Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 24
24 sport 18. ágúst 2010 miðvikudagur
Mistækir MarkMenn
robert Green Mistök Robert Green
með enska landsliðinu á HM í Suður-Afríku eru flestum í fersku minni. Atvikið átti sér stað í
fyrsta leik liðsins á mótinu gegn Bandaríkjunum og átti eftir að setja tóninn fyrir slakt gengi
enska liðsins. Englendingar voru með sigurinn í höndum sér þegar Green fékk skot beint á
sig en náði ekki stjórn á boltanum sem lak í netið. Hann spilaði ekki meira á mótinu.
mistök eru algeng í íþróttum og óhjákvæmlegur hluti af þeim. Í
knattspyrnu er almennt ekki verið að velta sér upp úr mistökum
úti á velli en þegar markvörðurinn gerir mistök beinast allra
augu að honum. Í tilefni af sérlega klaufalegum mistökum pepe
reina í leik Liverpool og arsenal ákvað dv að rifja upp nokk-
ur ógleymanleg atvik í svipuðum dúr.
david seaman David Seaman átti
nokkur skrautleg mistök á ferli sínum. Ein eftirminnileg voru þegar hann fékk á sig
mark á síðsutu sekúndum úrslitaleik Evrópubikarsins með Arsenal. Þá skoraði leik-
maður Real Zaragoza nánast frá miðju örfáum sekúndum áður en vítaspyrnukeppni
átti að hefjast. Frægustu mistök hans voru ekki ósvipuð en þá skorað Ronaldinho
ótrúlegt mark langt utan að velli þegar England og Brasilía mættust á HM 2002. Hann
sendi boltann úr aukaspyrnu yfir Seaman sem var svo hægfara að hann kom engum
vörnum við.
Jerzy dudek
Það hefur loðað við markmenn
Liverpool í gegnum tíðina að gera
sérlega klaufaleg mistök sama
hversu góðir þeir eru. Dudek átti
sín verstu í leik gegn Manchester
United árið 2002. Þá missti hann
auðveldan bolta í gegnum klof sér
og hver annar en Diego Forlan var
mættur til þess að pota boltanum í
netið. Eitt af örfáum mörkum sem
hann skoraði fyrir United. Dudek
bætti þetta svo upp með sögulegri
frammistöðu í úrslitum Meistara-
deildarinnar 2005.
oliver kahn Þeir allra bestu gera líka mistök. Það sýndi Oliver Kahn og sannaði í
úrslitaleik Þýskalands og Brasilíu á HM 2002 þegar hann missti fremur slakt skot Rivaldo klaufalega frá sér og markahæsti maður
HM frá upphafi, Ronaldo, skoraði fyrsta mark leiksins. Skömmu áður hafði Kahn verið valinn besti markmaður heims á mótinu.
sander
westerveld
Enn einn Liverpool-markvörðurinn sem
hefur gerst sekur um herfileg mistök.
Líkt og James var það röð mistaka sem
batt enda á feril hans hjá félaginu.
Mistök hans gegn Bolton í upphafi
tímabilsins 2001/2002 kostuðu hann
svo endanlega stöðuna hjá liðinu þegar
Gerard Houlier fékk sig fullsaddann og
keypti tvo nýja markmenn til liðsins.
Þá Jerzy Dudek og Chris Kirkland. Það
var einnig frægt þegar Westerveld lenti
saman við framherjann Francis Jeffers
þegar sá síðarnefndi lék með Everton.
Fabien
barthez Þessi
litríki franski markvörður lék með
Manchester United á árunum
2000 til 2004 og átti sinn skerf af
skrautlegum mistökum. Það efað-
ist þó enginn um hæfileika hins
smávaxa Barthez en hann átti
það til að detta algjörlega í ruglið.
Eftirminnilegast er líklegast þegar
Barthez gaf landa sínum Thierry
Henry tvö mörk á silfurfati í leik
Arsenal og United í ensku úrvals-
deildinni árið 2001. Fyrra markið
kom eftir misheppnað útspark og
það síðara eftir að Barthez missti
boltann klaufalega.