Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Side 15
Frístundastyrkur til greiðslu
dvalargjalda Frístundastyrkur frá Reykjavíkurborg
er óbreyttur og er 25 þúsund krónur í haust. Benda má foreldrum
með létta pyngju á að hann má nota til þess að greiða niður dval-
argjöld á frístundaheimilum sem og ýmsar frístundir. Heimilt er að
nýta styrkinn til niðurgreiðslu fleiri en einnar greinar en þó ekki
fleiri en þriggja á hverri önn. Skilyrði er að námskeiðið standi yfir í
að minnsta kosti 10 vikur. Öll skráning og umsýsla Frístundakortsins
fer fram með rafrænum hætti á Rafræn Reykjavík.
að leigja barnabílstól Hægt er að fá barnabíl-
stóla leigða hér á landi hjá ýmsum fyrirtækjum. Herdís Storgaard hjá
Forvarnarhúsi bendir foreldrum á að ekkert eftirlit er með fyrirtækjum
sem leigja út öryggisbúnað hér á landi. Því beinir hún þeim tilmælum
til foreldra þegar barnabílstólar eru leigðir að kanna hvaða vinnureglur
gilda um búnaðinn hjá leigjandanum. Þarft er að athuga hvort búnað-
urinn sé útrunninn eða hvort hann hefur lent í árekstri. Þá er mikilvægt
að fá aðstoð við að festa hann rétt í bílinn og fá leiðbeiningar á íslensku
til að taka með heim.
miðvikudagur 1. september 2010 neytendur 15
Lækkaðu orkureikninginn
Hvernig má bæta orkusparnað heimilisins eftir verðhækkun Orkuveitunnar?
Enga þvælu! Segir Margrét
Sigfúsdóttir þegar kemur að
hagsýni á heimilinu.
Aukasparnaður
Góð ráð sEm GEta drEGið úr orkukostnaði hEimila
n Lækka innihita niður í 20°C. Sá hiti er nægur til innihitunar. Algengur hiti í
húsum hér á landi er 23-25°C, en rannsóknir sýna að 20°C
innihiti er kjörhiti, þ.e. með tilliti til loftgæða og líðanar
íbúa. Hafa ber í huga að hitakostnaður hækkar um
7% ef hiti er hækkaður um eina gráðu. Í svefn-
herbergjum má jafnvel lækka hitann allt niður
í 18°C og í geymslum og öðrum herbergj-
um, sem ekki eru notuð að staðaldri, mætti
hann jafnvel vera 15°C.
n Slökkva alveg á raftækjum svo sem
sjónvarpi eða heimilistölvu. Ekki skilja
þau eftir í biðstöðu.
n Hafa glugga lokaða nema við gagngera
loftun. Það verða betri loftskipti ef gluggar
eru opnaðir til að fríska upp á loftið og þeim
svo lokað aftur.
n Fylla ávallt þvottavél og uppþvottavél. Það
er ekki lengur merki um slaka umhirðu heim-
ilisins að safna í góða þvottahrúgu. Svo má alltaf
þvo viðkvæmari flíkur í höndunum svo þær endist
betur.
n Hafa lok á pottum og pönnum og þekja alla hell-
una. Orkunýtingin batnar um meira en helming.
n Seðilgjald kr. 251 er innheimt af hverjum sendum
greiðsluseðli. Hægt er að spara sér seðilgjaldið með því
að greiða orkureikningana með beingreiðslum banka,
boðgreiðslum kortafyrirtækja eða netgreiðslum í heima-
banka.
n Notið sparperur eða 40w perur til lýsingar. Slökkvið
ljós þegar herbergi er yfirgefið.
Notið alvörusápu á skítinn
Margrét segist verða að trúa því að ungu fólki finnist gaman að þvo þvott. Að minnsta
kosti megi ráða það í hversu óþarflega oft það setji í vélina. „Það má nota handklæði oft-
ar en einu sinni. Það er óþarfi að setja þau í þvottavél eftir að hafa notað þau einu sinni.
Við erum að þurrka hreina og sápuþvegna líkama með þeim. Svo eru þessi handklæði
sem eru í lakastærðum alger þvæla. Notið minni handklæði.“ Margrét segir fólk einnig
þurfa að velja sápu við hæfi. „Ekki nota of milda sápu á drulluskítugt tau. Notið almenni-
lega sápu. Milda sápu má nota dagsdaglega en hafið hana samt góða og vandaða með
virku þvottaefni.“
Útreikningur
suðuþvottur 90 gráður 5 sinnum í viku: 438 kr. á mánuði
Fínþvottur 40 gráður 5 sinnum í viku: 140 kr. á mánuði.
mislitur þvottur 60 gráður 5 sinnum í viku: 263 kr. á mánuði.
Standið ekki
í sturtunni
og látið ykkur
dreyma
Fimm mínútna sturta kostar um 3 krónur og bað-
ferðin kostar litlu meira. Flestir eru þó lengur í sturtu
en í fimm mínútur. „Fólk þarf ekki að vera í sturtu
svo lengi að það sé við það að leysast upp,“ segir
Margrét. „Það gengur ekki að standa undir sturtunni
og láta sig dreyma. Ef fólk langar til þess þá getur það
bara farið í heitan pott,“ leggur hún til. „Unglingar
eiga það sérstaklega til að hanga óralengi í sturtunni
og best er að skammta þeim tíma til sturtuferða!“
Útreikningur
sturta, 5 mínútur á dag: 87 kr. á mánuði
Baðkarið fyllt (150 lítrar) 1 sinni á dag: 163 kr. á mánuði.
Ljúfur
þvottur
Sumir segja lavenderolíuna ómiss-
andi. Hún er græðandi, róandi og
góð á húð og ein af þeim jurtaolí-
um sem má setja beint á flugnabit
og sár.
Heitið lavender er dregið af lat-
nesku sögninni „lavare“ sem þýðir
að þvo. Notkun olíunnar í dag teng-
ist í raun hreinsun af ýmsum toga en
fæstir vita að lavender er prýðisgott
þvottaefni og auðvitað afar umhverf-
isvænt.
olíudropar í þvottavélina
Það veit Bára Hlín Vignisdóttir útlits-
hönnuður sem notar olíuna daglega
til þvotta. Bára kaupir hreina lavend-
erolíu hjá l'Occitaine í Kringlunni og
notar um 5-10 dropa í hvern þvott. „Ef
þvotturinn er mjög skítugur þá set ég
örlítið af matarsóda á blettina,“ segir
hún. „Mér finnst gott að nota olíuna
því hún lyktar vel og er góð fyrir húð-
ina. Lyktin er róandi og efnið dugar
vel til mildra þvotta. Ég á börn sem
eru viðkvæm fyrir þvottaefni og þetta
er leið sem gagnast þeim vel.“
lítil þvottavél
Það er óþarfi að setja nærföt og
brjóstahaldara í þvottavélina. Fötin
slitna og láta á sjá. Heilræði er að
eiga góða krukku sem rúmar nokkr-
ar smáflíkur. Hana má fylla af volgu
vatni og setja út í vatnið sápuflög-
ur. Þá er bara að að hrista krukkuna
og er þá komin heimsins ljúfasta
þvottavél. Það skemmtilega við þessa
aðferð er að þegar búið er að skola
sápuna af má fylla krukkuna aftur
með vatni, setja út í ilmolíur að vild
og hrista aftur.
Þvottahnetur
Fleiri skemmtileg úrræði má not-
ast við við þvotta. Þvottahnetur eru
áhugavert fyrirbæri sem má nota í
stað þvottaefnis í þvottavélina. Þetta
eru reyndar ekki hnetur heldur ber
sem líta út eins og hnetur. Þvotta-
hneturnar innihalda mikið magn
af Saponin sem virkar eins og sápa
þegar það kemst í snertingu við vatn.
Þvottaefni unnið úr þvottahnetum
fæst í Heilsuhúsinu undir nafninu
Soapods, veldur ekki ofnæmi og er
100% náttúruleg afurð.