Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Side 24
24 erlent 12. nóvember 2010 föstudagur
Fjármálaskýrendur vestanhafs segja
að sölumet á listaverkauppboðum
Christie’s, Sotheby’s og Philips de Pury
í New York kunni að gefa vísbend-
ingar um að efnahagskreppan sem
skall á árið 2008 sé nú í rénun. Aðrir
myndu eflaust benda á að sölumetið
hafi ekkert að segja nema fyrir þá allra
efnamestu, enda seldust verkin fyrir
upphæðir sem eru sannarlega ekki á
allra færi. Á haustsölu þessara þriggja
stærstu uppboðshúsa seldust listaverk
fyrir meira en einn milljarð dala, eða
rúmlega 112 milljarða íslenskra króna.
Það voru aðallega módernísk verk
og poppverk sem voru á uppboðunum
nú í haust, auk impressjónískra verka.
Mikil eftirspurn var eftir verkum pólsk-
bandaríska listamannsins Andys War-
hols og seldust þau fjölmörg fyrir
háar upphæðir. Svarthvít mynd hans
af kókflösku seldist til að mynda á
tæplega fjóra milljarða íslenskra króna
og margra fleta mynd hans af Eliza-
beth Taylor seldist á það sem samsvar-
ar rúmlega sjö milljörðum íslenskra
króna. Þá seldist hið heimsfræga verk
bandaríska listamannsins Roys Licht-
ensteins „Ohhh ... Allright“ á jafnvirði
4,8 milljarða króna, en verk eftir Licht-
enstein hefur aldrei verið selt á svo
háu verði.
Amy Capelazzo var yfirmaður upp-
boðsins hjá Christie’s: „Listaverka-
markaðurinn er að koma sterkur inn
og eftirspurnin hefur aukist, sérstak-
lega eftir fáséðum verkum. Listaverk
hafa haldið gildi sínu sem góð fjárfest-
ing í kreppunni, þó lítil hreyfing hafi
verið á markaðnum undanfarin tvö ár.“
Fjölmörg met voru slegin á haustsölu stærstu uppboðshúsanna í New York:
Sölumet á listaverkauppboðum
Súkkulaðifíklar gætu þurft að borga
sjö sinnum meira fyrir súkkulaði-
stykki eftir 10–20 ár, ef marka má
sérfræðinga í súkkulaðiiðnaðin-
um. Marc Demarquette, er breskur
súkku laðigerðarmaður og sérfræð-
ingur um kakóbaunaræktun. Hann
rekur sælkeraverslun í London og
var ráðgjafi BBC við gerð heimild-
armyndar um ástandið á súkku-
laðimarkaðnum í dag. Hann
fullyrðir að hvers kyns ódýr súkku-
laðistykki muni heyra sögunni til
innan skamms. Segir hann að súkku-
laðistykki sem kosti eitt breskt pund í
dag, muni líklega kosta sem svarar til
sjö breskra punda innan 20 ára. Jafn-
gildir það um 1.270 íslenskum krón-
um. John Mason er þessu sammála,
en hann starfar sem yfirmaður Nátt-
úruverndarstofnunnar Gana – sem
er annar stærsti framleiðandi kakó-
bauna í heiminum í dag. „Eftir 20 ár
mun súkkulaði vera eins og kavíar.
Það á eftir að verða svo sjaldgæft og
svo dýrt að meðalmanneskja mun
einfaldlega ekki hafa efni á því.“
Bændur flýja störf
Í stuttu máli er vandamálið einfalt.
Meirihluti kakóframleiðslunnar í
heiminum á sér stað í vesturhluta
Afríku, einna helst á Fílabeinsströnd-
inni og í Gana. Súkkulaðimarkaðn-
um er stjórnað af risavöxnum alþjóð-
legum fyrirtækjum sem leita ætíð
lægsta verðs, sem leiðir til þess að
bændur fá sáralítið greitt fyrir vinnu
sína. Kakóbaunaræktun er erfiðis-
vinna, og þurfa kakóbaunatrén mikla
umhyggju. Þau deyja mjög gjarna, en
þegar það gerist þarf að gróðursetja
nýtt tré eins fljótt og auðið er – sem
verður þá tilbúið til uppskeru eft-
ir þrjú til fimm ár. Þetta er ferli sem
bændur þurfa stöðugt að sinna, en
það er mjög tímafrekt og krefst mikils
mannafla. Lítil sem engin endurnýj-
un er hins vegar meðal kakóbænda,
þar sem afkomendur þeirra flytja
frekar á þéttbýlisstaði til að freista
gæfunnar. Það er ekki furða, enda
fá kakóbændur aðeins greiddar um
90 krónur á dag. Bændum fækkar
því stöðugt og hafa ekki undan við
að endurnýja dauð tré, sem þýðir að
framboðið á baunum verður minna
með hverju árinu.
Eftirspurnin aldrei meiri
Á sama tíma og framboðið af kakó-
baunum minnkar, hefur eftirspurn-
in eftir súkkulaði aldrei verið meiri
og er ennþá stöðugt að aukast. Risa-
stórir markaðir í Indlandi og Kína
Súkkulaði verður
gullS ígildi Eftir 20 ár mun súkkulaði vera eins og kavíar.
Björn tEitsson
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Hækkandi verð á kakóbaunum mun
valda því að súkkulaðineysla verði aðeins
á færi efnameiri einstaklinga. Slæmum
kjörum kakóbaunabænda í Vestur-Afríku
er kennt um.
súkkulaðistykki á tilboði Í
dagkostasúkkulaðistykkiríflega
100krónuríverslunum.Verðið
gætisjöfaldastánæstuárum.
Andy Warhol Verkpólsk-bandaríska
snillingsinsvorueftirsótt.
glæpasaga Bush
Nú er nýkomin út bók George W.
Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkj-
anna, um tíma hans í Hvíta húsinu.
Nú hafa aðgerðarsinnar í Bretlandi
hafið baráttu sem gengur út á að
færa bók Bush í bókabúðum, frá
ævisöguhillunni yfir í glæpasagna-
hillurnar. Vilja aðgerðarsinnarnir
þannig vekja athygli fólks á þeim
glæpum sem bandarísk stjórnvöld
stóðu fyrir í forsetatíð Bush. Þar á
meðal er innrásin í Írak auk síend-
urtekinna pyntinga sem notaðar
voru við yfirheyrslur. Athæfið hefur
vakið mikla athygli og hefur þegar
smitast til Bandaríkjanna, og gætu
viðskiptavinir bókabúða því allt eins
átt von á að finna bók Bush í glæpa-
deildinni.
Sprenging í
Pakistan
Gífurlega öflug sprenging varð á
fimmtudag í Karachi, stærstu borg
Pakistans. Að minnsta kosti 15 eru
látnir og 30 alvarlega særðir. Um
bílasprengju var að ræða en sendi-
ferðabíl hafði verið lagt fyrir utan
höfuðstöðvar hryðjuverkasérsveit-
ar lögreglunnar. Gluggar brotn-
uðu í þriggja kílómetra radíus við
sprenginguna. Kom sprengingin í
kjölfar þess að hryðjuverkasérsveitin
handtók grunaða hryðjuverkamenn
í gær, en þeir munu vera meðlimir í
samtökunum Laskar-e-Jhangvi. Hafa
þau samtök verið sögð í samstarfi
við al-Kaída.
dino de laurentiis
látinn
Ítalski kvikmyndaframleiðandinn
Dino De Laurentiis er látinn, 91 árs
að aldri. Dánarorsök er ókunn en í
yfirlýsingu frá fjölskyldu De Laur-
entiis kom fram að hann hafi látist
á heimili sínu í faðmi fjölskyldu
sinnar. De Laurentiis átti farsæl-
an feril í heimi kvikmyndanna.
Hann vann með ítölsku leikstjórun-
um Roberto Rossellini og Freder-
ico Fellini á 6. áratug síðustu aldar
og fékk óskarsverðlaun fyrir mynd
Fellinis, La Strada. Hann framleiddi
einnig „költ“-myndina Barbarella á
sjöunda áratugnum. Í seinni tíð bar
hann einna helst ábyrgð á velgengni
Arnolds Schwarzeneggers í Holly-
wood, með því að ráða hann í hlut-
verk villimannsins Conans.