Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Qupperneq 12
12 fréttir 1. september 2010 miðvikudagur
Drjúgur meirihluti þingmanna vill
halda umsókn um aðild að Evrópu-
sambandinu til streitu úr því sem
komið er. Því eru engar líkur til þess
að þingsályktunartillaga þingmanna
úr fjórum flokkum um að slíta aðild-
arviðræðunum verði samþykkt þegar
hún kemur til afgreiðslu.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögn-
um, viðtölum DV við einstaka þing-
menn og mati á upplýsingum um
afstöðu þeirra er að sjá sem tillagan
um að draga til baka aðildarumsókn-
ina verði felld með 35 til 37 atkvæð-
um stjórnarliða og nokkurra stjórn-
arandstæðinga. Aðrir þingmenn
myndu greiða atkvæði með tillög-
unni eða sitja hjá.
Alþingi kemur saman á morg-
un og heldur áfram fundum 138.
löggjafarþings, en fundum þess var
frestað í vor. Fundunum verður hald-
ið áfram til 15. september og verður
þá 138. löggjafarþinginu slitið. Þing
kemur síðan aftur saman í byrjun
október og hefst þá nýtt löggjafar-
þing.
Þrýst á um atkvæðagreiðslu
Engar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar um það enn hvort og þá hvenær
þingsályktunartillaga Unnar Brár
Konráðsdóttur Sjálfstæðisflokki, Ás-
mundar Einars Daðasonar Vinstri
grænum, Gunnars Braga Sveins-
sonar Framsóknarflokki og
Birgittu Jónsdóttur Hreyf-
ingunni, verður tekin til
afgreiðslu á Alþingi.
Við blasir að Bjarni
Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokks-
ins, þarf að bera upp
tillögu á Alþingi um að
draga umsókn um aðild
að Evrópusambandinu til
baka verði tillaga Unn-
ar Brár og meðflutn-
ingsmanna
henn-
ar
ekki tekin fyrir á þinginu. Þannig
framfylgir Bjarni samþykkt lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins í lok
júní um að draga beri aðild-
arumsókn Íslands að Evr-
ópusambandinu til baka
tafarlaust. Á fundinum var
einnig samþykkt ályktun
um að Íslandi væri betur
borgið utan ESB.
Kosningar ella
Mörður Árnason, þing-
maður Samfylkingar, hef-
ur hvatt til þess að
Alþingi af-
greiði
til-
lögu Unnar Brár, Ás-
mundar Einars og með-
flutningsmanna nú á
septemberþinginu.
„Andstæðingar aðild-
arviðræðnanna [hafa]
vísað mjög til Heims-
sýnarfrumvarpsins
þessar vikur og fullyrða
að ekki sé lengur fyr-
ir hendi meirihlutinn
frægi frá 16. júlí í fyrra,
sá sem fól ríkis-
stjórn-
inni að óska eftir viðræðum
við Evrópusambandið
um aðild. Þessi meiri-
hluti á Alþingi er mikil-
vægari en ella vegna þess
að ríkisstjórnin er sem
kunnugt er ekki einhuga
um málið. Annar stjórnar-
flokkurinn vill aðild ef for-
sendur samnings eru við-
unandi, hinn alls ekki,“ segir
Mörður á vefnum.
Unnur Brá Kon-
ráðsdótt-
ir fagnar
stuðningi
Marðar
við af-
greiðslu
tillög-
unn-
ar. „Ég
hef
mar-
goft
jóhann hauKsson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
En við verðum að horfa út fyrir
landsteinana. Við höf-
um gott af því að taka
þetta ferli til enda. Mál-
ið hafnar á endanum hjá
kjósendum.
flestir vilja viðræður
Hvorki þingsályktunartillaga um að draga til baka aðildarumsókn Íslands að ESB
né sambærileg tillaga sem sjálfstæðismenn kunna að bera fram njóta meirihluta-
stuðnings á Alþingi. Jafnvel þótt fjórir þingmenn VG vilji slíta aðildarviðræðum
njóta áframhaldandi aðildarviðræður stuðnings sex til sjö þingmanna
stjórnarandstöðunnar. Alþingi kemur saman á morgun og bæði
stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar hvetja til þess að at-
kvæði verði greidd um tillöguna.
stuðningur í stjórnarandstöðu Aðminnstakostisjöstjórnarandstöðuþingmennviljaaðaðildarumsókninniverðifylgteftirtil
enda.ÞettaeruÞórSaari,MargrétTryggvadóttir,RagnheiðurRíkharðsdóttir,ÞráinnBertelsson,GuðmundurSteingrímsson,Birkir
JónJónssonogSivFriðleifsdóttir.
alþingi kemur saman Meirihlutiþing-
mannaerandvígurþvíaðdragaaðildarum-
sóknaðESBtilbaka.
atli Gíslason Hefurekkitekið
endanlegaafstöðutilmálsins.
Bjarni Benediktsson Barfram
tillöguáAlþingiumaðdragaumsókn
umaðildaðESBtilbaka.