Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Qupperneq 15
Farþegum Iceland express FjölgaðI
Farþegum lágfargjaldafélagsins Iceland Express fjölgaði í júlímánuði,
að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu. Samkvæmt til-
kynningunni voru farþegar í júlí í tæplega 80.000, sem er 35 prósent-
um fleiri farþegar en í fyrra. Þá kemur fram að farþegar, það sem af er
ágústmánuði, séu einnig fleiri en á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði
til flestra áfangastaða sem félagið flýgur til. Einnig kemur fram að New
York hafi verið gífurlega vinsæll áfangastaður félagsins, en til stendur
að hefja áætlunarflug til Boston og Chicago næsta sumar.
Áréttað Fyrir seinustu neytendaopnu var haft samband
við Svein Rúnar Hauksson, en hann er margfróður um berjatínslu.
Var Sveinn þá spurður út í berjatíðina í ár, og hann beðinn um ráð
varðandi góða staði til berjatínslu í kringum höfuðborgarsvæðið.
Þá var rangt haft eftir Sveini að hægt væri að finna ber frá hlíð-
um Esjunnar og alveg fram að „Mosdalshnjúkum“, en umrædd-
ir hnúkar eru ekki til. Hið rétta er „Móskarðahnúkar“, en þeir eru
austan við Esjuna. Misheyrðist þá blaðamanni nafn hnúkanna.
Sveinn er beðinn velvirðingar á mistökunum.
miðvikudagur 18. ágúst 2010 neytendur 15
Verslunin Office 1 lækkaði verð á
nokkrum vörum hjá sér á mánu-
daginn. Þetta var gert í kjölfar verð-
könnunar DV sem framkvæmd var
fyrir helgi. Þrátt fyrir verðlækkun
eru niðurstöður verðkönnunar-
innar óbreyttar. Á þeim átta vör-
um sem verð var kannað á í Office
1, lækkuðu tvær í verði. Þessar vör-
ur eru M+R-gráðubogi, og 5-Faga-
stílabók. Verð annarra vara á list-
anum hélst óbreytt. Ef reiknað er
samanlagt verð hvors innkaupa-
lista fyrir sig, sést að verðið hafði
lækkað um 419 krónur, eða úr
3.343 krónum niður í 2.924 krón-
ur. Heildarverðlistinn lækkaði um
12,5 prósent. Gráðuboginn lækk-
aði um 40 prósent í verði, en Faga-
bókin í kringum 33 prósent.
Samkvæmt nýju verðunum er
ódýrasta Fagabókin af þessu tagi
í Office 1, en hún er 100 krónum
ódýrari en í Bóksölu stúdenta, þar
sem hún var áður ódýrust. Griff-
ill selur ekki umrædda stílabók.
Einnig fæst ódýrasti gráðubog-
inn af gerðinni M+R hjá Office 1,
en áður var hann ódýrastur á 164
krónur í Bóksölu stúdenta. Ekki
fannst þessi gerð af gráðuboga í
öðrum búðum. Vörurnar sem Off-
ice 1 lækkaði í verði fást ekki hjá
Griffli, en í ljósi þess að eina varan
sem fékkst í Office 1 og Griffli hef-
ur ekki lækkað hjá hinum fyrri, er
Griffill enn ódýrastur. Samkvæmt
könnuninni voru A4 og Eymunds-
son dýrustu búðirnar, en Griff-
ill og Bóksala stúdenta ódýrastar,
en Office 1 lá á miðjunni. Vegna
hinna nýju verða eru tvær ofan-
greindu vörurnar á betri kjörum í
Office 1 en í Bóksölu stúdenta.
Í kjölfar verðkönnunar DV lækkaði
Office 1 verð á völdum vörum:
Office 1
lækkar
ver
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað
Office 1 Verslunin lækkaði
verð hjá sér á mánudaginn. ljúffengt fæði
sem bætir lífið
feitir fiskar alls ekki verri. Þeir inni-
halda mikið af jákvæðum fitusýr-
um, á borð við omega-3-fitusýr-
ur. Lax er fremur feitur fiskur, sem
inniheldur mikið af umræddum
fitusýrum. Omega-3-sýrurnar eru
mikilvægar fyrir heilastarf, ásamt
því að nokkrar rannsóknir benda
til þess að þær dragi úr líkum á rist-
il-, brjóst- og blöðruhálskrabba-
meini. Lax inniheldur einnig mik-
ið af prótíni og D-vítamíni. Laxinn
gefur þér einnig góða kólesterólið,
sem er nauðsynlegt heilbrigðu lífi,
að ógleymdri þeirri staðreynd að
hann er ljúffengur á bragðið.
Hnetur
Hnetur eru fyrst og fremst upp-
spretta hollrar fitu, sem er nauð-
synleg eðlilegum þroska húðarinn-
ar og líkamans í heild sinni. Þær eru
mjög sefandi, og draga úr öldruna-
einkennum á borð við laf andi húð
og hrukkur. Auk þessa hafa rann-
sóknir sýnt fram á að hóflegt magn
af hnetum getur dregið úr hjarta-
sjúkdómum. Sykursjúkir njóta
einnig góðs af því að borða hnetur
með annarri fæðu, því þær inni-
halda sykrur sem eru mjög lengi að
brotna niður, og þar með veita þær
langvarandi orku. Þær innihalda
einnig mikið af E- og B2-vítamín-
um, trefjum, prótíni og nokkrum
nauðsynlegum snefilefnum. Hnet-
um má bæta í fjöldann allan af rétt-
um, en gott er að mylja hnetur yfir
salat, fisk eða ýmsa eftirrétti.
simon@dv.is
Bláber eru stútfull af andoxunarefnum Og hafa fyrirbyggjandi áhrif gegn til
dæmis Parkinson og Alzheimers.