Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Blaðsíða 19
VIGNIR RAFN VALÞÓRSSON
leikari fer með eitt aðalhlutverkanna í
gamanþáttunum Hlemmavideo sem
sýndir verða á Stöð 2 í haust. Auk
Vignis leika Pétur Jóhann Sigfússon og
Ágústa Eva Erlendsdóttir í syrpunni
sem leikstýrt er af Styrmi Sigurðssyni.
LÍÐUR BEST Í
MYRKRINU
Til þess að samfélag manna geti starf-
að eins og vel smurt gangverk þurfa
þeir sem samfélagið byggja að fara
eftir reglum. Enda gera þeir það alla
daga. Þeir aka hægra megin á ak-
brautum frekar en að aka af handa-
hófi á vinstri og hægri vegarhelmingi.
Þeir aka yfir gatnamót á grænu ljósi
frekar en að taka áhættuna af því að
aka yfir þau á rauðu ljósi.
Um leið og reglurnar kunna að
virðast þvingandi létta þær fóki líf-
ið, veita öryggi og festu, jafnvel svo
mjög, að yfirleitt tekur það hátt-
bundnum hversdagsleika sem sjálf-
gefnum hlut. Í rauninni væri það
til traf ala að að þurfa sífellt að hafa í
huga reglur í smæstu atriðum. Tök-
um reglur tungumálsins sem dæmi.
Sá sem talar erlent tungumál hnökra-
laust og reiprennandi tileinkar sér í
upphafi málfræðireglur þess. Smám
saman hættir hann að þurfa að hafa
þær í huga þegar hann tekur til máls.
Hann líkt og „gleymir“ reglunum;
þær sökkva niður í undirvitund hans
og hætta að þvælast fyrir þegar tek-
ið er til máls. Einmitt þannig tala
menn tungumál með liprum hætti
og reiprennandi. Meginatriði er þó að
menn halda engu að síður áfram að
fara eftir reglum tungumálsins.
Sumar reglur eru festar í lög. Til
eru umferðarlög sem kveða á um við-
urlög við brotum gegn reglum. Marg-
vísleg lög eru til um lánaviðskipti.
Sum þeirra kveða á um viðurlög við
vanskilum eða öðrum brotum gegn
lánasamningum.
Greiðsluviljinn er verðmætur
Í djúpum samfélagsins er að finna
aldagömul gildi um að skilvísi sé
dyggð. Flestir aðhyllast slík gildi og
fylgja reglum, til dæmis um lánavið-
skipti. Menn beygja sig undir lána-
skilmála og halda áfram að vera skil-
vísir. Þeir vita af viðurlögum við
brotum, svo sem um fjárnám, gjald-
þrotaskipti eða skuldafangelsi.
Því má halda fram að einmitt þessi
gildi og lagaramminn um viðskipti
manna í nútímasamfélagi séu bæði
æðar og súrefni samfélagslíkamans.
Þá bregður svo við á eyju norð-
ur í hafi, á Íslandi, að fjármálakerfi
hennar hrynur. Kaupmáttur þverr,
gjaldmiðillinn sekkur eins og steinn
og skuldir heimila og fyrirtækja tvö-
faldast. Heimili og fyrirtæki reyna í
fyrstu að standa í skilum en smám
saman rennur upp fyrir fjöldanum að
vitlaust er gefið. Það fellur á gamlar
dyggðir og gömul gildi um skilvísi og
ábyrgð. Það rennur upp fyrir stjórn-
völdum, sem fást við að endurreisa
banka, halda sveitarfélögum á floti,
íbúðalánakerfi í horfi og knésettum
orkufyrirtækjum í almannaeigu, að
greiðsluvilji almennings er verðmæt-
asta eign fjármálakerfis á heljarþröm.
Bestu eignir bankanna eru með öðr-
um orðum greiðsluvilji almennings.
Því hvað verður um lánastofnanir
þegar fjöldinn hættir að löghelga fjár-
málakerfi heillar þjóðar? Verður laga-
tæknum sigað á hann? Lögreglu? Eins
er víst að lögreglan snúist sjálf gegn
kerfinu; innan hennar vinnur einn-
ig fólk sem á um sárt að binda vegna
duglausra stjórnmálamanna, afglapa
embættismanna og gírugra viðskipta-
mógúla sem gefinn var laus taumur-
inn og skildu þjóðina eftir á barmi
gjaldþrots.
Sannleikur og sannlíki
Þegar borgararnir rísa gegn reglu-
verki samfélagsins og hætta að veita
því lögmæti er hætta á ferðum. Það
er hætta á ferðum þegar löghlýðn-
ir borgarar vakna til vitundar um
að gráðugir hrunverjar og ábyrgðar-
lausir embættis- og stjórnmálamenn
settu hversdagslíf þeirra í uppnám.
Þetta vita stjórnvöld. Þau eru ekki
í gæfulegri stöðu til þess að útskýra
úrræði sín og hugmyndir um end-
urreisn. Fyrrverandi embættismenn
hrunverja reyna stöðugt að endur-
skilgreina veruleikann og kenna nú-
verandi ríkisstjórn um bankahrunið.
Fáir greina staðreyndirnar frá áróðr-
inum. Sannleikur verður sannlíki.
Dæmi um þetta má sækja til Banda-
ríkjanna. Þriðjungur bandarísku
þjóðarinnar telur nú að Obama for-
seti sé múslimi. Færri vita það nú en
fyrir ári að Obama er kristinn maður.
Íslenska þjóðin ætti að vita það
nú að hópur gæðinga, klíkubræðra
og gráðugra kaupsýslumanna hóf
sig yfir lögin, setti syni, frændur og
vini í dómaraembættin, stundaði að-
stöðubrask og setti jafnvel leikregl-
urnar í þágu sérhagsmuna. Dæm-
unum um þetta fækkar ekki; þeim
fjölgar.
Vonandi tekst ríkisstjórninni að
hefta sundrungu og ná vopnum sín-
um. Þörfin á því að hún beiti sér af
festu og endurheimti trú þegnanna á
þjóðfélag sitt er yfirþyrmandi.
Verðmætasta eign þjóðarinnar
1 FUNDUR MEÐ VIGDÍSI MIKIÐ ÁFALLSigrún Pálína Ingvarsdóttir segir farir
sínar ekki sléttar af fundi með Vigdísi
Finnbogadóttur.
2 FJÁRHÆTTUSPILARI GRÆDDI MILLJÓNIR Á GUNNARI
Einhver lánsamur einstaklingur
græddi rúmar þrjár milljónir króna
með því að veðja á Gunnar Nelson.
3 „FIMMTI DAGUR Í HELVÍTI“Borgarstjórinn Jón Gnarr tekst á við
nikótínleysið á sinn einstaka hátt.
4 ROWLING GEFUR TÍU MILLJÓNIR PUNDA
Höfundur Harry Potter bókanna, gaf
10 milljónir punda til góðgerðamála.
5 MYND AF HANNESI KVÖLDIÐ FYRIR MORÐIÐ VAKTI ATHYGLI
LÖGREGLU
Síðasta myndin sem náðist af
Hannesi Þór Helgasyni á lífi vakti
athygli lögreglunnar.
6 BOÐA TIL BLAÐAMANNAFUNDARSpaugstofumenn boðuðu til
blaðamannafundar til að tilkynna
um flutning sinn á Stöð 2.
7 HÆSTIRÉTTUR STAÐFESTIR GÆSLUVARÐHALD
Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald
yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni.
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN
Hver er maðurinn?
„Vignir Rafn Valþórsson, leikari úr
Kópavoginum.“
Hvað drífur þig áfram?
„Ætli það sé ekki bara það að það komi
morgundagur, hvort sem okkur líkar
betur eða verr.“
Hvar ertu uppalinn?
„Í Kópavoginum, east side.“
Afrek vikunnar?
„Að hafa náð að halda geðheilsunni
á meðan ég fylgdist með Breiðabliki í
toppbaráttunni.“
Hvar líður þér best?
„Í myrkrinu. Það er svo margt skemmti-
legt sem getur gerst í myrkri.“
Hver er uppáhaldskvikmyndin þín?
„Beautiful girls eftir Ted Demme.“
Hver er uppáhaldsleikarinn?
„Þeir sem ég horfi í augun á í það
skiptið.“
Draumahlutverk?
„Nei.“
Hvert stefnirðu?
„Ég stefni á toppinn á Pepsi deildinni.“
Átt þú þér fyrirmyndir?
„Já, manninn með sólgleraugun.“
Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú
yrðir stór?
„Ég er ekki mikið fyrir að skipuleggja
hlutina. Sem getur veri bæði gott og
slæmt.“
MAÐUR DAGSINS
KJALLARI
„Nei, ég hef ekki Stöð 2.“
SIGRÚN EINARSDÓTTIR
68 ÁRA HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
„Já, ég held það.“
JÓN LOFTSSON
18 ÁRA NEMI
„Nei.“
SÆUNN GRÖNDAL
64 ÁRA HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
„Já, líklega.“
ÞÓR JÓNATANSSON
35 ÁRA TÖLVUNARFRÆÐINGUR
„Nei, það held ég ekki.“
ÁSTA RÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
17 ÁRA KAFFIBARÞJÓNN
HELDURÐU AÐ ÞÚ MUNIR HORFA Á SPAUGSTOFUNA Á STÖÐ 2?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
MIÐVIKUDAGUR 1. september 2010 UMRÆÐA 19
„Þegar borgararnir rísa
gegn regluverki samfé-
lagsins og hætta að
veita því lögmæti er
hætta á ferðum.“
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar
Viðgerð í mastri Maður vinnur að viðgerðum í mastrinu á ísfisktogaranum Stefni ÍS 28 frá Ísafirði. MYND RÓBERT REYNISSON