Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Blaðsíða 4
4 fréttir 1. september 2010 miðvikudagur
• Hindrar blöðrumyndun
– verndar fætur
• Vatnsheldur
– vörn gegn bakteríum
• Dregur úr óþægindum
og sársauka
• Gervihúð sem andar
Compeed
plásturinn
Katrín Olga Jóhannesdóttir, mun
ekki víkja úr bankaráði Seðlabanka
Íslands, þrátt fyrir fregnir þess efn-
is að hún hafi fengið niðurfelldar
skuldir sem hún stofnaði til þegar
hún keypti hlutabréf í Exista. Lára
V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs
Seðlabankans, sagði í fréttum RÚV
í vikunni að hún ætlaði að skoða
stöðu Katrínar Olgu í bankaráðinu.
Þeirri skoðun er nú lokið og segir
Lára V. í samtali við DV að þær Katr-
ín Olga hafi átt afskaplega gagnlegar
og hreinskiptar umræður um málið.
„Hún greindi frá því hvað hefði gerst
og þetta er hluti af því sem tíðkaðist
á þessum árum. Það geta allir verið
sammála um að þetta hafi verið afar
óheppilegt, að vera leiddur á þessar
brautir. Mín niðurstaða er að þetta
eigi ekki að hafa áhrif á hæfi henn-
ar til setu í bankaráðinu núna,“ seg-
ir Lára V.
DV fjallaði um í ágúst að Katrín
Olga væri lykilstjórnandi Skipta hf.
sem Samkeppniseftirlitið beitti 400
milljóna króna stjórnvaldssekt fyrir
ólöglegt verðsamráð á farsímamark-
aði. Skipti féllust á að borga skuldina
til þess að komast hjá því að málið
yrði kært til lögreglunnar. Sekt félags-
ins hefur því verið talin augljós. Að-
spurð um hvort það fari saman að
stýra félagi sem gerist sekt um að
verðsamráð gegn almenningi og að
sitja í bankaráði Seðlabanka Íslands,
sem á að vinna fyrir almenning, vill
Lára gera sem minnst úr því. „Ég get
ekki séð að hægt sé að bendla hana
við þessi brot, það er allt of langs-
sótt,“ segir Lára sem á von ekki von
á örðu en að Katrín Olga sitji áfram.
„Hún hefur staðið sig afskaplega vel.“
valgeir@dv.is
Katrín Olga Jóhannesdóttir situr áfram í bankaráði Seðlabankans:
„Hluti af því sem tíðkaðist“
Seðlabanki Íslands Formaður
bankaráðsins treystir Katrínu Olgu
fyrir því að sitja áfram í ráðinu.
Hús Bjarna Ármannssonar í Bærum í Noregi er verðmetið á nærri þrjú hundruð millj-
ónir króna. Bankastjórinn fyrrverandi á það skuldlaust. Viðmælandi DV segir hverfið
sem Bjarni býr í vera eitt dýrasta hverfið í Ósló. Meðal nágranna Bjarna er þekkt fólk
úr norsku viðskiptalífi. Bjarni getur siglt til og frá húsinu.
Bjarni Ármannsson, fjárfestir og fyrr-
verandi bankastjóri Glitnis, á tæplega
300 milljóna króna einbýlishús við
götuna Hundsundveien í Bærum við
Óslóarfjörð. Húsið er skuldlaust og
óveðsett með öllu, samkvæmt yfirliti
frá norsku fasteignaskránni sem DV
hefur undir höndum.
Verðmæti hússins var tæplega 15
milljónir norskra króna um haustið
2008 og má reikna með að verðmæti
þess hafi síst minnkað á síðastliðnum
tveimur árum. Húsið, sem er á Snar-
oya-skaganum í einu fínasta úthverfi
Óslóarborgar, var keypt árið 2008
samkvæmt yfirlitinu. Húsið er 216 fer-
metrar að stærð.
Auðugur eftir Glitnissölu
Bjarni flutti til Noregs árið 2008 eft-
ir að hafa misst starf sitt sem forstjóri
Glitnis þegar Jón Ásgeir Jóhannes-
son og FL Group náðu yfirhönd-
inni í bankanum vorið 2007. Bjarni
seldi þá tveggja prósenta hlut sinn í
Glitni fyrir tæpa sjö milljarða króna.
Hlutabréfaverð í Glitni var þá nánast
í hæstu hæðum og seldi Bjarni hlut-
inn á 29 krónur, eða þremur krónum
yfir markaðsvirði. Hlutabréfaverð í
Glitni fór svo hæst í rúmar 30 krónur
nokkrum mánuðum síðar. Eftir það
hrundi verð hlutabréfa í bankanum.
Bankanum hnignaði mjög á ýms-
um sviðum eftir að Bjarni hætti sem
forstjóri. Meðal annars var tekið upp
bónuskerfi sem gerði það að verk-
um að starfsmennirnir fengu auka-
sporslur fyrir að lána fjármuni út
úr bankanum og útlán til hluthafa
bankans og tengdra aðila jukust
mjög.
Bjarni var því afar auðugur á þeim
tíma sem hann keypti húsið í Bærum
og gat leyft sér að kaupa sér ansi dýrt
hús. Áður en Bjarni keypti áðurnefnt
hús bjó hann í íbúð í eigu Glitnis
í Ósló. Líkt og DV greindi frá í síð-
ustu viku greiddi Glitnir nánast allan
kostnað við veru Bjarna í íbúðinni á
meðan hann var forstjóri bankans.
Bjarni er fluttur aftur heim til Ís-
lands en er enn skráður eigandi og
íbúi hússins samkvæmt norskum
gagnabönkum.
Þekktir nágrannar
Viðmælandi DV í Ósló segir að Snar-
oya sé eitt fínasta og dýrasta hverfið
í Ósló. „Þetta er í einu dýrasta hverf-
inu hérna í Ósló. Þetta er eitt helsta
milljarðamæringahverfið hér. Það er
ekkert matsatriði. Og það sem meira
er að húsið hans Bjarna stendur á
sjávarlóð en það eru bestu lóðirn-
ar á þessu svæði,“ segir viðmælandi
blaðsins en samkvæmt yfirlitinu um
húsið fylgja lóðinni réttindi til að
baða sig í sjónum og til að notast við
bátalægi til að sigla til og frá húsinu.
Viðmælandinn segir að einnig sé
áhugavert að athuga hverjir séu ná-
grannar Bjarna en þar á meðal eru
ýmsir af frægustu og ríkustu íbúum
Noregs, meðal annars auðmaður-
inn Kjell Inge Røkke, sem á og rek-
ur fyrirtækið Aker Solutions. „Røkke
er svona eins og hinn norski Jón Ás-
geir… Þarna býr aragrúi af fólki úr
viðskiptalífinu og bankageiranum,“
segir viðmælandinn.
Bjarni er því mjög langt frá því að
vera á flæðiskeri staddur og er al-
veg ljóst að hann er einn þeirra sem
græddu umtalsvert á uppgangstím-
unum á Íslandi á árunum fyrir hrun-
ið. Bjarna gekk svo vel að hann gat
reitt fram nærri 300 milljónir króna
fyrir einbýlishúsi án teljandi vand-
ræða enda var hann nýsloppinn út
úr Glitni með milljarða á milli hand-
anna í reiðufé.
Þetta er eitt helsta milljarða-
mæringahverfið hér.
inGi f. vilhJÁlmSSOn
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
BJARNI Á 300 MILLJÓNA
KRÓNA HÚS SKULDLAUST
Eitt besta hverfið Hverfið þar sem hús
Bjarna stendur er eitt fínasta og dýrasta
hverfið í Ósló. Meðal nágranna hans er
þekkt fólk úr norsku viðskiptalífi.
Jákvæður vöru-
skiptajöfnuður
Vöruskiptajöfnuðurinn var jákvæð-
ur um 4,6 milljarða króna í júlí. Á
sama tíma í fyrra voru vöruskipt-
in jákvæð um 0,4 milljarða á sama
gengi. Fyrstu sjö mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir ríflega 321 millj-
arð króna en inn fyrir tæpa 253 millj-
arða. Vöruskiptajöfnuðurinn var því
jákvæður um rúma 68,5 milljarða.
Á sama tíma árið áður voru vöru-
skiptin hagstæð um 41,3 milljarða á
sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn
var því 27,2 milljörðum króna hag-
stæðari á fyrstu sjö mánuðum ársins
en á sama tímabili í fyrra.
Kjarasamningur
samþykktur
Kjarasamningur Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna við launanefnd sveitarfé-
laga var samþykktur með naumum
meirihluta. Almenn atkvæðagreiðsla
meðal félagsmanna LSS fór fram um
samninginn og lauk henni á hádegi
á mánudag.
Samningurinn var undirritaður fyr-
ir ellefu dögum síðan og byggir á
tillögu sem ríkissáttasemjari lagði
fram þegar viðræður virtust enn og
aftur vera að sigla í strand. Fimm-
tíu og eitt prósent þeirra sem kusu
sögðu já en fjörutíu og sjö prósent
sögðu nei. Kjörsókn var um níutíu
prósent.
Meirihluti sáttur
við endalok
Rúmlega sextíu prósent Íslend-
inga voru sátt við að Spaugstofan
hefði hætt. Aðeins 17,6 prósent
voru frekar eða mjög óánægð
með það. Tilkynnt var um það
á þriðjudag að Spaugstofan yrði
tekin til sýninga á Stöð 2 næstu
tvo vetur. Ríflega áttatíu og tvö
prósent Íslendinga sögðust í
sömu könnun vera ánægð eða
mjög ánægð með Jón Gnarr,
borgarstjóra Reykjavíkur. Könn-
unin var gerð af MMR og átti að
kanna ánægju Íslendinga. Það
voru 876 einstaklingar á aldr-
inum 18 til 67 ára sem svöruðu
könnuninni.
hús Bjarna í Bærum Einbýlishús Bjarna
Ármannssonar í Bærum við Óslóarfjörðinn
er verðmetið á tæplega 300 milljónir króna.
Bjarni keypti húsið eftir að hann hætti sem
forstjóri Glitnis árið 2007 og fluttist til Noregs.