Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Blaðsíða 25
Pennant ánægður með eið Jermaine Penn-
ant, fyrrverandi kantmaður Liverpool sem Stoke fékk til sín á loka-
degi félagaskiptagluggans á sama tíma og Eið Smára, fer fögrum
orðum um Eið. „Ef maður lítur á úrvalið í sókninni eru ekki margir
þarna úti betri en Eiður og Kenwyne Jones. Við erum einnig með
Matthew Etherington og mig sjálfan á köntunum,“ segir Pennant og
bætir við: „Við höfum hraðann og getuna. Liðið lítur vel út og þetta
er líklega sterkasta lið Stoke síðan það kom í úrvalsdeildina.“ Eiður
verður í leikmannahópi Stoke sem mætir Aston Villa um næstu helgi.
SörenSen SPilar meiddur Hinn mar-
greyndi danski landsliðsmarkvörður Thomas Sörensen ætlar að
spila leikinn gegn Íslandi á Parken á þriðjudagskvöldið þrátt fyrir
þrálát meiðsli í olnboga sem hafa hrjáð hann undanfarinn mánuð.
„Ég hef fengið verkjastillandi sprautur fyrir tvo síðustu leiki en
samt finn ég til þegar ég lendi á olnboganum. Þannig er þetta
bara en það er sársauki sem ég get leitt hjá mér,“ segir Sören-
sen sem spilar með Stoke og er því nýorðinn samherji Eiðs Smára
Guðjohnsen. Sörensen er orðinn 34 ára.
mOlar
Roma gefst ekki
upp á BehRami
n Forseti ítalska knattspyrnuliðs-
ins Roma, Rosella Sensi, hefur ekki
gefist upp á svissneska miðjumann-
inum Valon
Behmrami sem
leikur með West
Ham á Englandi.
Roma var með
Svisslendinginn
í sigtinu í sumar
en tókst ekki að
landa honum
þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir. „Við vildum fá hann
en því miður gengu samningar ekki
upp. Við þurftum að halda okkur
innan skynsamlegra marka. Ég veit
ekki hvort við náum honum á end-
anum en það má aldrei segja aldrei,“
segir Sensi sem gerði þó ágætlega á
markaðnum í sumar.
Vill VeRja england
n Miðvörðurinn hávaxni í liði Bolt-
on, Gary Cahill, er ákveðinn í að
festa sig sem einn af byrjunarliðs-
mönnum í varn-
arlínu enska
landsliðsins. Ca-
hill gæti vel byrj-
að sinn fyrsta leik
fyrir landsliðið
á þriðjudaginn
þar sem Totten-
ham-maðurinn
Michael Dawson
meiddist og getur ekki verið með.
„Frá því ég var ungur strákur hefur
mig langað til þess að spila fyrir Eng-
land, þannig að af hverju ætti ekki að
nota mig gegn Sviss? Ég er algjörlega
tilbúinn í slaginn. Ég held að það sé
kominn tími á nýja varnarlínu hjá
enska landsliðinu,“ segir Cahill.
ÓsáttuR Við
dÓmaRann
n Skotar fögnuðu mikið þegar Craig
Levine var ráðinn stjóri liðsins fyrr í
ár. Vonast þeir til að hann verði fyrsti
maðurinn til að
koma Skotum
á stórmót í tólf
ár. Það byrjar
þó ekki vel því
Skotar gerðu
jafntefli gegn Lit-
háen á útivelli í
fyrsta leik liðsins
í undankeppni
EM. Kenndi Levine þó dómaranum
að vissu leyti um það. „Ég er frekar
pirraður á störfum dómarans. Í hvert
einasta skipti sem við náðum upp
einhverju spili tækluðu þeir okkur og
dómarinn bara flautaði og flautaði í
stað þess að gefa þeim einhver spjöld
til að fá þá til að hætta. Ég er samt
ánægður með spilamennskuna en
við áttum að fá meira út úr leiknum,“
sagði Levine við BBC eftir leikinn.
BRÓðiR jonnys
eVans skoRaði
n Norður-Írland hefur átt slöku gengi
að fagna undanfarið en liðið byrjaði
vel í undankeppni EM með útisigri
á liði Slóveníu sem var á HM í sum-
ar. Eina mark
leiksins skoraði
hinn kornungi
varamaður Corry
Evans sem er
bróðir Jonnys
Evans, miðvarð-
ar Manchester
United. Corry
leikur einnig með
Manchester United, reyndar vara-
liðinu, en er samt í hópi Norður-Íra.
Corry kom lítið við sögu á undirbún-
ingstímabilinu hjá United en fékk
þó að koma inn á sem varamaður
gegn Philadelphia og spilaði þar með
bróður sínum Jonny.
mánudagur 6. september 2010 SPOrt 25
Íslenska landsliðið í knattspyrnu er
komið til Danmerkur þar sem það
etur kappi við heimamenn í und-
ankeppni Evrópumótsins á þriðju-
dagskvöldið. Danir spiluðu ekki á
föstudagskvöldið þegar Íslending-
ar töpuðu gegn Norðmönnum, 2–1,
á Laugardalsvellinum. Aðeins fimm
lið eru í H-riðli Íslendinga þannig að
eitt lið situr alltaf hjá á leikdegi.
Gengi Íslendinga gegn Dönum er
afleitt en Íslandi hefur aldrei tekist
að vinna Dani í landsleik. Í tuttugu
viðureignum liðanna hefur Íslandi
aðeins tekist að gera jafntefli fjórum
sinnum en hefur tapað sextán leikj-
um, markatalan alls er 13–8. Síðast
þegar Ísland náði jafntefli gegn Dön-
um var það árið 1991 í vináttuleik á
Laugardalsvellinum. Enduðu leikar
þar með markalausu jafntefli.
Það er fátt sem bendir til sigurs
gegn Dönum á þriðjudagskvöldið en
samkvæmt heimasíðu KSÍ hefur Ís-
landi ekki einu sinni tekist að skora
á Parken þar sem leikurinn fer fram.
Síðustu tveir leikir þar hafa endað
með sigri Dana og hafa Íslending-
ar ekki skorað mark þar en fengið á
sig níu.
Ísland verður án Grétars Rafns
Steinssonar sem meiddist í leiknum
gegn Noregi en inn í hópinn í hans
stað kom Valsmaðurinn Birkir Már
Sævarsson sem nú leikur með Brann
í Noregi. Einnig var Baldur Sigurðs-
son úr KR kallaður inn í hópinn í
stað Brynjars Björns Gunnarssonar.
Leikurinn hefst klukkan 18.15 og
er sýndur í beinni útsendingu á Stöð
2 Sport.
tomas@dv.is
Ísland hefur aldrei unnið Danmörku:
Beðið eftir fyrsta sigrinum
Markaskorarinn
Heiðar Helguson
skoraði gegn Noregi og
má gjarnan skora aftur.
MynD ToMaSz KoLoDziEJSKi
í tvö ár um að þið þurfið að taka við
titlum á sunnudegi, þannig að drullisti
bara út og vinnið þennan leik!“
Einlægur fögnuður
Þótt sigur Vals hafi verið afar örugg-
ur fóru stúlkurnar hans Freys ekkert
sérstaklega vel af stað. Þær fengu á
sig mark eftir rétt ríflega tíu sekúnd-
ur þegar hin kornunga og eldfljóta
Telma Þrastardóttir skoraði fyrir Var-
márstúlkur. „Það var nú bara kjána-
legt. Eitthvert kæruleysi og sending-
arfeill. Þetta var kannski samt það
besta sem þær gátu gert, að koma okk-
ur svona upp á tærnar. Ég var samt
hundóánægður með að fá þetta mark
á okkur. Við erum með markmið um
að fá á okkur sem fæst mörk. Við erum
reyndar ennþá á þeim markmiðum,“
segir Freyr.
Þrátt fyrir sérstakar aðstæður og
þá staðreynd að þetta væri fimmti Ís-
landsmeistaratitill Vals í röð var fögn-
uðurinn einlægur, segir Freyr. „Hann
var það. Stelpurnar töluðu um að það
væri jafnvel skemmtilegra að gera
þetta svona þar sem þetta kom svo á
óvart. Fögnuðurinn var einlægur og
það er þægilegt að vera búinn með
mótið bara. Nú tökum við á móti þess-
um 100. titli félagsins 19. septemb-
er án nokkurs stress. Við getum bara
stillt upp góðri veislu fyrir leikinn
gegn Grindavík. Það verður gaman
fyrir okkur og fyrir félagið,“ segir Freyr.
Gerir ekki upp á milli liða
Árið 2010 var fullkomið hjá Valskonum
þar sem þær unnu alla titlana. Síðustu
ár hefur Valur verið með yfirburðalið á
landinu og það var sama sagan í ár. En
Freyr vill ekki segja að þetta lið sé það
besta, þótt það sé mjög gott. „Liðið í
ár er mjög gott en ég á voðalega erfitt
með að gera upp á milli liðanna,“ seg-
ir hann. „Þetta er samt klárlega eitt af
betri liðunum sem Valur hefur haft. Í
því er góð blanda leikmanna og mik-
ið jafnvægi í aldrinum. Það eru nokkr-
ir leikmenn á besta kvenmannsaldri,
svona 23–26 ára, og svo er ég náttúru-
lega með drottninguna þarna, hana
Kötu Jóns. Svo eru þarna yngri stelpur
eins og Dagný Brynjars, Thelma Björk
og Björk Gunnarsdóttir þannig að
það er mjög góð blanda í liðinu,“ segir
Freyr en hvernig metur hann það af-
rek að vinna alla titla sem í boði eru?
„Það náttúrulega kemur ekkert
annað til greina hjá þessu liði en að
vinna. Það er ekkert sjálfgefið að vinna
fimm titla á einu ári, það er afskaplega
auðvelt að misstíga sig í einni keppni.
Ég er mjög ánægður með hvernig leik-
menn hafa haldið hungrinu og aldrei
slakað á, hvort sem það eru æfingar
eða leikir,“ segir Freyr.
Veit lítið um framtíð sína
Freyr hefur stýrt liði Vals undanfar-
in tvö ár en þar á undan var hann
aðstoðarmaður Elísabetar Gunnars-
dóttur. Freyr hefur unnið það magn-
aða afrek að verða Íslands- og bikar-
meistari tvö ár í röð auk þess auðvitað
að vinna alla titla ársins í ár. Það er því
fátt, ef eitthvað, sem hann á eftir að
gera hjá Val en hann er ekki farinn að
hugsa um framtíð sína ennþá.
„Þegar að því kemur mun ég alltaf
sjá til þess að skilja við kvennalið Vals
í góðu hvenær sem það verður og að
góður maður taki við því. Núna ein-
beiti ég mér bara að því að klára þetta
ár því við ætlum okkur einhverja hluti í
Evrópukeppninni. Ég er mjög ánægð-
ur í Val og með það starfsumhverfi
sem mér er veitt þar. Einhvern tíma
mun koma að endalokum en ég get
bara ekkert sagt til um framtíð mína
eins og staðan er í dag,“ segir Freyr.
Meistarar Valskonur fögnuðu fimmta titli ársins af innlifun. MynD FóTBoLTi.nET
Stórbrotinn árangur Freyr Alexandersson, þjálfari Vals, hefur nú stýrt liðinu til
Íslands- og bikarmeistaratitils tvö ár í röð. MynD FóTBoLTi.nET
Harkan sex
Valskonur
gefa ekkert
eftir eins og
sést hér. MynD
FóTBoLTi.nET