann hljóp inn á völlinn. „Mað- ur náði eiginlega ekkert að innbyrða þessa tilfinningu vegna spennu.“ Hann sagðist þó hafa vonast til að vera lengur inn á vellinum. „Leikmennirnir tóku mig hins vegar bara niður þegar gæslan var að klikka,“ segir Andri sem náði að snúa af sér gæslumennina listilega áður en leikmenn KR og FH fengu nóg og tóku hann niður. Andri segist vera með nokkra marbletti eft- ir að hafa verið tekinn niður en segist ekkert hafa fundið fyrir því þegar það gerðist. Aðspurður af hverju hann fór ekki úr öllum spjörunum segist hann ekki hafa viljað særa blygðunarkennd áhorfenda. „Það hefði verið of mikið held ég.“ Látinn dúsa í fangageymslu Andri var færður til lögreglu eftir þetta atvik en hann segir lögreglumennina hafa verið mjög almennilega.. „Það var ekkert vesen. Þeir tóku mig bara og létu mig dúsa í fangageymslunni í hálftíma,“ segir Andri sem fékk fötin sín afhent af lögreglunni. Hann seg- ir viðbrögðin við uppátæki sínu hafa verið mjög jákvæð til þessa. „Ég hef ekki fengið neitt neikvætt á mig enn- þá. En það eru örugglega einhverjir sem munu gera það. Það eru þó all- margir búnir að hringja í mig og óska mér til hamingju með þetta. Það hefur fólk út í bæ komið upp að mér og sagt að þetta hafa verið eitt besta „móm- entið“ í íslenskri knattspyrnusögu.“ Hann segir fólk hafa sagt að hann gæti átt von á sekt vegna uppátæk- isins. „En ég veit ekkert um það. Við sjáum bara til.“ Mikil umræða hefur skapast vegna uppátækis Andra og hafa margir sagt hann hafa orðið sér til skammar og skemmt leikinn fyrir öðrum. Andri hefur ákveðin skilaboð til þeirra sem halda þessu fram. „Haf- ið bara gaman af lífinu og ekki vera svona þröngsýn.“ Hann segir foreldra sína segja eitthvað minna vegna þessa atviks. „Ég held að mamma sé ekkert alltof ánægð með litla strákinn sinn,“ segir Andri. Jimmy Jump í uppáhaldi Honum var að sjálfsögðu strax líkt við hinn heimsfræga ólátabelg Jimmy Jump, sem gerir út á það að hlaupa inn á ýmsa viðburði. „Ég er einn mesti aðdáandi hans náttúrulega. Ég er bú- inn að fylgjast með honum alveg síð- an hann kastaði trefli í Luís Figo,“ segir Andri og á þar við þegar Jimmy hljóp inn á úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu á milli Grikklands og Portúgals árið 2004. Þar grýtti Jimmy Barcelona-trefli í Portúgalann Luís Figo, en Figo fór frá Barcelona til erki- fjenda liðsins í Real Madrid árið 2000. Andri segist ekki geta sagt um hvort hann fækki fötum með svipuðum hætti á næstunni. Andri Bergmann fangaði augu þjóðarinnar þegar hann hljóp á nærbuxunum einum klæða inn á bikarúrslitaleik karla í knattspyrnu á laugardag. Andri birtist á öllum vefmiðlum og í sjónvarpsfréttum þar sem hann var tekinn niður af leikmönnum liðanna. Hann tók ákvörðun um að hlaupa inn á völlinn á örskotsstundu eftir að hafa verið lofað kippu af bjór. HLJÓP NAKINN INN Á FYRIR KIPPU AF BJÓR Birgir oLgeirSSon blaðamaður skrifar: birgir@dv.is Ég held að mamma sé ekk- ert alltof ánægð með litla strákinn sinn. engin feimni Andri Bergmann er hvergi banginn við að skella sér úr fötunum fyrir eina ljósmynd. mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.