Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Side 12
Helgi Gunnlaugsson afbrotafræð- ingur segir morðmálið í Hafnarfirði vera óvenjulegt því að morðið hafi verið fremur yfirvegað af hálfu árás- armannsins. „Það hefur ekkert ann- að væntanlega vakið fyrir honum en það að ráða hann af dögum. Að koma þarna um miðja nótt að honum sof- andi með hníf í hendi,“ segir Helgi og bætir við að flest manndrápsmál á Íslandi hafi hingað til einkennst af því að þau séu framin í augnablik- sæði. „Þar sem gerandinn situr uppi með þennan harmleik. Það er miklu meira einkenni manndrápsmála hér á landi,“ segir hann. „Það er óvenjulegt hversu kald- rifjað þetta er. Ásetningurinn virð- ist vera þarna til staðar. Þetta virðist hafa verið fremur yfirvegað og plan- að með einhverjum fyrirvara,“ segir Helgi. Hann segir flest morðmál hér á landi hafa verið upplýst fremur fljótt en það sem gerði lögreglumönnum eflaust erfitt fyrir við rannsóknina var að í þessu máli var ráðgáta sem þurfti að leysa. „Það er óvenjulegt að það tók þrjár vikur að leysa þetta. Yfirleitt er það gerandinn sjálfur sem tilkynn- ir verknaðinn. Í flestum manndráps- málum á Íslandi er engin ráðgáta en sannarlega í þessu máli var ráðgáta með reyfarakenndum blæ,“ segir Helgi. Hann hrósar lögreglu fyrir vel unnin störf en á fjórða tug manna tóku þátt í að greina úr upplýsingum við rannsókninni og segir hann lög- reglu geta verið stolta af starfi sínu í þessu máli. birgir@dv.is Reykjavík Kópavogur Garðabær Álftanes Keflavík 12 fréttir 6. september 2010 mánudagur Vogar leiðir gunnars og hannesar Hafnarfjörður mynd GooGle eaRth St Ra n d G at a 5 Snemma á sunnudags-morgun ók Gunnar Rúnar Matthildi að heimili hans í Klapparholti 6 í Hafnarfirði. Gunnar segist hafa borið hana inn til sín. 6 Einhvern tímann á bilinu frá fimm til klukkan tíu um morguninn fór Gunnar Rúnar aftur af heimili sínu í Klappar- holti 6 í Hafnarfirði. Þaðan ók hann um 4 kílómetra leið eftir Strandgötunni og Lækjargötu í Hafnarfirði, heim til Hannesar að Háabergi 23. Þar fór hann inn um ólæstar dyr og réðst á Hannes þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu. Morðið var hrottafengið og stakk Gunnar Rúnar Hannes margsinnis með hníf sem er talinn hafa verið 15–20 sentimetra langur. 7 Eftir að hafa myrt Hannes ók Gunnar Rúnar til baka. Á leiðinni heim stopp- aði hann við smábátahöfnina í Hafnarfirði þar sem hann kastaði hann hnífnum og, að því er talið er, öðrum sönnunargögnum tengdum morðinu í sjóinn við höfnina. 8 Gunnar kom aftur á heimili sitt í Klapparholti eftir að hafa losað sig við sönnunar- gögn. 9 Matthildur vaknaði á heimili Gunnars Rúnars um klukkan 11 á sunnudagsmorg- un. Klukkan 11.10 keyrði Gunn- ar Rúnar Matthildi að heimili Hannesar Þórs í Háabergi 23. 10 Um klukkan 11.20 kom Matthildur að líki Hannesar á heimili hans. 4 Matthildur kom í miðbæinn um klukkan þrjú aðfaranótt sunnudags. Matthildur hitti Gunnar Rúnar og fleiri vini í miðbænum skömmu síðar. Matthildur fór á Hressingarskálann og Café Amsterdam. Matthildur segist hafa misst minnið um klukkan 03.30 aðfaranótt sunnudagsins. 3 Um klukkan tvö um nóttina keyrði Hannes Þór unnustu sína frá Vogum á Vatnsleysuströnd í miðbæ Reykjavíkur. Þá hafði hún að eigin sögn drukkið tvo drykki. 1 Hannes Þór kom á föstu- dagskvöldið heim til landsins frá Litháen, þar sem hann rak veitingahús KFC. 2 Hannes Þór keyrði til Voga á Vatnsleysuströnd að kvöldi laug- ardags, þar sem Fjölskyldudagurinn í Vogum fór fram. Matthildur var á heimili móður sinnar og síðar um kvöldið fóru þau á tónleika í bænum. Gunnar hannes atburðarásin endaði með morði d V G R a FÍ K J Ó n In G I Rannsóknin tók langan tíma vegna óvenjulegrar ráðgátu: „Ráðgáta með reyfara- kenndum blæ“ Þegar Hannes Þór Helgason sótti Guðlaugu Matthildi Rögnvalds- dóttur, unnustu sína, á fjölskyldu- hátíð í Vogum á Vatnsleysuströnd laugardagskvöldið 14. ágúst upp- hófst atburðarás sem lauk snemma morguninn eftir þegar Gunnar Rúnar Sigurþórsson myrti Hannes með köldu blóði á heimili hans. Um klukkan tvö aðfaranótt sunnudags- ins 15. ágúst keyrði Hannes unn- ustu sína í miðbæinn, þar sem hún ætlaði að skemmta sér. Hún kom í miðbæinn klukkan þrjú um nóttina og að eigin sögn hitti hún Gunnar Rúnar og fleiri vini skömmu síðar. Þau fóru á pöbbarölt, meðal ann- ars á Hressingarskálann og Café Amster dam. Atburðarásin næstu klukku- stundirnar þar á eftir er nokkuð óskýr, en svo virðist sem Gunnar Rúnar hafi ekið Guðlaugu Matt- hildi heim úr miðbænum snemma morguns. Ekki liggur fyrir hvenær Gunnar Rúnar fór að heimli Hann- esar en það var einhvern tíma á milli klukkan 5 og 10 á sunnudags- morguninn. Guðlaug Matthildur var sofandi á heimili Gunnars Rún- ars á meðan. Skömmu eftir að hún vaknaði klukkan 11 um morguninn keyrði Gunnar Rúnar hana heim til Hannesar. Þar kom hún að unnusta sínum látnum. valgeir@dv.is hafnarfjörður „Tilfinningin var mjög góð, að fá svar við þessu, og góð fyrir þjóðina líka myndi ég halda,“ segir Helgi Vilhjálmsson, oftast kenndur við Góu, spurður hvernig honum hafi liðið þegar hann heyrði af játningu Gunn- ars Rúnars Sigurþórssonar. Lögreglan greindi frá því á laugardag að játning Gunnars Rúnars lægi fyrir. „Þetta náttúrulega er mjög slæmt mál, að þetta skuli vera til í svona litlu bæjarfélagi,“ segir Helgi. Hann segist ekki hafa átt von á þessari niðurstöðu. „Það er búið að yfirheyra svo marga. Maður hefur bara fylgst með þessu hjá þessum ágætis mönnum sem rannsaka þetta mál. Ég vil bara óska þeim til hamingju með það hvað þetta hefur geng- ið vel. Það hlýtur að vera mjög gott fyrir alla. Þetta er búið að vera mjög erfitt.“ birgir@dv.is helGI VIlhJÁlmSSon, FaðIR hanneSaR: „Búið að vera mjög erfitt“ mikill léttir Helgi Vilhjálmsson segir tilfinninguna mjög góða, að vita til þess að málinu sé nánast lokið. mynd FRéttablaðIð Óvenjulegt mál Helgi Gunnlaugsson segir málið óvenjulegt að því leytinu til að rannsókn þess hafi staðið yfir lengi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.