Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Page 24
U21 veikbUrða gegn TékkUm Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 árs landsliðs Íslands, hefur valið hópinn fyrir leikinn gegn Tékk- um í undankeppni Evrópumótsins en leikurinn fer fram 7. september. Ísland verður án fimm sterkra byrjunarliðsmanna en þeir Kolbeinn Sigþórsson, Eggert Gunnþór Jónsson og Jóhann Berg Guðmundsson eru allir í leikbanni. Þeir eru allir í hópnum hjá landsliði Íslands eins og Gylfi Þór Sigurðsson og Birkir Bjarnason sem verða því ekki heldur með U21. Tveir nýliðar eru í hópn- um hjá Eyjólfi, Vestmannaeyingurinn Þórarinn Ingi Valdimarsson og Björn Bergmann Sigurðarson, leikmaður Lilleström. STUTT STopp í garðabænUm Sóknar- maðurinn Garðar Jóhannsson er farinn aftur frá Stjörnunni en hann hefur gengið frá samningum við norska úrvalsdeildarliðið Strømsgodset. Garðar kom til Stjörnunnar um mitt sumar en hef- ur lítið látið að sér kveða. Hann var þar á undan á mála hjá þýska félaginu Hansa Rostock. Garðar þekkir vel til Noregs en hann lék með Fredrikstad í Noregi fyrir tveimur árum þegar liðið var í topp- baráttunni. Strømsgodset er að gera fína hluti í norsku deildinni, er sem stendur í fjórða sæti þegar átta leikir eru eftir af tímabilinu. moLar Mascherano býst við bekkjarsetu n „Það væri heimskulegt að koma hingað og halda að maður muni spila alla leiki,“ segir Argentínu- maðurinn Javier Mascherano sem gekk í raðir Spánarmeistara Barcelona um daginn. Hann er vel meðvitaður um samkeppn- ina í þessu um- deilanlega besta félagsliði heims. „Maður verður að virða þá leikmenn sem eru í kring- um mann því þeir eru búnir að vinna allt. Á miðjunni þar sem ég spila eru þrír heimsmeistarar. Það verður bara heiður að spila með þeim, læra af þeim og þroskast sem leikmaður við hlið þeirra,“ segir Mascherano. button afskrifar sebastian vettel n Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Jenson Button, er á því að þýska undrið Sebastian Vettel landi ekki heimsmeist- aratitlinum í ár. Button segir Vettel hafa gert of mörg mistök en ein slík urðu til þess að Vettel klessti Butt- on úr keppni í Belgíu um helgina. „Hann gerði mistök sem kostuðu mig fullt af stigum. Þetta voru dýr mistök og það var ég sem þurfti að borga fyrir þau. Ég er ekki að segja að Vettel sé hættulegur en hann hefur gert of mörg mistök til að landa heimsmeistaratitlinum,“ segir Button en sjálfur endaði Vettel langt fyrir neðan stigasæti. hleb snýr aftur til englands n Aleksandr Hleb er kominn aftur í enska boltann en hann gekk í gær í raðir úrvalsdeildar- liðsins Birm- ingham City. Hann verður á láni hjá félaginu út leiktíðina frá Barcelona en þar hefur hann meira og minna vermt tréverk- ið. Hleb var á síðustu leiktíð á láni hjá Stuttgart í Þýskalandi en það var einmitt þar sem hann sló fyrst í gegn og var keyptur þaðan til Arsenal. Hleb lék í þrjú ár með Arsenal en þar kom hann við sögu í hundrað og þrjátíu leikjum og skoraði tólf mörk. annað drauMahögg rogers federer n Besti tenniskappi sögunnar, Rog- er Federer, átti stórkostlegt högg á opna bandaríska meistaramót- inu sem hófst um helgina en það var keim- líkt drauma- högginu sem hann átti gegn Novak Djokov- ic í undanúrslit- um sama móts í fyrra. Hann elti þá boltann niður að endalínu og sló á milli fóta sér, svo vel að Djokovic náði ekki til boltans. Það högg varð á endanum til þess að hann komst í úrslitin. Um helgina atti Feder- er kappi við óþekktan Argentínu- mann sem hann lagði auðveldlega í þremur settum. 24 SporT UmSJóN: tóMAS þóR þóRðARSoN tomas@dv.is 1. september 2010 Miðvikudagur Bardagaíþróttakappinn Gunnar Nel- son fór létt með að hengja andstæð- ing sinn, Danny Mitchell, í fyrstu lotu í bardaga þeirra í Manchester um liðna helgi. Bardaginn verður sýnd- ur á Stöð 2 Sport á laugardagskvöld- ið klukkan 21. Mitchell er talinn einn af efnilegri bardagamönnum Breta en hann hafði aðeins tapað einu sinni fyrir tapið gegn Gunnari. Það er skammt stórra högga á milli hjá Gunnari því næst berst hann 25. september á BAMMA 4 sem er stór keppni. Þar mætir hann öðrum Breta, Eugene Fadiora, sem er ósigraður í níu bardögum. Á vefsíðu BAMMA segir: „Við erum hæstánægð með að Fadiora mæti gulldreng íslenskra bardaga- íþrótta, Gunnari Nelson, á BAMMA 4, en mikil eftirvæting ríkir fyrir kvöld- inu. Þetta er bardagi sem bardaga- íþróttasamfélagið hefur viljað sjá núna í langan tíma. Þetta er mikil- vægur bardagi fyrir feril þeirra beggja og er BAMMA ánægt með að geta veitt þessum bardagana þann vett- vang sem hann á skilið.“ Fadiora er 22 ára eins og Gunnar og byrjaði einnig í karate, rétt eins og Gunnar. Fadiora hefur áður mætt Danny Mitchell og tók þrjár lotur að leggja hann að velli. Eins og áður seg- ir tók það Gunnar aðeins eina lotu, nánar til tekið rétt tæpar þrjár mín- útur, að festa Mitchell í „rear naked choke“ og neyða hann til þess að gef- ast upp. tomas@dv.is Gunnar Nelson berst aftur 25. september: Mætir næst ósigruðum breta Enn ósigraður Gunnar fær flottan andstæðing næst. MyND KRiStiNN MAGNúSSoN „Mér líður illa, ég er gjörsamlega niðurbrotinn,“ skrifar stuðnings- maður Reading á spjallborð félags- ins en þar má finna gífurlega langan þráð um brotthvarf Gylfa Sigurðs- sonar, íslenska landsliðsmanns- ins sem genginn er í raðir þýska úrvalsdeildarliðsins Hoffenheim. Gylfi sló í gegn með Reading í fyrra, var markahæsti leikmaður liðsins í næstefstu deild á Englandi og var kosinn besti leikmaður Reading eftir tímabilið. Þráður var settur á spjallborð Reading þegar fyrst fór að fréttast af brotthvarfi Gylfa og spannar hann nú tæplega 60 síð- ur eða tæplega 1.200 svör. Margir eru mjög reiðir yfir því að Gylfi skuli hafa verið seldur fyrir sex milljón- ir punda og sumum hverjum finnst þetta upphafið að endanum hjá fé- laginu. Íslenskur stuðningsmaður Reading sem býr í London tekur þó ekki jafndjúpt í árinni. Beðið til guðs Fyrst á þræðinum um mögulegt brotthvarf Gylfa er eitt svarið af- skaplega hreinskilið: „Góður Guð, láttu þetta ekki vera satt.“ Gylfi vann hug og hjarta stuðningsmanna Reading í fyrra en hann hefur ver- ið hjá félaginu síðan hann var að- eins fimmtán ára. Hann er einn af sárafáum ungum íslenskum leik- mönnum sem hafa farið svo ungir út, unnið sig í gegnum unglingaliðin og varaliðið, alla leið upp í aðalliðið og blómstrað þar. „Fari Gylfi finnst mér að við ætt- um að mótmæla eignarhaldinu á næsta heimaleik,“ skrifar einn stuðningsmaðurinn en eins og Eng- lendingum sæmir þegar rætt er um fótbolta eru mörg svörin á þræð- inum ansi hástemmd. Einn stuðn- ingsmaðurinn svarar með mynd af Gylfa haldandi á Hoffenheim-treyj- unni og skrifar þá annar: „Þetta er eins og að sjá kærustuna sína með nýjum manni. Skelfilegt.“ Nokkrir taka fréttunum þó með stóískri ró og sætta sig við söluna, hún er jú þegar á botninn er hvolft aðeins brot af þeim ógnarmörg- um kaupum sem gerð eru á hverju sumri. „Hoffenheim er á toppi þýsku úrvalsdeildinnar, Gylfi fær raunverulegan möguleik á að spila í Meistaradeildinni, liðið er í eign milljarðamærings og hann fær góð laun. Að halda því fram að hann eða nokkur annar maður myndi hafna þessu er fásinna. Sjáumst, Gylfi, komdu þér á toppinn og gerðu okk- ur öll stolt,“ skrifar einn og þakkar Gylfa kærlega fyrir árin hjá Reading. Eignarhaldið umdeilt „Fari Gylfi sannar það fyrir mér að John Madjeski (eigandi liðsins) í SárUm Stuðningsmenn Reading Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson samdi á þriðjudaginn við þýska úrvalsdeildar- liðið Hoffenheim til fjögurra ára. Stuðningsmenn reading sakna eðlilega síns besta leikmanns en gylfi var markahæsti leikmaður liðsins á síð- asta tímabili þar sem hann sló í gegn. Ekki eru allir á eitt sáttir við söluna. HoRFiNN á BRAut Gylfi var magnaður með Reading og mun nú leika listir sínar með Hoffen- heim í Þýskalandi. tóMAS þóR þóRðARSoN blaðamaður skrifar: tomas@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.