Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Side 18
GUTTI KOMINN HEIM n Eins og drepið hefur verið á í sand- korni er Guðbjartur Hannesson, nýskipaður ráðherra, í miklum met- um hjá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem kallar hann jafnan Gutta. Í innsta hring er nú talað um hann sem erfðaprins Jóhönnu. Ekki eru þó allir sáttir við það. Össur Skarphéðinsson hefur fram að þessu staðið næstur Jóhönnu og fengið að ráða því sem hann vill. Nú sækir Gutti að honum á heima- velli. LANDSBYGGÐARVÆNN n Eftir miklar fæðingarhríðir hefur Kristján Már Unnarsson verið ráð- inn fréttastjóri Stöðvar 2 en þó sem undirmaður Freys Einarsson- ar. Staðan hefur verið opin frá því Óskar Hrafn Þorvaldsson var hrakinn burt. Kristján Már er þekktur fyrir tempraðar, glað- værar fréttir. Hann hefur verið sér- staklega landsbyggðarvænn. Það má því búast við að hið harða yfirbragð frétta sem verið hefur víki fyrir mýkri fréttum. Og víst er að höfuðborgin verður ekki í forgrunni hjá fréttastof- unni. DAVÍÐ Í BYGGINGAKRANA! n Eftirlaunaþeginn Jón Baldvin Hannibalsson fór á kostum í Silfri Egils þegar hann gerði úttekt á hinni pólitísku stöðu með hálflamaða ríkisstjórn við völd. Benti Jón Baldvin á það að Sjálfstæðisflokk- urinn væri síður en svo tilbúinn að taka við stjórn- artaumum. Sá flokkur bæri stærsta ábyrgð á hrun- inu en iðraðist einskis. Jón Baldvin sagði augljóst að Davíð Oddsson bæri þar mesta ábyrgð þótt hann væri algjörlega blindur á bresti sína og af- glöp. Þannig hefði þurft að fjarlægja skúrkinn úr rústum efnahagslífsins með byggingakrana. PRESTAR SVITNA n Margir prestar þjóðkirkjunnar eru slegnir óhug vegna þeirrar öldu úr- sagna sem nú gengur yfir syndum hlaðna stofnun þeirra. Misjafnt er hvernig prestar bregðast við. Séra Magnús Erlings- son, sóknarprest- ur á Ísafirði, bað sóknarbörn um að fara ekki vegna þess að þá myndi Mammon snúa baki við kirkjunni. Séra Örn Bárður Jónsson, prestur í Neskirkju, velti því aftur á móti upp hvernig hann gæti sagt sig úr fjöl- miðlunum sem beinlínis hefðu hvatt fólk til að segja sig úr þjóðkirkjunni. Svarthöfði las sér til mikillar ánægju á sunnudag að hin ár-lega gleðihátíð Reykjanesbæj-ar, Ljósanótt, gekk afbragðs- vel í bænum. Hátíðin gekk svo vel, stemningin var svo góð og svo margir sóttu hátíðina að Reykjanesbær sá tilefni til að senda frá sér sérstaka tilkynningu með þessum tíðindum um velgengni Ljósanætur. „Dagskrá Ljósanætur fór vel fram og tugþús- undir bæjarbúa og gesta skemmtu sér vel þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi hamast á hátíðarsvæðinu með roki og rigningu,“ sagði í tilkynningunni. Þessar merkilegu frétt-ir úr Reykjanesbæ um að skemmtihátíð þeirra hafi verið fjölsótt koma í kjölfar- ið á fréttaviku þar sem fjallað hefur verið mikið um bága efnahagsstöðu bæjarins. Reykjanesbær sá ekki mikið tilefni til að blanda sér í þá umræðu enda lítið jákvætt um hana að segja. Þess í stað hefur bærinn setið af sér orrahríðina um gjaldfall- in lán, yfirvofandi gjaldþrot og lóða- og fasteignaviðskipti sem standast ekki mikla skoðun. Ljósanótt er því eins og ljósið í myr- krinu fyrir stjórnendur Reykjanesbæjar – mitt í svartnættinu geta þeir bent á að hátíðin þeirra, sem hófst með því að börn í bænum slepptu 2.000 blöðrum lausum, hafi þrátt fyrir allt verið fram- úrskarandi. Reyndar virðist bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Árni Sigfús-son, vera mjög svo meðvit-aður um gildi Ljósanætur og því þarf kannski ekki að koma á óvart hversu mjög yfirvöldum þar í bæ virðist vera í mun að umheimurinn viti að hátíðin hafi gengið vel. Þannig reyndi bæjarstjórinn að skýla sér á bak við Ljósanótt þegar blaðamaður Kastljóssins í Ríkissjónvarpinu gekk á hann vegna erfiðrar skuldastöðu bæj- arins. Viðkvæði bæjarstjórans þá var einmitt að halda því til haga að Ljós- anótt væri haldin með miklum sóma á hverju ári. Bæjaryfirvöld í Reykja- nesbæ senda 2.000 blöðrur upp í loftið og halda gleðilega Ljósanótt á meðan bæjarfélagið brennur vegna skuldsetningar sinnar og óstjórnar. Árni er álíka meðvitaður og Marie Antoinette Frakklandsdrottning sem hélt að franski lýðurinn gæti bara étið kökur fyrst brauð var ekki til. Í stað- inn fyrir kökur býður Árni bara upp á Ljósanótt. Í kjölfar þessara hugrenninga sinna varð Svarthöfða hugsað til söngvaskáldsins Megasar og brags hans um Ísland og valkost- ina í pólitíkinni sem saminn var fyrir að verða fjörutíu árum. „Skálum í vodka og veðjum á bláan. Þú vinnur hrærivél þegar það sekkur skerið.“ Enn eiga þessi orð við því þrátt fyrir allt er það nefnilega einna merkileg- ast að íbúar Reykjanesbæjar kjósi Árna og félaga hans ennþá yfir sig, með Ljósanótt eða án, því þegar lit- ið er á stöðu bæjarfélagsins er ljóst að þeir hafa langt í frá staðið sig vel. Bæjarbúar geta þó hugsað sér gott til glóðarinnar næstu árin að því leyti að þó að bærinn sökkvi hægt niður í skuldafenið munu þeir alltaf fá að upplifa Ljósanóttina sína, músíkina, blöðrurnar og flugeldana, á meðan Árni er við völd. HRÆRIVÉLAR HUGANS „Nei, en ég er brenn í skinninu eftir því að nýtt leikár hefjist.“ segir ARI MATTHÍASSON, framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins, en brunakerfið fór í gang á sextíu ára afmæli Þjóðleikhússins á sunnudag. Reyndist það vera bilun í skynjara sem olli því að kerfið fór í gang. FÓRSTU Í KERFI? „Það yrði samt mitt síðasta verk að særa nokk- urn mann.“ n Kristján Jóhannsson segist stundum misskilinn en tekur fyrir að hann sé hrokafullur. - DV „Samband ríkis og kirkju er ekki heilagt fyrir mér.“ n Séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, segir sambandið ekki heilagt. - DV.is „Við vorum drullulélegar þegar við spiluðum síðast í þessum búningi. Hann er ekkert agalega fallegur en það skiptir ekki máli fyrst við tókum titilinn í honum.“ n Hallbera Guðný Gísladóttir, leikmaður kvennaliðs Vals, var ekki sátt við að vinna Íslandsmeistaratitilinn í gráu varabúningum Valsliðsins. - mbl.is „Það verður partí í kvöld.“ n Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari 2. deildar liðs BÍ/Bolungarvíkur, var heldur betur sáttur eftir að „skástrikið“ skaut sér upp í 1. deildina. - Fotbolti.net „Hann er strang- heiðarlegur og ekki í neinu liði.“ n Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason, er ánægður með ráðningu Kristjáns Más Unnarssonar sem fréttastjóra Stöðvar 2. - pressan.is Stríðið gegn sannleikanum Umræðan á Íslandi leiðist oft út í að vernda misgjörðarmenn á kostnað fórnarlamba og ráðast gegn þeim sem segja sannleikann. Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem fór þá leið að segja sögu sína af misgjörðum Ól- afs Skúlasonar biskups, var flæmd úr landi á síðasta áratug. Fáir hefðu trúað því upp á Íslendinga að þeir myndu fóstra kynferð- isbrotamanninn en ráðast gegn fórnar- lömbunum, en þannig gerðist það samt. Valdastéttirnar stóðu með gerandanum og almenningur horfði upp á árásirnar gegn fórnarlömbunum. Þannig greindi Ólafur Skúlason frá því í endurminningum sínum hvernig þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson, stóð við bakið á honum bak við tjöldin. Samfélagið fóstrar bæði kynferð- isbrotamanninn og valdastéttirnar sem vernda hann. Þeir sem trúa því að samfélagið hafi breyst og að árásir gegn fórnarlömbum til- heyri síðasta áratug þurfa aðeins að hugsa fimm ár aftur í tímann. Þá skrifuðu 10 pró- sent þjóðarinnar upp á mótmæli gegn þá- verandi ritstjórnarstefnu DV, vegna þess að greint var frá nafni manns sem nokkrir drengir sökuðu um að brjóta á sér kynferð- islega þegar hann starfaði sem kennari. Hann var vel liðinn og vinsæll í samfélag- inu og þegar hann svipti sig lífi í miðri lög- reglurannsókn komu margir heldri borg- arar honum til stuðnings opinberlega. Fáir, ef nokkrir, studdu drengina opinberlega. Í nýlegu morðmáli í Hafnarfirði stigu margir fram og gagnrýndu fjölmiðla harka lega fyrir að segja sannleikann um það hver var handtekinn, grunaður um morðið. Í því tilfelli var í raun ekki valkost- ur um að halda nafni hans leyndu, þar sem hann hafði sjónvarpað ástarjátningu sinni á einni mest sóttu vefsíðu heims. Lögmað- ur mannsins, Guðrún Sesselja Arnardóttir, gekk samt svo langt að hóta fjölmiðlum lög- sókn fyrir að segja sannleikann um að lög- reglan hefði handtekið hann. Allt er þetta hluti af íslenskri áherslu á ímyndir umfram sannleika. Biskup á ekki að geta verið maður eins og Ólafur Skúla- son reyndist vera bak við tjöldin. Og vin- sælasti kennarinn í bænum á ekki að geta misnotað drengi. Í góðærinu náði áherslan á ímynd umfram sannleika nýjum hæðum, allt þar til uppblásin og innantóm ímynd- in hrundi yfir þjóðina. Það kom í ljós að mennirnir í efstu lögum samfélagsins, sem allir vörðu með ráðum og dáð fyrir sann- leikanum, voru versti óvinur þjóðarinnar. Á tímum uppblásinnar viðskiptavildar og markaðsmisnotkunar er sannleikur- inn mínus í bókhaldinu. Hann var álitinn versti óvinur þjóðarinnar. Sannleikur- inn var lokaður af eins og morðingi, án dóms og laga. Og boðberar hans voru álitn- ir samsekir um samsæri gegn hagsmun- um þjóðarinnar. Það skorti ekki á að hann skyti upp kollinum hér og þar. Hann var bara skotinn niður í hvert sinn í skipulegri þöggun. En hefði samfélagið horfst í augu við hann frá upphafi, hefði hann orðið þess mesti styrkur. Það er góð almenn regla að fela ekki sannleikann um mál sem varða fólk og að sýna fórnarlömbum meiri nærgætni en meintum morðingjum og nauðgurum. Ef það mistekst gæti næsta takmark verið að hemja sig við að skjóta sendiboðann og sleppa því að ráðast á fórnarlambið. JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRI SKRIFAR. Sannleikurinn var lokaður af eins og morðingi, án dóms og laga. SANDKORN TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bogi Örn Emilsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is UMSJÓN HELGARBLAÐS: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is UMSJÓN INNBLAÐS: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. LEIÐARI SPURNINGIN SVARTHÖFÐI BÓKSTAFLEGA 18 UMRÆÐA 6. september 2010 MÁNUDAGUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.