Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Side 17
mánudagur 6. september 2010 erlent 17
Á undanförnum þremur árum
hefur níu fótum skolað á land við
strendur í Washingtonfylki. Málið
þykir hið dularfyllsta og veit enginn
hvað fæturnir koma eða af hverju
þeir finnast þarna.
Búið er að útiloka hvers konar
stórslys á sjó eða í lofti þar sem sér-
fræðingar telja að þeir hefðu get-
að tengt fæturna við líkamsleifar
sem hafa fundist. Þeir útloka ekki
að fæturnir gætu tilheyrt fólki sem
hefur ætlað sér að komast ólöglega
inn í landið sjóleiðina og farist á
leiðinni. Jafnvel gæti raðmorðingi
verið að verki. Eins gætu fæturn-
ir allt eins tilheyrt fólki sem hefur
svipt sig lífi með því að ganga í sjó-
inn eða hoppa fram af brúm.
Fyrsta fótinn rak á land 20. ág-
úst 1997 á Jedediah-eyju við Kan-
ada og var það hægri fótur af karl-
manni. Hann var klæddur í hvítan
og ljósbláan hlaupaskó númer 46.
Sex dögum síðar rak annan fót á
land á strönd þar skammt frá og
var það einnig hægri fótur, íklædd-
ur hvítum Rebook-strigaskó númer
46. Í febrúar 2008 gerðist það aft-
ur að fót rak á land, í þetta skiptið
í Nike-strigaskó af stærð 45. Svo má
lengi telja og eru fæturnir nú sam-
tals níu og eiga það allir sameigin-
legt að vera klæddir í strigaskó. Það
hefur verið hægt að bera kennsl á
eigendur þriggja af þeim níu fótum
sem fundist hafa. Einn þeirra var
frá Indlandi og er talinn hafa fram-
ið sjálfsmorð. Lögreglan hefur ekki
gefið upp hverjir hinir eru, en vit-
að er að eitt fórnarlambið var kona
og telur lögreglan að dauða henn-
ar hafi borið að með voveiflegum
hætti.
Engar aðrar líkamsleifar hafa
fundist og talið er að fæturn-
ir geymist svo vel og leysist ekki
upp í sjónum vegna strigaskónna
sem þeir eru iðulega klæddir í. En
strigaskórnir eru loftheldir og léttir
og halda vel að fótunum.
hanna@dv.is
TVÆR KONUR
2 JÁKVÆÐARNÝJUNGAR
Sykurveiðarinn Suco Bloc. 180 töflur.
Hentar öllum, stöðvar sykurinn
áður en hann verður að fitu.
STÖÐVIÐ SYKUR
OG KOLVETNI
NÝJUNG! BRENNIÐ FITU
30 Days
120 töflur ásamt
samnefndu
kremi vinnur á
appelsínuhúð.
30 Days (120 töflur)ásamt OxyTarm
(60 eða 150)töflur gegn kviðfitu
gefur 35% meiri virkni.
Valin
heils
uvara
ársin
s
2008
&
B e t r i a p ó t e k i n o g M a ð u r l i f a n d i w w w . s o l o g h e i l s a . i s
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað
Kafbátur rambar á
gullfarm Keisarans
þær að snúa aftur heim án eftirmála.
En afgangur gullforðans hefur aldrei
fundist en menn grunaði að hann
lægi einhvers staðar á hinum gríðar-
legu stóru landsvæðum Síberíu.
Sagan segir að hvítliðar hafi reynt
að fara yfir Baikalvatn með lestar-
vagnana um hávetur þegar vatnið var
frosið. Vagnarnir hafi hins vegar ver-
ið of þungir og ísinn brotnað undan
álaginu. Gullið hafi því sokkið niður í
hyldýpin.
Umdeilt
Fundurinn í síðustu viku þykir því, í
ljósi sögunnar, ótrúlega merkilegur. Í
fyrra fann annar Mir-smákafbáturinn
ýmsar leifar járnbrauta og hernaðar-
gagna á botni stöðuvatnsins. Sum-
ir sagnfræðingar hafa þó dregið í efa
að um gull keisarans sé að ræða. Mun
líklegra sé að gullið hafi aldrei sokkið
niður í neitt vatn, heldur hafi hvítlið-
ar náð að smygla því úr landi og lagt
inn á bankareikninga í Bretlandi og
Japan. Aðrir segja að Tékkóslóvakarn-
ir hafi tekið það með sér heim sem
skýri óútskýrðan og óvæntan efna-
hagsuppgang landsins á þriðja ára-
tugnum.
„Á þessu stigi málsins er ekki auð-
velt að segja hvort þetta sé gullið hans
Kolchaks,“ segir Tsyrenov í viðtali við
þýska stórblaðið Spiegel. „Því mið-
ur náðum við ekki að taka með okk-
ur gullstangir upp á yfirborðið,“ seg-
ir Roman Afonin, samstarfsmaður
hans, en gullstangirnar voru pikkfast-
ar í botnleðjunni.
Bair Tsyrenov og félagar hans
munu halda áfram að kafa eftir gull-
inu og reyna að finna svör við ráðgát-
unni um gull síðasta keisarans. Og
Rússar fylgjast spenntir með fram-
vindunni.
Gullið, sem var 650 millj-óna rúblna virði, fyllti fimm
þúsund kassa. Hvítliðar þurftu 40
lestarvagna til að flytja gullið.
Strigaskórinn Þessum
strigaskó skolaði á land.
Fótum skolar á land í Washingtonfylki í Bandaríkjunum:
Fætur finnast í fjöru