Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Síða 13
miðvikudagur 1. september 2010 fréttir 13 sagt að hvort sem menn eru fylgj- andi aðild Íslands að ESB eða and- vígir inngöngu hljóti allir að vera sammála um að sú staða sem málið er komið í sé engum til framdráttar.“  Mörður spyr sig hvað gerast muni ef tillagan um að draga til baka aðild- arumsókn Íslands að ESB yrði sam- þykkt. „Þá er að taka því – en slík samþykkt leiddi væntanlega beint eða óbeint til nýrra alþingiskosninga – þar sem ESB-málið yrði í kastljósi. Það er líka eðlileg niðurstaða ef kjós- endur geta ekki lengur treyst þeim meirihluta sem þeir fólu síðast að fara í aðildarviðræður.“ Virðum lýðræðið Meirihlutastuðningur á Alþingi við að ljúka umsóknarferlinu um aðild að ESB byggist á því að tveir þing- menn Hreyfingarinnar, þrír þing- menn Framsóknarflokksins, einn til tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Þráinn Bertelsson, óháður þing- maður, styðji áframhaldandi aðild- arviðræður. Þetta gerir betur en að vega upp andstöðu fjögurra þingmanna VG við aðildarvið- ræðurnar. Þar með styðja 35 til 37 þingmenn áframhaldandi aðildarviðræður. Sá meiri- hluti er sem sagt ekki sóttur til stjórnarflokkanna sjálfra enda ríkir klofningur um aðildarumsóknina í röðum þingmanna VG. „Ég er á móti aðild að ESB, en við verðum að virða lýðræðislega ákvörðun um meðferð málsins,“ segir Lilja Rafn- ey Magnúsdóttir, sem ætlar ekki að styðja tillögu Ásmundar Einars og meðflutn- ingsmanna um að slíta aðildarvið- ræðunum. Þuríður Back- man VG er einnig andsnúin aðild. „En við verðum að horfa út fyr- ir landsteinana. Við höfum gott af því að taka þetta ferli til enda. Málið hafnar á endanum hjá kjósend- um.“ Atli Gíslason VG kveðst ekki vera búinn að taka endanlega afstöðu til málsins. Sama á við um Eygló Harð- ardóttur, en málið verður rætt á þing- flokksfundi Framsóknarflokksins í dag. „Þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave sýnir að kjósend- um er vel treystandi til að taka afstöðu og ráða mál til lykta,“ segir Eygló. „Þetta var vanhugsuð til- laga sem styður á endanum málstað ESB-sinna,“ segir Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður. Hann er andvíg- ur þingsályktunartillögunni um að draga til baka aðild- arumsóknina. „Ég var kjör- inn á þing til þess að sjá til þess að almennir kjósendur fengju að taka afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu og við það stend ég.“ Engin mál leyst innan VG Heimssýnarmenn, meðal annars Ás- mundur Einar Daðason þingmað- ur VG, hafa farið mikinn gegn að- ildarumsókninni og segja hana hafa breyst með lævíslegum hætti í aðlög- unarferli. Jafnvel er talað um mútur af hálfu Evrópusambandsins. Gegn meintri aðlögun hafa auk Ásmund- ar Einars risið þeir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, og Ögmundur Jónasson. Ög- mundur kom meðal annars Jóni Bjarnasyni flokksbróður sínum til varnar og sagði meðal annars á vef- síðu sinni: „Þegar það síðan ger- ist að viðræðuferlið verður að aðlögunarferli – að því er séð verður – og boðið er upp á fjárveitingar til að smyrja ferlið sem best, þá spyrnir Jón Bjarnason við fótum enda er það í hans ráðuneytum sem mestu kröfurnar eru reistar. Þetta er fullkomlega málefnalegt og eðlilegt og nokk- uð sem ríkis- stjórnin mun án efa taka til skoð- unar af fullri al- vöru.“ Pétur H. Blöndal Ólöf Nordahl Ásbjörn Óttarsson Anna M. Guðjónsd.* Sigurður K. Kristjánss.* Guðbjartur Hannesson Ögmundur Jónasson Ólafur Þór Gunnarss.* Árni Þór Sigurðsson Ólína Þorvarðard. Margrét Tryggvad. Birgitta Jónsdóttir Þórunn Sveinbjarn- ardóttir Björn Valur Gíslason Skúli Helgason Gunnar Bragi Sveinsson Ragnheiður Ríkharðsd. Óli Björn Kárason* Lilja Móses- dóttir Tryggvi Þór Herbertss. Steingrímur J. Sigfússon Svandís Svavarsd. Gylfi Magnússon Ragna Árnadóttir Kristján L. Möller Katrín Júlíusdóttir Jón Bjarnason Katrín Jak- obsdóttir Árni Páll Árnason Össur Skarphéð- insson Álfheiður Ingadóttir Jóhanna Sigurðard. Lilja Rafney M agnúsd. Si v Fr ið le ifs d. O ddný G . H arðard. Jó ní na R ós G uð m un ds - dó tt ir M agnús O rri Schram Jó n G un na rs s. Á sta R. Jóhannesd. Þr ái nn Be rt el ss on U nnur Brá Konráðsd. G uð la ug ur Þ. Þ ór ða rs . Vigdís Hauksdóttir Árni Johnsen Valgerður Bjarnad. Þór Saari Varam aður Birgir Á rm annss. H ös ku ld ur Þó rh al ls so n Birkir Jón Jónsson Ra gn he ið ur El ín Á rn ad . Sigríður I. Ingadóttir Róbert M arshall Varam aður G uðm und- ur Stein- grím sson Kristján Þór Júlíusson Á sm undur Einar D aðason Ei na r K . G uð fin ns s. Ey gl ó H ar ða rd . M ör ðu r Á rn as on Bj ar ni Be ne di kt s- so n Si gm un du r D av íð G un nl au gs s. H el gi H jö rv ar Sig ur ðu r In gi Jó ha nn sso n Atl i Gí sla son Sig mu nd ur E rni r Rú nar sso n Þu ríð ur Ba ch m an Va ra m að ur n Halda áfram 36 atkvæði n Hætta við 24 atkvæði n Ekki vitað 3 atkvæði flestir vilja viðræður AfStAÐA ÞiNGMANNA tiL ESB-ViÐrÆÐNA Formaður Heimssýnar Helsti andstæð- ingur aðildar að ESB og aðildarumsóknar er Ásmundur Einar Daðason, formaður Heimssýnar og þingmaður VG. Hitamál Aðeins þingflokkur Samfylkingarinnar er óklofinn og vill fylkja sér á bak við Össur Skarp- héðinsson utanríkisráðherra um að fylgja aðildarumsókn eftir til enda. * VARAÞINGMENN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.