Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Blaðsíða 26
Stjörnur Íslands sameinuðustu í vel auglýstu einkapartíi í Salt- félaginu um síðastliðna helgi og skemmtu sér vel. Þar mátti finna stjörnur á borð við Ásgeir Kolbeins, Völu Grand og Audda Blö. Opinn bar var í partíinu þar sem kláruðust um 400 Smir- noff-flöskur, samkvæmt heimild- um DV. Fólki gekk þó erfiðlega að losa sig við vökvann en mikill skortur var á klósettum. Aðeins tvö klósett voru á staðnum, bæði einungis fyrir konur, en síðan var komið fyrir fimm útikömr- um inni í húsinu. Gífurlegur hiti var í partíinu og miklu magni af reyk dælt inn til að mynda stemningu. Það varð þó til þess að mikil hlandfýla fór að finn- ast í hitanum. Ekki var hægt að bregða sér út fyrir til að losa þvag því öryggisgæslan var svo ströng. Annaðhvort var fólk inni eða úti. Handknattleiksmaðurinn og silf- urhetjan Logi Geirsson fjárfesti í vikunni í nýju kappaksturs- mótorhjóli. Hjólið er af gerð- inni Honda CBR 600 og er há- markshraði þess hvorki meira né minna en 222 km/klst. Logi hefur lengi verið með dellu fyrir hraðskreiðum bif- reiðum en á meðan hann var í atvinnumennsku í Þýskalandi lét hann nokkra drauma rætast í þeim efnum. Hann keypti sér meðal annars glæsilegan Ferr- ari fyrir tveimur árum. Einnig hefur hann átt flott mótorhjól og fleiri hraðskreiða bíla á borð við BMW. Logi er fluttur heim í bili og leikur með uppeldisfélagi sínu FH í N1-deildinni í vetur. FH- ingar ætla sér stóra hluti með þennan landsliðsmann innan- borðs en liðinu stýrir Kristján Arason sem er auðvitað goðsögn í Kaplakrika. Logi býr að sjálfsögðu í Hafn- arfirðinum með unnustu sinni, Ingibjörgu Elvu Vilbergsdóttur, en þau eignuðust sitt fyrsta barn á árinu. Fjölskyldan unir hag sín- um vel í Hafnarfirðinum en það- an er ekki langt á heimaslóðir Ingibjargar en hún er frá Kefla- vík. tomas@dv.is KAMRAR Í PARTÍINU LOGI GEIRSSON KEYPTI MÓTORHJÓL: Frjálsíþróttadrottningin Silja Úlfarsdóttir, sem hefur skemmt íþróttaáhugamönnum í sumar sem afleysingakona í íþrótta- fréttum Stöðvar 2, ætlaði að kveðja vinnufélaga sína á mánu- daginn. Mætti hún í vinnuna með glæsilega köku sem var eins og tvö stór brjóst í brjóstahald- ara sem var auðvitað merktur FH, hennar félagi. Seinna um daginn fór Silja síðan á fund og frétti að hún þyrfti að taka fleiri vaktir og væri því sumri hennar á Stöð 2 ekki lokið. Verður hún nú að bíða einhverja daga eða vikur eftir því að fá loks að kveðja krakkana í Skaftahlíðinni. Sam- kvæmt heimildum DV var kakan hin ljúffengasta og vonast flestir eftir því að hún mæti með aðra eins næst þegar hún kveður. KVEÐJUKAKA EN ENGIN KVEÐJA 26 FÓLKIÐ 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR JÓN ÁSGEIR: HRAÐSKREIÐUR FAÐIR Logi og Ingibjörg Hún hefur eflaust áhyggjur af Loga á hjólinu. Jón Ásgeir Jóhannesson getur valið á milli tveggja lúxusjeppa af gerðinni Range Rover og er annar svartur en hinn hvítur. Litirnir eru í miklu uppá- haldi hjá Jóni og eigin- konu hans, Ingibjörgu Pálmadóttur, en snekkja og einkaþota þeirra hjóna voru innréttaðar í þessum litum. Þá eru litirnir einn- ig áberandi á 101 Hótel. LÚXUS SVARTUR OG HVÍTUR Jón Ásgeir Jóhannesson þarf ekki að hafa áhyggjur af bílamálum þótt hann standi þessa dagana í stappi við slita-stjórn Glitnis. Hann getur nefnilega val- ið á milli þess að ferðast um í svörtum Range Rover-jeppa eða hvítum, eftir því hvernig skapi hann er í þann daginn. Samkvæmt því sem DV kemst næst eru bíl- arnir metnir á um sjö milljónir króna hvor. Sá svarti, sem er árgerð 2006, er metinn á rétt tæp- lega sjö milljónir og sá hvíti, árgerð 2007, er metinn á rúmlega sjö milljónir. Fái Jón leið á jeppunum getur hann einnig valið um að keyra um á Hummer-jeppa eða Bentley-fólksbíl. Bíl- arnir eru allir á meðal þeirra eigna sem skila- nefnd Glitnis krafðist kyrrsetningar á í sumar. Það er óhætt að segja að Range Rover-æði hafi gripið um sig á Íslandi í góðærinu en bíll- inn varð eins konar stöðutákn um velmegun. Árið 2007 seldust í kringum 350 slíkar bifreiðar hér á landi sem var meira en 100 prósent aukn- ing frá árinu áður. Það kemur ekki á óvart að Range Rover-bif- reiðarnar tvær séu í svörtu og hvítu. Litirnir virðast vera í nokkru uppáhaldi hjá Jóni og eig- inkonu hans Ingibjörgu Pálmadóttur. Snekkja þeirra hjóna af gerðinni Heesen 4400 var inn- réttuð að mestu í svörtu og hvítu. Einnig einka- þota sem var í eigu Baugs og þau hjón notuðu mikið sem og 101 Hótel sem er í eigu Ingi- bjargar. Ítarlega var fjallað um snekkj- una, flugvélina og hótelið í blaðinu Boat Inter- national á sínum tíma og birtust þar fjölmargar myndir á einum ellefu blaðsíðum. Einnig var í blaðinu viðtal við Ingibjörgu. Mál slitastjórnar Glitnis gegn Jóni er enn í fullum gangi en það er rekið fyrir dómstólum í New York og London. Jón og sex aðrir fyrrver- andi eigendur og stjórnendur Glitnis þurfa að mæta í yfirheyrslur fyrir dómnum í New York en það frestaðist um óákveðinn tíma eftir að lögð var fram frávísunarkrafa af hálfu þeirra stefndu. Dómurinn mun taka afstöðu til þess eftir 8. október hvort kröfunni verði haldið til streitu eða ekki. Svartur og hvítur Ekki amalegt að geta valið um lit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.